Vikan


Vikan - 23.07.1959, Blaðsíða 19

Vikan - 23.07.1959, Blaðsíða 19
 Já, reyndu að ;anga á.tánum Veriði úti, ég er að baka köku, og ef einhver trampar í kring, fellur hún! John nokkur Johnson hafði fluttzt héðan ruigur vestur um haf og setzt að í mormónaríkinu Utha og tekið mormónatrú. Hann var ramíslenzkur í anda, þrátt fyrir dvöl sína vestra, talaði góða íslenzku og hélt heiðri ættlands síns mikið á lofti. Nokkru eftir að Island öðlaðist sjálfstæði, kom til hans Islendingur héðan að heiman. John tók honum mætavel og vildi allt fyrir hann gera. Áður en Islendingurinn kvaddi, spyr John hann, hvort hann langi ekki til að sjá konumar sínar. Islendingur játti því, og eftir skamma stund kemur John með þrjár konur inn til hans, eina blásvarta Negrakerlingu, aðra rauða Indíánakerlingu og þriðju hvít. „Mér þykir þú all birgur af húsfreyjum, landi sæll,“ segir gesturinn. „Já, sumum þykir nú þetta lúxus," svarar John, „ég átti lengi ekki nema eina kerlingu, en af því að mér þykir alltaf vænt um gamla Frón, þá gat ég ekki setið á mér, þegar Island eignaðist flaggið og sjálfstæðið, að eignast íslenzku fána litina." VIKAN 3$

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.