Veðrið - 01.04.1965, Síða 29

Veðrið - 01.04.1965, Síða 29
sólarhring. Mun láta nærri, að straumhraðinn só 5—G sjóm/sólarhring nærri lancli, en (i—10 mílur á djúpsævi. Að vetrinum er ]>vi nær óslitin spilda af lagnaðarís eða fastís og þéttu ísreki með fram Grænlandsströnd, en ísjaðarinn, sem að nkkur veit, er brotinn og óreglulegur með vökum, vogum, nesjum og flóum. — I>egar vorar, fer ísinn fljót- lega að grotna, leysast sundur og verða hreyfanlegri. Þá er ísbeltið livað breið- ast og mest hætta á, að ísrek nemi hér við strendur, sem kunnugt er. J NA-átt eða N berst þó vart ís hér að ströndum, nema ísröstin sé óvenjulega breið og liggi langt austur á hafið milli Jan Mayen og Islancls. Komist ísbrúnin þá of nærri annesjum, getur Atlantshafsstraumurinn náð til hennar og drifið hana austur með landi og fyllt flóa og firði. — En langalgengast er, að SV eða V-átt á Græn- landshafi hindri eða tefji ísrekið suður á bóginn og slíti úr því spildur, sem lóna undan vindi, unz þær lenda í austurfallinu út af Vestfjörðum. Jakatoginn sígur suður með Grænlandsodda á útmánuðum, lendir þar í hlýrri straumkvísl og berst vestur um Hvarf og fyrir mynni Júlianehábflóa. í maímán- uði nær ísrekið allajafna til Vestribyggðar hinnar fornu. Þetta ísrek nefna Danir og Norðntenn stóris til aðgreiningar frá ísflögum þeirn, er myndast í grænlenzkum fjörðum og eru aðeins 100—200 cm á þykkt. Vegna stóríssins verða skip, sem leita hafna á SV-Grænlandi, að sigla 30—00 sjóm suður fyrir Hvarf að vorinu og vest- ur með ísröstinni hið ytra, áður en þau snúa lil lands. — í norðanverðri Vestri- byggð eða í grennd við Godtliáb er vart um annan ís að ræða en fjarðaís og borgarís. Þegar líður á sumarið, grotnar ísinn og bráðnar svo ört, að lítið eða ekkert ísrek kemst suður fyrir Angmagsalik. f september er oftast íslaust með strönd- inni langt norður fyrir Angmagsalik, að undanskildum strjálum borgarís. Unt þær mundir verður ísinn norður með allri ströndinni svo sundurlaus, að skijt komast oftast gegnum hann allt norður á 75. breiddarstig og stundum miklu norðar. Isröstin við A-strönd Grænlands hefur á unclanförnum árum verið mjórri en áður var venjulegt, og jafnframt hefur ísrek hér við lantl horfið úr sögunni að mestu. Þetta stendur án efa í sambandi við hækkaðan árshita í norrænum lönd- um og höfum. Hér á landi hefur meðaljagsliiti einstakra mánaða hækkað um 0.5—1.5° C frá því sem var á árabilinu 1870—1900 — og þó er hitaaukningin stór- tækari á Grænlandi og Svalbarða. — Þessi hitaaukning hefur þegar valdið veru- legum breytingum á núttúrufari — lifandi og dauðu — í norrænum löndum, en þar er komið að öðru og víðtæku efni, sem hér verður ekki rakið. En því meir, sem ég hef fengiz.t við athuganir á veðurfari, ísreki og jöklum, því meir hef ég sannfærzt um ]>að, að tímabilið Irá 1000—1900 (eða 1920) ltafi verið sérstakur harðindakafli í ævi lands og þjóðar og megi því frá okkar bæjar- clyrum séð vel kallast „ísöld hin minni" eða „ísöld hin síðasta". VEÐRIÐ — 29

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.