Vikan - 02.06.1960, Blaðsíða 13
CHARLES ATLAS
67 ára og enn í fullu fjöri
Charles Atlas 67 ára og enn í fullu fjöri.
marki, svo að hliðstæðra dasrna varð aðeins leita>
meðal frægustu kvikmyndaleikara.
Eftirfarandi „mál“ veita nokkra hugmynd um
alhliða þroska hans og óvenju-samræmdan líkams-
vöxt, hegar hann var upp á sitt bezta: Háls — 43
sm, upphandleggur — 43 sm, framhandleggur —- 37
sm, barmur óþaninn — 119 sm, barmur þaninn -
137 sm, mitti -— 81 sm, læri — 59 sm, kálfi — 41
sm, hæð — 178 sm, þyngd — 90 kg. Enda þótt hann
hefði ekki hin tröllauknu ,,mál“ Herkúlesar, var
hann viðurkenndur og dáður sem íturvaxnasti karl-
maður í heimi, áriö 1921, og réðu hin samræmdu
vaxtarhlutföll hans þar mestu um. Þá hlaut hann
og verðlaun sem íturvaxnasti karlmaóur Ameriku ár-
ið 1922. E'ftir að hann hafði náð þessum árangri,
sem opnaði honum leið til sívaxandi fjáröflunar, hafði
allur almenningur minni kynni af honum sem ein-
staklingi, en hins vegar varð nafn hans smám saman
allt að þvi hugtak yfir líkamsfegurð. afl og hreysti
meðal enskumælandi þjóða.
KOM SKEMMTILEGA Á ÓVART.
Eg hef löngum dáðst að líkamsbyggingu þessa
manns. Iturvöxtur hans hreif mig mun meira en
tirikalegur skrokkur og þrútnir vöðvar annarra nafn-
kunnra kraftajötna. Samt sem áður hlýt ég að játa,
að ég bjóst við að komast að raun um, að hann
væri nú aðeins svipur hjá sjón að líkamsburðum og
glæsileik hjð þvi, sem var. Manni getur orðði að
spyrja, hvers megi vænta af rúmlega sextugum manni
á því sviði — án tililts til þess, hvaða starfa hann
hefur haft um ævina. En ég verð að viðurkenna, að
hinn forni garpur, Atlas, er i rauninni stórum glæsi-
legri nú en jafnvel þær Ijósmyndir leiða í ljós, sem
grein minni fylgja. Hann er karlmannlegur með af-
brigðum. Ekki vottar fyrir hrukkum í andliti hans,
hárið er hvergi farið að þynnast., augun skær, tenn-
Enginn randi fyrir hann, að standa
á höndNm 67 ára gamall.
urnar hvitgljáandi eins og í ungum manni. Röddin
er djúp og karlmannleg, og hann talar af sliku fjöri
og ákefð, að manni gleymist samstundis, að þetta er
maður kominn á efri ár. Hann tók það þegar fram,
að fjör sitt, lifsgleði og þróttur væri engu minna nú
en fyrir þrjátíu árum, — lýsti blátt áfram yfir því,
að hann fyndi það alls ekki, að hann væri hótinu
eldri en þá, og ég er sannfærður um, að honum
var þetta alvara.
Að sjálfsögðu geri ég ráð fyrir, að lesendum leiki
forvitni á því — eins og mér, — hvort hann sé eins
iturvaxinn og hann var og hvort vöðvabygging hans
hafi látið á sjá. Um það er sannast að segja, að þess
gætir vart. Vöðvalagið á fótleggjum hans hefur
haidizt óbreytt, en hálsinn hefur örlltið grennzt. Um-
mál barmsins reyndist vera 117 sm og upphandleggs-
ins 41 sm. Hann er nú 86 sm I mittið. Hæðin og
þyngdin hafa ekkert breytzt. Þetta verður varla
kölluð míkil afturför á fullum þremur áratugum —
eða hvað?
Charles Atlas er enn sem fyrr aðdáunarverð ímynd
karlmennsku og hreysti. Hálsinn er beinn og hrukku-
Framhald á bls. 32.
aðalsmenn
kaffið
Við erum á leið upp Vatnsstíginn, þegar
við verðum fyrir því óhappi, að það fer
að hellirigna, og þar sem við erum alls
ekki sammála spakmælinu „enginn er
verri þó hann vökni“, hröðum við okkur
í fyrsta skjól, sem fyrir okkur verður.
„Rydens-kaffi“ stendur þarna skrifað á
einu húsinu, og þar knýjum við dyra —
eða réttara sagt stormum inn og vonumst
jafnvel eftir að fá lieitan kaffisopa okkur
til liressingar. En okkur bregður í brún,
því þarna inni er hvorki á boðstólum heitt
kaffi né neinar veilingar, cn aftur á móti
sjáum við heila stafla af kaffibaunum og
öðrum óunnum kaffivörum.
— Við erum frá Vikunni.
— Nú, já.
— Hvaða vél er þetta, sem þið eruð að
vinna við?
— Þetta er kaffibrennsluof«.
— Hver á þetta fyrirtæki hér»*?
— Hann heitir Carl Ryden.
— Er liann við núna?
— Nei, hann skrapp eitthvað frá.
— Þið eruð kannski synir hans?
— Nei, ekki erum við það — e« við eruai
bræður.
— Með leyli að spyrja, hvað heitið þið?
— Örn og Falk Kinsky.
:— Nú, ekki islenzkir?
— Við erum austurrískir í föðurætt, en eij-
um islenzka móður.
— Eru foreldrar ykkar búsettir hér á íslandi?
— Faðir okkar var hér löngu fyrir stríð og
lærði norrænu við háskólann hér, en er núna
búsettur í Múnchen. Hann er mjög góður is-
lenzkumaður og talar málið jafnvel betur held-
ur en margur íslendingur. Hann hefur m. a.
þýtl mörg af kvæðum Einars Benediktssonar á
erlend mál. Annars er hann læknir og þar að
auki doktor i heimspeki, sálarfræði og lögfræði.
— Austurriskir, já. Það rennur ef til vill að-
nlsblóð í æðuin ykkar?
— Við erum vist komnir af elztu aðalsætt i
Evrópu — en við gefum nú ekki rnikið fyrir
svoleiðis.
Þeir bræður höfðu sýnt okkur. hinar marg-
víslegu vélar og áhöld, sem notuð eru við kaffi-
vinnsluna — kvörn, sem kaffið er malað i,
kaffibætisvél, pökkunarvél o. fl., þegar sjálfur
eigandinn birtisl í dyrunum — og við snúum
máli okkar til hans. Fmmhald á bte. SS.
Efri myndin: Carl Ryden.
Neðri myndin: Bræðurnir auaturrískn,
og Falk Kinsky.
V I Iv A N