Vikan


Vikan - 22.10.1959, Blaðsíða 5

Vikan - 22.10.1959, Blaðsíða 5
Strætisvagninn er að fara, og hann verður auð- vitað að taka sprettinn og ná í þennan vagn. Það eru 5 mínútur, þar til sá næsti fer, og hann má ekki vera að því að bíða. Hann hefur svo mikið að gera, að hann má ekki vera að því að ganga — og nennir því ekki, — heldur veltir hann sér inn í bílinn, og miðjan er alltaf að gildna. Áhyggjur, kvíði, öryggisleysi, „bisnissinn“ allur í vaskinum, víxlar að falla o. s. frv. Hann er hættur að geta sofið og er alltaf spenntur. Ef metnaöarmaöurinn fær krans- æðastíflu, er hann sá, sem minnstan tíma hefur til að bíða eftir þvi, að hjartaveggurinn verði aftur heilbrigð- ur. Hann fer of fljótt á fætur, og þá kemur að því, að hjartað gefst upp og maðurinn deyr. Þetta hljómar svo hörkulega, napurt og ruddalega, en sannleikurinn er sá, að hann hefði með dálítið minni taugaáreynslu og dálitið meiri heilsu- samlegri hreyfingu getað staðizt gegn öllum þeim atriðum, sem ollu krans- æðastíflunni. Og ef hann hefði hlustað á ráðleggingar læknis sins og legið i rúminu fjórar til sex vikur, hefði hann vafalaust ekki dáið. Til allrar hamingju fer varla hjá því, að menn taki eftir því, ef þeir hafa fengið kransæðastíflu, því að henni fylgja venjulega miklir verkir í brjóstholinu. Það er vinsamleg við- vörun hjartans um, að það sé í hættu og þarfnist algers friðar og kyrrðar til Þess að komast í samt lag aftur og læknast. Og augljóst er, að þá eiga menn að leita læknis. En metnaðarmaðurinn er ekki hinn eini, sem er ógnað. Unglingarnir eru í hættu, — þeir sem þjóta um á skelli- nöðrum og fá alls ekki þá skynsam- legu hreyfingu, sem þeir þarfnast og menn fengu áður fyrr við að stiga reiðhjól. Skortur á hreyfingu veldur því, að blóðrásin minnkar og unglingarnir sjá sér fyrir æðastíflu. Síðar meir leysir bílinn skellinöðr- una af hólmi. Aldrei verður neitt um hr.eyfingu, og það eru engar ýkjur, að dauðsföll af völdum bílslysa eru i miklum minnihluta þeirra dauðsfalla, sem vaxandi vélvæðing á sök á. Hið æðisgengna kapphlaup og taugaáreynsla, sem dynur á nútíma- maninum, er nefnt „stress" á enska tungu, og það er mjög auðkennandi, að 40 af hundraði allra dauðsfalla í heimalandi „stressins", Bandaríkjun- um, árið 1956 voru vegna sjúkleika i hjarta eða æðum. Og þegar við erum nú að tala um orsakirnar, — skyldu blöðin hugsa um það, að þau með æsandi fyrirsögnum sínum og öðru sliku gætu óbeint ver- ið orsök margra kransæðastíflna og þá um leið dauðsfalla? Margt fólk verður taugaæst af þess- um.fyrirsögnum. Það eykur starfsemi 1 nýrnahettnanna, og afleiðingin verður hærri bióðþrýstmgur. Og við höfum þegar heyrt, hvaöa afieiðingar það getur haft. En hann getur einnig valdið angina pectoris, sem táknar krampa í krans- æðunum. Oft orsakast siíkur krampi af taugaáreynslu, — þ. e. a. s. mikiiii eftirvæntingu og ótta. Krampinn þrengir kransæðarnar, blóðrásin verður lakari, og hættan á blóðtappa verður meiri. Margir nútímamenn deyja óbeint úr hræðslu. Þess vegna er engin ástæða til að grafa þá í rennusteinunum, en það er ástæða til að ásaka þá, sem nota þau tæki, sem þeir hafa undir höndum, ti] að hræða með þeim. Það er nauðsynlegt, að fólk, sem situr mikið við vinnu sína, standi í fimm mínútur á hverjum klukkutíma og reyni að hreyfa sig eitthvað. Það er nauðsynlegt að hjóla og fara í gönguferðir, borða skynsamlega, svo að maður verði ekki of feitur, sofa um miðjan daginn hálftíma á hverjum degi, svo að hinir þöndu vöðvar og æðar geti slaknað, og að hafa eitt- hvert hugðarefni, svo að heilinn fái hvíld. Menn mega alls ekki taka vinn- una með sér heim, menn eiga að slappa af við breytingar og umskipti, sem veita heilanum eitthvað annað að hugsa um, svo að taugarnar róist. En hvernig verður kransæðastífla? Til að skilja eitthvað i því verðum við fyrst að líta á staðinn, þar sem stíflan myndast, þ. e. slagæðarnar. Slagæð er mynduð úr þremur lög- um. Innst er himna, því næst vöðva- lag, sem dregur slagæðina saman i hvert sinn, sem hún hefur víkkað af blóðstraumnum frá hverju hjartaslagi, — loks er yzt bandvefur. Milli innstu himnunnar og vöðvans myndast, er aldurinn færist yfir, hart, gulleitt, gláandi fituefni, hið svo- nefnda cholesterín. Það myndast í Framh. á bls. 29. Hann hefur látið kapphlaupið við tímann lönd og leið og lifað rólegu h'fi í fullkomnu jafnvægi. Engu að síður hefur hann unnið mikið og átti langan vinnudag, en það hefur ekki skaðað hjartað. Það er í góðu lagi þrátt fyrir aldurinn.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.