Vikan - 21.01.1960, Blaðsíða 15
'■ ■■
Úr Svartaskógi
Tveggja hæða einbýlishús
f síðasta blaði var fjallað um ytra útlit húsa, og þetta þýzka einbýlishús hefði svo
sannarlega mátt vera í hópi þeirra, sem við töldum til fyrirmyndar.
Húsið er nokkuð stórt, byggt í tveimur hæðum, og rúmgóðar svalir á efri hæð með
fullháum veggjum umhverfis. Gler, steinn og timbur mynda fallega, afmarkaða fleti,
og ramminn utan um forhlið efri hæðar er málaður hvítur.
Myndirnar að neðan eru úr
stofu og borðstofu. Takið eftir
því á teikningunni, að hægt er
að gera litla, aðskilda íbúð
vinstra megin á efri hæðinni, og
hæð. Annars er miðað við, að
stofan til vinstri sé vinnuher-
bergi, og svefnherbergi hjóna er
þá á sömu hæð og innangengt í
lítið fataherbergi og baðherbergi.