Vikan - 21.01.1960, Side 18
)yuuAnal
&
máli
Hrútsmerkiö (21. marz—20. april.):
Þessi vika verður einkar ánægjurik
fyrir þig, vinsældir þínar munu auk-
ast til muna ef þú hefur þig i frammi.
Hætt er samt við að velgengni þín
kunni að valda öfund eins félaga þinna, en með
háttvísi og kænsku ættir þú að geta komið öllu
í samt lag aftur. Heiilatala, 4.
______ Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þú
virðist kvíða einhvers mjög í vikunni,
en kviði þinn er ástæðulaus, eins og i
ljós mun koma eftir helgina. Undan-
farið hefur gætt nokkurrar afbrýðisemi
í fari þínu, og er það miður, þvi að hún er alls
ekki á rökum reist, og bitnar þetta á ástvini
þínum.
Tvíburamerkið (22. mal—21. júni):
Hætt er við að þú færist of mikið í
fang í vikunni, líklega á vinnustað, og
verður það til þess að yfirmaður þinn
fer að líta þig óhýru auga. Vertu rösk-
ur í vinunni, og sýndu, að þú átt sízt skilið að
þú sért vanmetinn
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú
færð svalað metnaðargirnd þinni í vik-
unni, og er það ekki nema gott og
blessað, en hætt er samt við að þú mikl-
ist af frama þinum, og þá er ilit í efni.
Þú færð mikinii tíma og tækifæri tli þess að sinna
hjartans málum þínum, og í þeim efnum lofa
stjörnurnar öllu góðu.
Ljónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þessi
vika verður mjög öfgakennd — þú munt
verða fyrir talsverðum vonbrigðum
annars vegar og njóta mikilla hamingju
hinsvegar. Útkoman verður samt sú, að
hamingjan verður ofan á. Kunningi þinn er í
vanda staddur.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): I
þessari viku geta smámunir einir orðið
til þess að valda þér gremju — sem
sagt: skapið verður ekki sem bezt. Á
mánudag kemur loks dálítið fyrir, sem
verður þess valdandi, að veður skipast skjótt í
lofti, og eftir það lætur þú ekki smámuni angra
þig. Heillatalan 4 kemur talsvert við sögu.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.):
Tækifærið, sem býðst í vákunni, er allt
of áhættusamt, svo að stjörnurnar ráð-
leggja eindregið að gína ekki við því,
þótt girnilegt sé. E'inhverjar breytingar
verða á heimilishögum þinum, og eitt er vist, að
því verður þú allshugar feginn. Heillatala 6.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Fram
að helgi verður vikan fremur'leiðinleg
og tilbreytingarlaus, og er jafnvel hætt
við því að þunglyndi þitt kunni að bitna
á þinum nánustu. En um helgina léttir
greinilega til, og eftir helgi leikur allt í lyndi fyrir
þér.
Bogmaðurinn (29. nóv.—21. des.): Þú
munt taka mikinn þátt í félagslifi i vik-
unni, og einnig á öðrum sviðum munt
þú láta til þín taka. Sem sagt, vikan
verður tíðindarik, og þú hefur í ýmsu
að snúast. Þú munt að vísu lenda í einhverjum
vandræðum út af skuld eða fjármunum, en úr
því rætist fyrr en varir. Heillalitur rautt.
Geitarmerkiö (22. des—20. jan.): Um
helgina berast þér mjög ánægjulegar
fréttir, og hætt er við að þú kunnir
þér ekki læti eftir helgina. Amor fer
ekki fram hjá þér i þessari viku, en ekki
munu samt örvar hans rista djúpt. Vertu varkár
i peningamálum og sóaðu ekki um efni fram.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb.):
Einhver leitar ráða hjá þér, en hætt
er við að Þú verðir of lítillátur og þorir
ekki að láta skoðanir þínar í ljós, og
er það miður, því að einmitt i þessu
sem þú berð talsvert skynbragð á — munt
þú geta gefið holl ráð.
FiskamerkiÖ (20. feb,-—20. marz): Þessi
vika verður mæðrum til mikilla heilla.
Karlmenn ættu að vera sem mest
heima við og láta sem minnst á sér
bera. Þetta er annars vika mikilla freist-
inga, og veikgeðja fólk getur lent í ljótu klandri.
Bréf £lð norðan Góða Vika. Ég sendi þér bréf, svo að ég komizt hjá að vaða fóstur-
jörðina upp í hné, ef ég kæmi í eigin persónu (og hvílík persóna).
Ég hefði mikinn hug á, að meðfylgjandi mynd kæmi í Vikunni við fyrstu hentugleika. Hún
þarf ekki að vera tímabundin, þótt hún sé af hljómsveit Svavars Gests með Djúpárdrengjum.
Fyrir mér vakir aðeins að koma hljómsveitinni í pressuna, þar sem ég tel hana vel þess virði
að minnast á hana.
Héðan er allt gott að frétta. Snemmbæran okkar bar tvíhöfða folaldi á miðjum útmánuði.
Jón í Seli fer á Búnaðarþingið eftir helgina, en hún Sigríður hans var að fá sendingu frá dótt-
ur sinni í Ameríku í síðasta mánuði: Ævisaga Elvisar Presleys í skinnbandi, og hefur bóka-
safn hreppsins mikinn hug á að kaupa bókina af henni. Gvendur hundahreinsunarmaður hef-
ur nóg að gera þessa dagana, eins og vant er á þessum tíma árs. Ef þú hittir þingmanninn
okkar blessaðan, minntu hann þá á kirkjuafleggjarann, við verðum að fá gert við hann á
næsta sumri. Það hefur enginn komizt til kirkju hér í fjórtán ár.
Vertu svo blessuð, Ijúfan.
Þaö var rétt fyrir jólin, aö viö vorum á ferö
á Eyrarbakka, og þá datt okkur í hug aö hafa
tal af Þórunni Gestsdóttur, en liún er ein merk-
ust kona í því plássi. Viö böröum aö dyrum hjá
Þórunni. Enginn svaraöi, en tveir ungir Eyrbekk-
ingar fylgdust meö feröum okkar og sögöu: —
Hún Tóta, cetli hún sé ekki aö gefa kindunum.
— Svo fórum viö í fjárhúsiö, og þar var Þórunn
meö laupana sína. Hún hefur níu kindur og heyj-
ar fyrir þder sjálf, þótt aöeins vanti tvö ár í
nírætt. Viö komum inn hjá Þórunni og þágum
kaffi; þaö var mjög kalt þennan dag. Hún kvaöst
úr Meðqllandinu, en var 25 ára, þegar hún kom
á Eyrarbakka og keypti sér þá lausakonubréf og
var stofustúlka hjá faktornum í „Húsinu". Þór-
unn giftist Ölafi Ölafssyni úr Rangárvallasfjslu.
Hann vann lengst af viö verzlun á Bakkanum
og sjómennsku í Þorlákshöfn og dó 19Jf7. Þórunn
hefur enn í dag lyklana aö „Húsinu“ og sýndi
olckur þaö góöfúslega. Okkur fannst, þegar viö
kvöddum hana, aö hún væri eins mikill 'ihluti af
þessu plássi og ibúöarhús Lefolís faktors meö vall-
grónum göröum í kring og brimiö, sem fylgt
hefur Eyrum frá öndveröu.
Þóruzin Gestsd.
átta um áttrætt