Vikan - 18.06.1959, Blaðsíða 25
Það verður aldrei fullþakkað, starf
leikstjóra Ríkisóperunnar í Vin. Á
tæpum hálfum mánuði hefur hann
sviðsett óperuna Betlistúdentinn með
slíkum árangri, að maður stendur
sem agndofa.
Þjóðleikhúsið- gerir mjög vel við
Betlistúdentinn. Það sparar hvergi
mannskap, enda kannski nokkuð vel
sloppið frá leiktjalda tilkostnaði, en
leiktjöld og búningar eru frá upp-
færslu Rott í Stokkhólmsóperunni.
En samt ber að þakka Þjóðleikhús-
stjóra þá djörfung að kosta svona
miklu til, þegar þess er gætt hve fólk
er gjarnt að dæma allt harkalega,
sem fram fer á sviði Þjóðleikhúss-
ins, og siðan kannski sækja sýningar
eftir því.
Efni óperettunnar er auðvitað held-
ur veigalítið, en hún er þrungin gáska
og fjöri, og tónlistin er elskuleg og
ágætlega flutt af hljómsveitinni, sem
er undir stjórn Antolitsch. Við þui'f-
um ekki að brjóta heilann um ein-
hvern boðskap, hann er enginn, nema
þá sá, að — nú skulum við skemmta
okkur, á morgun er tími til að súta.
Höfundur tónlistarinnar er fæddur
í Vín 1842. Hann hóf snemma tón-
listarnám og starfaði sem hljóm-
listarmaður og hljómsveitarstjóri og
fór síðan að semja tónverk og óper-
ettur og er Betlistúdentinn frægasta
verk hans.
Óperettan skeður í Krakau-borg
í Póllandi snemma á 18. öld, og er
þar fjallað um ástir og hrekki Sax-
neskra. hernámsliða, föðurlandsást og
hver hlær best.
Leikendur eru um eða yfir 100 með
söng- og dansfólki. Ástæða er til að
þakka sérstaklega hinum fjölmörgu
óþekktu aukaleikurum, sem standa
sig frábærlega vel. Hver maður er
virkur og lifandi þátttakandi, og þeir
skapa afbragðs heildarmynd og auð-
séð að leikstjórinn hefur tekið starf
aukaleikaranna mjög alvarlega, eins
og vera ber, en of sjaldan er gert hér.
Ekki verður fjölyrt mjög um ein-
staka leikendur, mun þeirra þó að
nokkru getið. Þrjár söngkonur fara
með stór hlutverk.
Sigurveig Hjaltested leikur og
syngur nokkuð öfgafullt, hlutverk
Novölsku greifynju, en það sem verra
er, það skilst varla nema annað hvert
orð þegar hún syngur. Og það eru
fleiri í sömu sök og hún.
Þuríður Pálsdóttir, okkar ágæta og
aðlaðandi söngkona, með sína fallegu
rödd, syngur þannig að mjög erfitt er
að skilja orðin, svo maður minnist
nú ekki á Nönnu Egils Björnsson.
Hún hefur litla rödd og textinn fer
fyrir ofan garð og neðan.
Hvernig má það vera að þessar
söngkonur læra ekki að bera vel fram
texta í söng? Það verður varla fyrir-
gefið að skemma svo texta laganna,
að við erum engu nær um efni þeirra.
Það hefur oft verið ráðist á Þjóð-
leikhússtjóra fyrir að ráða hingað
BETLISTUDENTSNN
Óperetta í þrem þáttum. Tónlist Karl
Millöcker, I>ýöandi Egill IJjarnason, Tón-
listarstjóri Ilans Antolitsch.
LEIKSTJÓBI: ADOLF BOTT
erlendar söngkonur, og fólk hefur
borið við ýmsu. Það hefur sagt að
við þyrftum ekki á söngkonum er-
lendis frá að halda, menn þekktu ekki
tungu þeirra og fleira og fleira. Þessi
gagnrýni er hlægileg og dettur niður
dauð þegar við sjáum þrjár islensk-
ar söngkonur í stórum hlutverkum á
sviði Þjóðleikhússins, og við heyrum
ekki orðin í meðferð þeirra. Mætti ég
þá heldur biðja um söngkonur erlend-
is frá!
Einsöngvarar okkar hafa einhvern-
tíma farið fram á það að þeim væri
sköpuð skilyrði til óperuflutnings.
Hvernig væri að læra fyrst að bera
skýrt fram texta?
Baldvin — Ævar — Klemenz
Það er hægt að afsaka ýmislegt hjá
þessum þremur söngkonum, hvað
leik snertir, en hitt er vítavert, og
til mikils skaða, þessari annars frá-
bæru sýningu.
Guðmundur Jónsson gerir hvort-
tveggja, að leika vel og syngja vel
og bera vel fram. Þessi ágæti maður
er leikari af guðsnáð, eins og þeir
gerðust bestir áður en menn fóru að
sækja erlenda grund til náms. Hreyf-
ingar léttar þrátt fyrir þyngd manns-
ins og stórt umhverfi, svipbrigði
skemmtileg og vel heima. Vakti hann
mikla kátínu hjá áhorfendum þar
sem hann stikaði stórum um sviðið.
Gott.
Guðmundur Guðjónsson hlaut sína
eldskírn í óperunni Rakarinn í Se-
villa. Hann hefur sýnt að mikils má
af honum vænta, söngur hans er
betri, og leikurinn hefur og tekið
miklum framförum, hann er örugg-
ari, en jafnframt mýkri í öllum
hreyfingum, á köflum jafnvel þrótt-
mikil.
Sverrir Kjartansson gerir sínu hlut-
verki ekki slæm skil, en hann er
auðsjáanlega fullur ótta við þetta
hlutvei'k. Söngurinn er ekki þrótt-
mikill, sem kannski stafaði af kvefi,
en hann skortir meiri þrótt, einkum
Framh. á bls. 27
Uöfum ávalt til fjölbreytt
úrvál af
Viðurkennt vörumerki
Útvegum einnig og seljum all-
ar tegundir hljó'öfœra
Hljóðfærav. Sigríðar Helgadóttur s.f.
Vesturver — Reykjavík — Sími: 11315