Vikan - 04.02.1960, Blaðsíða 2
Aðalútsala Verzlun V. Long Haínaríirði
Reykjavík Fólkinn hf.
Framleiðandi Litla vinnustofan Haínarfirði
l
l
%
%
%
%
1
I
%
1
t
I
Hergöngulög og stríðspolkar
Hafmeyjarmál
HVAÐ ER MENNTUN?
Ágæta Vika.
Mig langar til þess að fara í Verzlunarskól-
ann eða Samvinnuskólann? Hvor skólinn álítur
])ú að gefi Ijelri menntun? Eða lieldur ])ú, að
maður verði menntaðri að fara á tilsvarandi
skóla erlendis?
Óli B.
Við viljum alls ekki dæma um það Óli
minn góður, hvor skólinn veiti betri mennt-
un. En okkur grunar, að það sé með þig eins
og marga aðra, að þú ruglir saman lærdómi
og menntun. Þú ætlar scnnilega að afla þér
þekkingar og lærdóms á verzlunarmálum og
störfum verzlunarmanna, en þótt þú færir í
alla beztu skóla heimsins og lykir þaðan há-
um prófum, væri ekki endilega víst, að þú
menntaðist. Til eru hámenntaðir menn, sem
hafa sáralitla sem enga skólagöngu að baki
og langskólamenn, sem hegða sér eins og
dónar. Hvað er þá menntun? Halldór Kiljan
Laxness hefur skilgreint þetta allvel í nokkr-
um orðum um ömmu sína: „Ég hef mörgum
kynnzt sem kapp hafa lagt á bókvísi, en
þeir hafa oftast verið nokkuð mannúðarlitlir
í hugsjónum og nokkuð ofstopafullir innra
með sér, en snauðir að þeirri menningu
hjartans seni hún amma mín var gædd og
lýsti sér í gamansemi, elju, afskiptaleysi af
trúmálum, jafnaðargeði í sorgum, kurteisi
við bágstadda, hugulsemi við ferðamenn,
óbeit á leikaraskap, góðsemi við skepnur".
Menningu hjartans kallar hann það, og
ef til vill er það bezta menntunin. Annars
var ]>etta útúrdúr og ekki nákvæmt svar við
bréfi þinu, en því viðkomandi viljum við
aðeins taka fram, að skólar í verzlunarfræð-
um eru aðeins tveir og vafalaust báðir
ágætir.
TVÆIt MEÐ FÆTURNA UPP Á BORÐI ...
Vestmannaeyjum þ. 30-12-1959.
Kæri póstur.
Við sitjum hérna, tvær skvísur, með fæturna
uppi á borði og eymdarsvip á andlitinu.
Svo er mál með vexti, að okkur skortir nógu
sterk orð — til að finna að útvarpsþætti þeim,
sem nefndur er „Lög unga fólksins". En nú er
málinu þann veg komið, að við viljum snúa
nafni þáttarins algerlega við eftir efni |jví, sem
hann flytur, en það virðist aðalstarfsemi hans
að leika hergöngulög og stríðspolka — ásamt
dúettum úr óperum.
Okkur finnst satt að segja ekki svo mikið gert
fyrir okkur, „unga fólkið“ nú á dögum, að það
sé í sjálfu sér hlægilegt af Útvarpinu að vera að
eyða plötuspilurum, rafmagni og nálum í þann
óþarfa, sem þessi þáttur er, sem á að nafninu
til að vera fyrir „unga fólkið“, en ætti þá, eftir
innihaldi hans að dæma, að vera komið i kör.
Við viljum hiðja ykkur að koma þcssu á fram-
færi, svo hlutaðeigendur geti leiðrétt það sem
fyrst. Við viljum taka það skýrt fram, að í þætti
fyrir unga fólkið eigi eingöngu að leika lög
fyrir unga l'ólkið — það eru þau lög, sem það
V I K A N