Veðrið - 01.04.1965, Síða 3
VEÐRIÐ
TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI
KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 40.00
1. HEFTI 1965 10. ÁRGANGUR
RITNEFND: JÓN EYÞORSSON
FLOSl H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
HLYNUR SIGTRYGGSSON
AFGREIÐSLUSTJÓRI:
GEIR ÓLAFSSON
DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131
JÓN EYÞÓRSSON:
Ur ýmsum áttum
Vindstig og nöfn þeirra
Eftir að símasamband komst á milli íslands og útlanda, var tekið' að senda héð-
an veðurskeyti. Lengi vel voru aðeins 4 skeytastöðvar: Reykjavík, ísafjörður, Akur-
eyri og Seyðisfjörður. Sá háttur var líka tekinn upp að skrifa á blað veðrið á þess-
um stöðum og slá upp á almannafæri í Reykjavík og liinum skeytastöðvunum.
Er mér ekki ljóst, hvort danska veðurstofan eða íslenzk stjórnarvöld gengust
fyrir þessu. A blöðum þessum var veðurhæð tilgreind í tölum eða vindstig-
um frá 0—12, og þurftu þvl að fylgja skýringar. Mér hefur verið sagt, að Jón
Ólafsson ritstjóri hafi verið fenginn til þess að ákveða nöfn á vindstigunum.
Síðan hcfur þeim nöfnum vreið lialdið óbreyttum að mestu. I>au eru talin
hér á eftir og jafnframt tilgreindur vindhraði í sjómílum á klst. (hnútum) og
metrurn á sekúndu, eins og nú er, en tölugildinu hefur verið breytt nokkuð síðan
í aldarbyrjun. Vindstig 0 l°gn 0- 1 hnútar 0- 0.2 m / sck
— 1 = andvari 1- 3 — 0.3- 1.5 —
— 2 = kul 4- G — 1.6- 3.3 —
— 3 = gola 7-10 - 3.4- 5.4 —
— 4 = kaldi 11-16 — 5.5- 7.9 —
- 5 = stinningsgola 17-21 - 8.0-10.7 —
— 6 stinningskaldi 22-27 — 10.8-13.8 —
— 7 = snarpur vindur 28-38 — 13.9-17.1 —
— 8 = hvassviðri 34-40 — 17.2-20.7 —
— 9 = stormur 41-47 — 20.8-24.4 —
— 10 = rok 48-55 — 24.5-28.4 —
— 11 = ofsaveður 56—63 — 28.5-32.6 —
— 12 = lárviðri 64-71 — 32,7-36.9 —
Meðan vindmælar tíðkuðust ekki, var þýðingarlaust að hafa vindstigin fleiri.
VEÐRIÐ
3