Veðrið - 01.04.1965, Side 30

Veðrið - 01.04.1965, Side 30
JÓNAS JAKOBSSON: Hitastig yfir Keflavík Sumarið 1964 var í kaldara lagi, eins og kom frarn í síðasta liefti Veðursins, en þar enduðu hitaritin í lok september. Októbermánuður varð Itins vegar rétt við meðallag. Hann hófst með umhleypingakafla, sem stóð í hálfa aðra viku. Fyrri hluta þess kafla var hér aðallega suðlægt hafloft, en seinni lilutann frá hafinu skammt norður undan. Miðhluta mánaðarins voru stillur. Þá var ráðandi loft frá naesta nágrenni landsins, hitasveiflur litlar og oft fegursta haustveður. í lok þriðju vikunnar kom mikil lægð vestan ylir sunnanvert Grænland. Hún fór fyrir norðan Jaijd og olli hér mikili úrkomu og roki. í kjölfar hennar kom loft norð- vestan frá Grænlandi og með því mesti kuldakafli mánaðarins. Hann stóð þó ekki nema / hálfa viku. Þá hlýnaði á ný og hél/t svo til mánaðamóta. Nóvember hófst með hlýindiskafla, sem stóð i nærri tvær vikur. Hingað til lands lágu þá loftstraumar Iangt sunnan af hafi, því að stórar lægðir voru yfir hafinu suður af Grænlandi, en hæð hélzt yfir Bretlandseyjum. Hinn 13. hreyfðist djúp og stór lægð til austurs fyrir sunnan landið og var komin norðaustur að Lófot hinn lö. Þessa daga var því vindur norðaustlægur. Loftstraum lagði hingað frá hafísbreiðunni, sent jafnan er undan strönd Norður-Grænlands. Um þetta leyti mun hún þegar liafa verið orðin breiðari en venjulega á þessum árstíma, svo að kuldakastið, sem fylgdi norðanáttinni varð beldur biturt. Fljótt hlýnaði á ný, Jjví að strax upp úr miðjum mánuðinum kom lægð úr suðvestri. Hitinn í 1500 metra hæð hækkaði um 17 stig á tveimur sólarhringum, og neðar varð liita- aukningin svipuð. 1 fjórðu vikunni blés kalt éljaloft vestan ylir Grænlandshaf í fyrstu, en síðar kólnaði meir, því að lægð við Skotland dró norðanloft suður yfir landið. Tveim dögum lyrir lok mánaðarins slotaði kuldunum, og niðurstaðan varð sú, að nóvember varð liálfu öðru stigi hlýrri við jörð en að meðaltali næstu tíu ár á undan. Hinsvegar varð hitinn í tveggja kílómetra hæð örlítið lægri en meðaltalið. í desember var nokkru kaldara en í meðallagi. Við jörð munaði 1,7 stigum, 1,3 í eins knt hæð og 0,7 í tveggja km hæð. Fyrstu vikuna var löngum vestlæg átt og éljagangur. Setti J)á niður nokkurn snjó, sem hélzt að miklu leyti mánuðinn út. Mun Jxið hafa valdið hinum hlutfallslega lága Itila við jörð. í annarri vikunni blés vindur lengstum á norðan, og |i;i var mesti kuldakafli mánaðarins með lág- marki hinn 12. Þriðja vikan varð hlýjust, enda barst Jiá hingað lolt langt sunn- an af hafi, t. d. hinn 18. og 20. frá stöðum, sem liggja meira en 2000 km sunnar en ísland. Lægðin, sem Jjessu olli rétt lyrir sórhvörfin, barst austur lyrir landið og olli norðan kulda á Þorláksmessu og aðfangadag jóla, en siðustu viku ársins var austanátt ríkjandi og færði með sér mildara lolt af liafinu austur og norð- austur af landinu. 30 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.