Vikan


Vikan - 03.11.1960, Blaðsíða 16

Vikan - 03.11.1960, Blaðsíða 16
Matseðill sunnudagsins BLÓMKÁLSSÚPA. 1 blómkálshöfuð, 1% 1 kjötsoð, 30 gr smjörlíki, 30 gr hveiti, 1-—2 eggjarauður, salt, kjötkraftur, (1—2 msk. sherrý, ef vill). Bezt er kjötsoð af kálfa- eða nauta- beinum. Soðið er síað og jafnað með smjörbollu, sem búin er til þannig, að smjörlíkið er hrært lint, hveitið hrært út i og búin til bolla, sem sett er í sjóðandi vökvann. Þegar súpan er jöfnuð, er blómkálið, sem á að vera I hríslum, látið sjóða með í 3—5 mín. Eggjarauðurnar eru hrærð- ar með saltinu í súpuskálinni, súp- unni jafnað þar í smátt og smátt. Síðast er blómkálið látið i ásamt sherrýinu, sé það notað. Borðað með hveitibrauði, bollum eða ostastöngum. OSTASTENGUR. 100 gr hveiti, 100 gr smjörlíki, 100 gr rifinn ostur, % tesk. salt (paprika á hnifsoddi), % tesk. lyftiduft, % egg eða 1 tesk. rjómi. 1 hveitið er blandað lyftidufti, salti, papríku og osti. Smjörlíkið er skorið í með hnif, vætt í með eggi eða rjóma, hnoðað fljótt saman, vafið í mjóar lengjur (8—10 cm langar), dálítill rifinn ostur látinn á hverja lengju og þær siðan bakaðar við hægan hita, þar til þær eru ljósbrúnar. SNYRTIVÖRUR KÁLFSK JÖ TSSNEIÐ AR m/sftrónu (fyrir 4). 6—8 sneiðar barið kálfskjöt, 1 egg, 3—4 msk. brauðmylsna, salt og pipar, 150 gr smjörlíki, 1—2 sítrónur, beinlaus sild, kapers- korn, soðin hrísgrjón. Kjötsneiðunum er velt úr þeyttu eggi og brauðmylsnu, steiktar við hægan hita 8—10 min., þar til þær eru meyrar. Salti og pipar er stráð yfir, raðað á heitt fat, sitrónusneið ásamt síld og kapers sett á hverja kjötsneið. Með þessum rétti er ágætt að hafa soðin hrísgrjón. 1 stað þeirra má einnig hafa soðnar kartöflur og soðið eða hrátt grænmeti. Siðast er örlítið smjör sett á pönn- una ásamt 1—2 msk. af vatni, suðan látin koma upp og hellt í sósukönnu. Gott er að jafna sósuna með 1—2 msk. af rjóma. ÁVEXTIR í RJÓMA. Saman við þeyttan rjóma er bland- að skornum banönum, eplum, appel- sínum, sykri og brytjuðu súkkulaði, — látið í ábætisglös, skreytt með vín- berjum, ribsberjum eða öðrum falleg- um berjum og rifnu súkkulaði. Bezt nýtilbúið. Ath.: Nota má hvaða ávexti, sem er, nýja eða niðursoðna. Svo að haldið sé áfram að kynna ykkur snyrtivörur, eru nú nýkom- in á markaðinn efni til að hreinsa af varalit og augnabrúnalit. Þessu munu margar konur taka feginshendi, því að augnabrúnalit t. d. er alveg ófært að taka af með sápu að staðaldri, og ekki er betra að ná varalitnum af. Notkunarreglur eru þannig, að þið berið efnið á, hvort sem er, látið það liggja dálitla stund og hreinsið það siðan af. Hvorugt þessara efna á að þurrka húðina, og hvort glas um sig kostar 34,10 kr. Hér er svo önnur góð nýjung og þá sérstaklega fyrir þær, sem vanar eru að skola hár sitt upp úr bjór. Það er bjór-shampoo, sem fæst I sér- staklega skemmtilegum umbúðum og ótrúlega drjúgum. Glasið kostar ekki nema 17,20 kr. og er því sérstaklega ódýrt af shampoo að vera. Þá er næst að telja nýjung í sam- bandi við varalit, Perl silberstift. Það er nokkurs konar varalitur, sem bor- inn er á, eftir að þið hafið litað var- irnar með þeim lit, sem þið eruð vanar að nota, og gefur vörunum silfurgljáandi blæ líkt og af perlum, eins og nafnið ber með sér. Eftir að það hafið einu sinni notað þetta stifti, getið þið ekki án þess verið. Vara- litur þessi mun kosta um 80,00 kr. og er framleiddur af Margarete Astor. Og siðast en ekki sízt, ætla ég svo að minnast á Pretty Feet, þennan undursamlega vökva, sem fjarlægir dautt og hart skinn algerlega fyrir- hafnarlaust. Nú þarf enginn að vera með hrjúfa og leiðinlega fætur eða olnboga. Kaupið ykkur aðeins eitt glas .af Pretty Feet, það kostar að- eins um 30,00 kr. glasið. Fleiri nýj- ungar, held ég, að ég hafi ekki að sinni í pokahorninu, en bráðlega fáið þið að heyra eitthvað um nýjar hreinlætisvörur. -jl- Kanína búin til úr dúskum. Það getur verið skemmtilegt að búa til slíkt leikfang úr garnaf- göngum. Klippið tvö hringlaga pappaspjöld á stærð við áætlaðá stærð dýrsins. Klippið síðan á þau tvö göt nokkuð stór. Leggið nú spjöldin saman, og saumið utan um þau bæði í einu. Sjá I. mynd. Hafið garnið eins marg- falt 1 nálinni og unnt er. Þegar gatið er alveg uppfyllt, er klippt á milli spjaldanna eins og II. mynd sýnir. Þá er sterkum þræði vafið milli spjaldanna, hert fast að og linýtt. Sjá III. mynd. Klippið nú allar ó- jöfnur af dúskinum og snyrtið hann vel. Að síðustu er hann látinn yfir gufu. Búið nú til fjóra misstóra dúska Framhald á bls. 24. Þegar þau koma sorg- mædd heim úr skólanum. Pétur var l leiOu skapi, þeg- ar hann kom heim úr skólan- um, og mamma hans þekkti liann sv.o vel, aO liún vissi, aO eitthvaö haföi komiö fyrir frá því í morgun, þegar hann hopp- aöi glaöur niöur tröppurnar. Hana langaöi mest til aÖ taka hann í fangiö og vera góö við liann, en þá finnst Pétri hinni nýfengnu viröingu sinni sem skólapilti misboöiö. og þess vegna fór hún aöra leiö. ÞaÖ er leiöinlegt, ef þú ert þreyti- ur. Pétur, því aö ég œtlaöi aö biöja þig um aö fara í sendiferð fyrir mig. En þaö er víst bezt, að ég fari sjálf. Pétur hafði þá aldrei fariö svo langt einn eins og í þessa sendiferð. Hann var yfirleitt ekki vanur aö fara i bæinn, og einmitt þess vegna var hann œstur í aö fara Hálf- tíma seinna kom hann stoltur og ánægöur aftur. Hérna, mamma, þetta er afgangs. ÞaÖ var fullt i búöinni, og ég fékk nú™er o. s. frv. o. s. frv. Eins og JiiÖ sjá.iö, haföi ferö- in heppnazt, eins og ráö var gert fyrir. Drengurinn haföi leyst verkefni, sem krafðist einfhvers af honum, en samt elcki of mikils. Viö þetta haföi sjálfstraust hans vaxiö, og hon- um fannst hann geta staöiö á eigin fótum. þó að eitthvað hefði gengiö illa i skólanum. Engin móöir getur verndaö barn sitt fyrir öllu mótlæti, en hún getur hjálpað því til aö komast yfir þaö og sneiöa hjá því. 1 hvert skipti, sem gengur illa fyrir okkur, þörfnumst viö þess aö vera fullvissuö um, að þrátt fyrir allt séum viö t.il einhvers nýt. Þannig kom sendiferöin Pétri i gott skap aftur. Heföi. liann ékki fengiö þetta tækifœri til uppreistar, heföi hann liklega valdiö óþæg- indum þaö, sem eftir var dags- ins. Kannski heföi hann byrjað aö stríða litlu systur eöa þrjózkast viö venjulegum hlut- um eins og að þvo sér hendurn- ar eöa skipta um skó — eöa þá aö hann heföi bara veriö leiöin- legur og ekki i skapi til leika sér. j aö 16 VUCAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.