Veðrið - 01.04.1965, Síða 21

Veðrið - 01.04.1965, Síða 21
ingu um bylgjurnar. El engin ský eru, vantar Jressi hættumerki. I skýjakambinum er oft ísing og alltaf niðurstreymi lil hlés, og er Jjað því varhugavert, þegar flogið er á móti vindi. Uppstreymið áveðurs er hins vegar oft til bóta, þegar flogið er und- an vindi. Hvirfilsveipurinn hlcmegin við hindrunina er alltaf hættulegur vegna kviku og sviptivinda, þótt reyndir flugmenn hafi getað notað sér uppstreymið í iionum til Jjcss að losna úr mestu kvikunni. í bylgjuskýjunum sjálfum getur stund- um verið óþægiieg kvika, og gefur útlit skýjanna olt vísbendingu um Jjað, eins og áður hefur verið minnzt á. Þegar flogið er á móti vindi, er Jjað niðurstreymið, sem flugmenn varast sízt. Erfitt er að gefa nokkra algilda reglu um Jjað, live mikið Jjetta niðurstreymi er. Dr. Hans A. Panofsky hefur rannsakað Jjetta talsvert og sett upp eftirfarandi for- múlu fyrir þeirri hæð (H) sem flugvélin „missir“: Hér er h = fiæð fjallgarðsins yfir láglendi. V . h V = vindhraði í hæð við fjallsbrún. S—V S = liraði ílugvélar H verður minna, Jjegar ffogið er undan vindi. Ef við tökum dæmi um Jjetta og setjunr. V = 50 hnútar, h = 4000 fet, og S = 140 mílur (þær tölur geta vel átt við íslenzka staðhætti) læst: H 5 . 4000 200.000 140-50 _ 90 2200 fet Þar eð þessi grein er orðin nokkuð löng, læt ég Jjað liíða seinni tíma að ræða nánar um fjallabylgjur yfir íslandi. Þeim, sem vilja kynna sér þetta cfni nánar, er bent á: Lee waves in the Atmosphere eftir R. S. Scorer í Scientific American. Marzheftið 1961. Meterological l’roblems in Forecasting Mountain Waves eltir Dever Colson í Bulletin of the American Meteorological Society. Októberheftið 1954. Fannir í Esju Sumarið 1964 hvarf fönnin úr Kerhólakambi 10. júlí. Úr Gunnlaugsskarði var hún horlin fyrir víst 16. ágúst, en hafði Jjá verið mjög óveruleg og dökkleit síðan um mánaðamót. Vorið 1964 sagði mér Jón bóndi Erlendsson á Mógilsá, sem Jjar liafði búið unt langan aldur, að fönnin í Gunnlaugsskarði mundi aldrei hala horfið að sumar- lgai fyrr en 1923 — í fyrsta lagi, en eftir 1930 hafi hún mjög oft horfið. Enn hafði Jón Jjað eftir Kolbeini Eyjóllssyni, sem bjó í Kollafirði lrá 1863 og fram um aldamót, að fönnin liefði aldrei liorfið úr Gunnlaugsskarði á Jjví tímabili. J- Ey. VEÐRIÐ — 21

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.