Vikan


Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 27

Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 27
— og stundum get ég varla sofið Framháld af bls. 13 — Hvernig í óskupunum á það líka að vera mögulegt að ætlast til þess að sami maðurinn skrifi gagnrýni um allt efni sem flutt er í útvarpið! Prá erindum til grískra harmleikja, frá slögurum til sinfónískra tónleika. Þótt þeim, sem skrifa um útvarpið, leðiist sitt hvað sem þar er flutt, getur öðrum þótt það fýsilegt tií fróðleiks eða skemmtana. — Ætlar þú að halda þessu starfi áfram um sinn? — Ég veit það ekki. ffig hefi áhuga á að ljúka mínu háskólanámi, ef að- stæður leyfa. — Að lokum Magnús, hvert er þitt lífsmottó? — Komdu til dyranna eins og þú ert klæddur, sýndu ekki yfirdreps- skap né hræsni, vertu þú sjálfur Út- varp Reykjavík, dagskránni er lok- ið, góða nótt. Þetta síðasta var ekki til mín sagt, heldur hinna mörgu þúsunda sem hlusta á rödd þularins bjóða góða nótt í dagskrárlok og þjóta síð- an i ofboði til þess að slökkva fyrir þjóðsönginn, sem ómar í eyrum mér, þegar ég kveð hann Magnús þul og þakka fyrir mig. JDNA5 BETLISTÚDENTINN Framháld af bls. 25 í lokin. Einhvernveginn sá ég Jón Sigurbjörnsson í þessu hlutverki, svona í anda. Kristinn Hállsson skil- ar litlu hlutverki með prýði, og mað- ur saknaði þess að hann skyldi ekki syngja meira. Ævar R. Kvaran er mjög góður sem fangelsisstjórinn. Tækni hans er óbrigðul, hann er fullur allan tímann, syngur fullur og talar fullur og skil- ur ekkert i þeim fjára, að fangi skuli strjúka án þess að kveðja! Maður hefur það á tilfinningunni að Ævar hafi mikið gaman af þessu hlutverki, og hefur hann enn sýnt hve fjölhæf- ur hann er. Rödd hans er mikil og góð á sviði og hann kann vel að beita henni. Fleiri eru leikendur i smáum en skemmtilegum hlutverkum. Svend Bunch hefur æft dansana og dansar sjálfur og hlutur ballett-fólks- ins er góður. Kórinn er ágætur, vel æfður, og öruggur. Það verður seint fullsagt við auka- leikendur að vera ekki að gægjast inn á sviðið. Það truflar áhorfendur að sjá, inn á milli tjalda, handleggi og iappir margskonar, þótt eigendur eigi kannski að fara að koma inn á sviðið. Það eru þessir smámunir sem skemma. Kunnátta leikfólksins var góð, frammistaða fólksins á bak við tjöld- in með sérstökum glæsibrag. Og hvað sem leikstjórinn annars kann að vera góður, verður sýningin að engu ef starfsmenn senunnar eru ekki starfi sínu vaxnir. Og það skal sagt, að Þjóðleikhúsinu til hróss, að senu- mennirnir bregðast aldrei. Hraði þeirra í skiftingum og öryggi, var manni stórt gleðiefni á að horfa. Það kann að vera að þeir senumenn séu öfundsverðir, sem fá til samstarfs svo frábæran leikstjóra sem prófessor Rott, en það er líka öfundsverður leikstjóri sem hefur menn eins og Guðna og Þorgrím. Þessi uppfærsla mun lengi í minn- um höfð. Húsið nötraði og skalf und- an fótum leikenda, og senan hefur sjálfsagt þurft einhverja aukabita til að falla ekki niður. Aldrei hefur und- irritaður séð svið Þjóðleikhússins svona gjörnýtt, né heldur svona marga aukaleikara, svona látlausa en þó áberandi. Hafi allir þeir sem stóðu að þess- ari frábæru sýningu miklar þakkir fyrir, og hafi jafnframt I huga, að miklar kröfur verða nú gerðar um næstu verkefni, þegar við flettum merku blaði í sögu leikhússins, og horfum í auða opnu. 3. júnl 1959, JONAS VÍSNAÞÁ TTUR '&tfiÍa/nUL fíjÓ&ky&Junnáh teæ£isteápur 125 w,a Ferskeytlan er Frónbúans fyrsta barnaglingur, en verður seinna í höndum hans hvöss sem byssustingur. Ferskeytlan er merkilegt fyrir- brigði í íslenzkum skáldskap og lýs- ingin í vísunni hittir í mark. Margir hafa byrjað að setja saman vísur börn að aldri og mergjaðar fer- skeytlur um náungann hafa orðið fleygar og bitið sem beittir byssu- stingir. Að þessu sinni hugum við ögn að Sigurði Breiðfjörð, sem lét margt gott frá sér fara. Vísurnar um flöskuna eru meinleysislegar en graf- skriftin er ögn rætin. Við brotna flösku. Illa fór nú fyrir mér, flest eru ráðin þrotin. Svona er það sem svikult er, svei þér, þú ert brotin. Það sem illa að er gætt, oft má þannig fara. Svona er mér sjálfum hætt, síst þá kann að vara. Grafskrift. Um gamla Teit er grafskrift sú gerð er sveitir heyra: Hann át og skeit sem ég og þú. Ekki veit ég meira. Alkunnar eru þessar vísur Sigurðar: Lauf I vindi lífs er bið, lítið yndissæti, hvað er að binda hugann við heimsins skyndilæti. Vinda andi I vöggum sefur vogar þegja og hlýða á, haf um landið höndum vefur, hvitt og spegilslétt að sjá. Nýja gerðin með mótor og stóru frysti- hólfi eru hentugustu kœliskápakaupin fyrir allan almenning í dag. — RAFHA kæliskápur hentar hvaða fjölskyldu sem er — stór að innan, lítill að utan. íslenzkar húsmœður velja íslenzk heim- ilistæki. H.f. Raftækjaverksmiðjan HAFNARFIRÐI / SÍMAR 50022, 5DD23 & 5D322 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.