Vikan - 04.02.1960, Síða 12
MEPKI 9
AÐ var gaman aB hitta Walker aftur, þótt
f J við höfum aldrei verið nánir vinir. Við
1r höfðum ekki sézt í nokkur ár — ekki síðan
hann var skipaður fulltrúi í brezka sendiráðinu
i Estakíu. Leiðir okkar — eins og flestra — lágu
saman á Piccadilly Circus.
-— Walker! varð mér að orði. Hvað rekur þig
hingað?
— Ég er i eins konar sumarleyfi, svaraði hann,
er við höfðum tekizt í hendur. Hvíld frá störfum
í hálfan fimmta mánuð.
Við röbbuðum saman um daginn og veginn
nokkra stund, og ég virti hann fyrir mér. Við
vorum mjög jafnaldra, ekki ólíkir á velli og margt
annað svipað með okkur, báðir í þjónustu ríkis-
stjórnarinnar, báðir komnir álíka langt upp í
metorðabrekkuna. Að vísu mátti kalla, að ég
hefði komizt sem svaraði sjónarmun fram úr hon-
um, en það var eflaust fyrir heppni fremur en
verðleika.
— Og hvernig líður þér? spurði hann. Ég sá
nafn þitt á heiðurmerkjalistanum. Ég óska þér
til hamingju.
— Þakka þér fyrir, svaraði ég. Jú, ég var
dubbaður til riddara brezka heimsveldisins, — vit-
anlega samkvæmt starfsaldrinum eingöngu ...
Heldur þú svo aftur til Estakíu?
—Jú, það geri ég, svaraði hann. Og það brá
fyrir stolti og hrifningu i rödd hans og svip, sem
ekki mundi hafa borið mikið á hjá mér af sama
tilefni. Og það er ekki eins og ég snúi allslaus
heim í þetta skiptið, bætti hann við og undirbjó
því næst fréttina með stuttri, en hátíðlegri þögn.
— Centurion . . . Merki níu . . .
Enn varð mér áð virða hann fyrir mér með
nokkurri forvitni. Þekking mín á bílum var að
vísu takmörkuð, en þó vissi ég nógu mikið til
þess, að ég skipaði Centurion í öndvegi, — við
hlið Rolis-Roýce og Bentley. Hins vegar fór ég
nærri um laun Walkers sem sendiráðsfulltrúa.
Það var ótrúlegt, að hann skyldi hafa efni á að
kaupa svo dýran bíl.
— Centurion hlýtur að vera ákaflega dýr, svar-
aði ég.
— Fimm þúsund sterlingspund og það meira
að segja að söluskatti frádregnum. Hann leit á
mig, og eftirvæntingin og tilhlökkunin, sem lýsti
sér í svip þessa fertuga, holdskarpa manns, hefði
kannski mátt kallast eðlileg. ef hann hefði verið
rúmlega tuttúgu árum yngri — Mér tæmdist
dálítill arfur, öldungis að óvörum. Við Jóhaflna
höfum ekki ... ekki eignazt börn, og svo kom
okkur saman um að verja fénu til kaupa á bíl.
Ég hef haft ágirnd á Centurion að minnsta kosti
í áratug ...
Enda þótt mér kæmi þetta að sjálfsögðu ekkert
við, gat ég ekki varizt þeirri hugsun, að þetta
væri r^ðleysi og fjársóun.
— Já, en þetta er mikill peningur engu að síð-
ur, mælti ég í viðvörunartón. — Heldurðu, að
bíllinn sé þess virði í raun og veru?
— Þú segir mér álit þitt, þegar þú ert búinn
að skoða hann. svaraði Walker. Ég pantaði hann
fyrir ári, og einmitt í dag á ég að veita honum
viðtöku, — daginn, sem leyfi mitt hefst. Ég er
á ieiðinni til þeirra. Þú ættir að koma með mér.
Ég tók ekki boði hans umsvifalaust. Ég gat
ekki enn varizt þeirri hugsun, að það væt-i ekki
sem bezt viðeigandi, að maður. sem hafði ekki
náð meiri frama í utanríkisþjónustunni, skyldi
leyla sér að kaupa svo dýran og mikils metinn
b'l. Og þar sem ég var sjálfur starfsnaður í ut-
anriidsmálaráðuneytinu, gat það ef til vill orðið
mér vafasamur ávinningur, aö ég blandaði mér
i þetta. Ef ég slægist í för með honum, mátti
segja sem svo, að ég hefði þar með lagt biessun
mína yfir þetta tiltæki hans. En svo þóttist ég
sjá það í hendi mér, að eiginlega bæri mér skylda
til að hafa gát á starfsmanni i utanrikisþjónust-
unni, sem hagaði sér svo undarlega, og varð því
úr. að ég tók boði hans með ánægju.
— Þessir bílar eru að heita rná handsmíðaðir,
tók hann til máis, er við lögðum af stað Þess
vegna eru þeir svona dýrir. Gg það hafa menn
sagt mér, að það sé ævintýri líkast að aka slíkum
bíl, svona ámóta munur og að setjast á bak veð-
hiaupagæðingi, eftir að hafa lötrað langa leið
á syfjuðum asna.
Hann gekk svo hratt, að ég varð að hafa mig
allan við til að dragast ekki aítur úr, og það
var ekki laust við, að fólk á gangstéttinni væri
farið að veita okkur athygli, Ég hnippti því í
hann, svo að lítið bar á, og bað hann að stilla
ákeíð sinni í hóf, — hann væri búinn að bíða í
ár, og þá gerðu nokkrar mínútur ekki svo mik-
inn mun.
Hann kinkaði kolli. — Eiginlega fulla fjórtán
mánuði, sagði -hann. Þeir fara sér ekki óðslega
að neinu, þarna hjá Centurion Fyrst velur maður
þann yfirbyggingarstíl, se.n manni lízt bezt á, því
næst innbúnað allan, lögun sætanna litasamsetn-
inguna, — segir til um, hvort maður vill hafa
innbyggt viðtæki, miðstöð, loftkælitæki, ferða-
töskur, sem falla í farangurshólLð, innbyggðan
kokkteilskáp og annað þess háttar. Og svo, þegar
maður hefur valið um og genglð nákvæmlega frá
öllu, þannig að bíllinn verði að öilu leyti eins og
rnaður kýs helzt, — þá verður maður að taka
Hfinu með ró og bíða, þangað til að manni kemur
í röðinni.
— Þeir eru vist mjög eftirsóttir, þessir .. . þess-
ir dýrgrjpir . .
Enn kinkaði Walker kolli Það varð mér
oinrnitt til heppni, að ég dvelst þarna í Estakíu.
Fyrir bragðið er mi.m bíll flokkaður undir út-
flutningsákvæði. Annars hefði ég orðið að bíða
mun lengur en fjórtán mánuði.
1 þeim svifum kom mér aftur i hug smáatriði
i frásögn hans, sem vakið hafði forvitni mína í
svip -— Þú minntist á „merki níu“, ef ég man
það rétt. Er þá um níu eða jafnvel fleiri gerðlr
að velja?