Vikan - 22.10.1959, Qupperneq 31
Fyrir
kvenþjóðína
aðeins
Kæra Aldís.
Kg ætu Kannski að vera hreykin aí
þvi, nvaö kærastinn minn passar upp
á mig og er alDryöisamur, en það ger-
ír mig nara hræuaa, pvi að rynr 3 ár-
um var ég truloiuö, en það lór út um
þúíur, og eí hann kæmist að þvi, veit
ég ekki, hvaö hann gerði. Ætti ég
ekki aö segja honum íra þvi heldur en
hætta á, aö hann írétti það annars
staöar?
Steinunn.
Svar: Mér finnst, aö þér ættuö
viö fyrsta tækifœri aö segja honurn
frá pessu, því aö liann getur alltaf
frétt þaö. Þá munuö þér komast
aö raun um, hvort ihann er sá maö-
ur, sem þér vonuöuö, aö hann væri,
hvort hann sýnir yöur umburöar-
lyndi og ástúö eöa hvort liann
dæmir yöur. Þaö á hann aö mínu
viti ekkert meö, því aö þaö er
framtíö ykkar saman, sem skiptir
máli, ekki fortíöin.
MeÖ bestu kveöjum,
Aldís.
Kæra Aldís.
Vinkona mín er gift mjög góðum
manni og á tvö börn. Þau eiga
skemmtilega íbúð, og alltaf er maður-
inn að koma með eitthvað fallegt fyr-
ir heimilið. Ekki finnst mér vinkona
min vera neitt þakklát fyrir það,
heldur hefur hún allan hugann við að
koma sér út á kvöldin, á bíó eða aðrar
skemmtanir. Maðurinn hennar hefur
þannig starf, að hann er alltaf að
heiman, og þá er hún aldeilis á ferð-
inni, — já, mér er kunnugt um það,
þvi að ég sit oftast hjá börnunum.
Auðvitað gæti ég sagt nei, þegar hún
hringir til mín til að fá mig til þess
og segist bara verða að komast út og
sjá fólk. En ég veit, að ef ég gerði
það ekki, næði hún bara í einhvern
annan, og mér er svo sem sama, því
að ég hef ekkert á móti. því að sitja
þarna i rólegheitum.
En þar sem ég nú sit Þarna, get ég
ekki leitt Það hjá mér, hvað allt er
sjúskað og í rauninni druslulegt •—
þrátt fyrir alla þessa nýju hluti. Ég
tek þá stundum til e.ða geri við ýmis-
legt fyrir hana. Þetta væri svo sem
allt í lagi, ef þetta væri allt og sumt.
En ég kemst ekki hjá Því að verða vör
við, að hún er oft. úti með karlmönn-
um og nú upp á síðkastið með einum
sérstökum. Hún reynir allt, sem hún
getur, til að leyna mig þessu, en það
er nú ekki hægt. Mig tekur sárt til
mannsins hennar, sem ekkert grunar,
og þegar hann kemur heim, er hún
svo sæt og ástúðleg við hann, að mér
verður flökurt. Hann hrósar henni og
aumkar hana, •— aumingjann, sem
hefur orðið að standa í öllu alein,
meðan hann var i burtu, og veit ekki,
hvað hann á helzt að gera til að gleðja
hana. Nú spyr ég þig, Aldís min góð,
er ekki rétt, að ég segi bara mannin-
um, hvernig á öllu liggur?
Sissí.
Kæra Sissí.
Nei, kœra Sissí, þaö skaltu aldeil-
is ekki gera. Ef þú hefur áhyggjur
af þessu hjónabandi, ættiröu aö
tala hreinskilnislega viö vinkonu
þina og segja henni skoöun þína.
Þú ert kannski — án þess aö vilja
þaö og án þess, aö þú gerir þér
nokkra grein fyrir því, — afbrýöi-
söm út i vinkonu þina, og þá séröu
ekki Oilutina í réttu Ijósi.
ÞaÖ getur vel veriö, aö þessi
■ unga kona hafi ekki veriö nógu
þroskuö til aö giftast og henni sé
í mörgu ábótavant, en staöreynd
< er þaö þó engu aö síöur, aö hún
hefur einhverja þá eiginleika og
eitthvaö þaö til að bera, sem gerir
þaö aö verkum, aö manninum
hennar þylcir innilega vænt um
hana. Hér hefur þú ekki leyfi til
aö aöhajast neitt. sem gæti eyöi-
lagt fyrir þeim. Þú verður aö
muna, aö inn á þetta heimili kem-
ur þú sem vinkona hennar, og þaö
skáltu halda áfram aö vera.
Þú býrö ein, hjá þér er állt í röö
og reglu, — en ekki er hægt aö
œtlast til, aö svo sé alltaf á barna-
heimilnim. Þar hafa kannski stól-
arnir veriö strœtisvagnar og eld-
húsgólfiö sjórinn. Ef móöirin slak-
ar ekki svolítiö á kröfunum um,
aö állt eigi aö vera í réttum skorö-
um og hver hlutur á sínum staö, —
ja, þá er heimiliö ekki sá notalegi
griöastaöur, sem þaö á aö vera,
staöur þar sem hugmyndaflug
barnanna getur fengiö útrás.
Ung móöir getur élskaö börn sín
og haft innilega ánœgju af þeim
állan daginn, en þar fyrir getur
hún veriö oröin dauöþreytt á þeim
á kvöldin. Sumum finnst þá gott
aö setjast niöur og hvíla sig, öör-
um finnst, aö þœr veröi aö kom-
ast út til aö hressa sig. Reyndu aö
muna, þegar þú kemur til vinkonu
þinnar aö kvöldi tií, aö þá er hún
búin aö vera í barnavafstri allan
daginn.
Þaö aö vera vinur annars hjón-
anna krefst mikillar gœtni og
hœversku. Bezt er aö vita meö
sjálfum sér, aö maöur sé sannur
vinur heimilisins. Sé því ekki suo
fariö, gerir maöur ekki annaö
betra en draga sig sem mest í hlé.
Meö kveöju.
? Aldís.
CORN FLAKES
RICE KRISPIES
ALL BRAN
PEP
H. BEHEDIKTSSON H.F.
TRYGGVAGÖTU 8 - SÍMI 112 28
v