Veðrið - 01.04.1968, Side 15
KNÚTUR KNUDSEN:
Haustið og veturinn 1967—1968
Október. Fyrsta dag mánaðarins var hvöss N átt nyrðra og snjóaði niður í miðj-
ar hlíðar, en Siglufjarðarskarð lokaðist. Síðan var heldur hlýtt og breytileg átt
lram til 12.
Eftir það má scgja, að NA átt hafi verið ríkjandi út mánuðihn. Fyrsti snjórinn
léll í Reykjavík lö. okt. og næstu nótt varð mjög kalt. Víðast á landinu komst
frostið í um 10 stig, en á Suðurlandsundirlendinu í 14—19 stig. Þetta mun vera
mesta frost í október í marga áratugi. Fjallvegir tepptust oft nyrðra í síðari hluta
mánaðarins og voru víða ófærir í lokin. Úrkoma var rnikil á norðaustanverðu
Iandinu, en með minna móti á Suður og Vesturlandi. Hiti á landinu var um
2 gráður undir meðallagi.
Nóvember. Eins og mánuðurinn á undan var nóvember um 2 gráðum kaldari
en í meðalári. Tíðin var hins vegar óhagstæðari bæði til sjós og lands. Um-
lileypingar voru meiri, stærri og tíðari sveiflur í hita og vindátt og stormasamt
að auki. Snjór var mikill og fjallvegir oft ófærir. Frost var liart á stundum, eink-
um síðustu dagana, eftir að djúp lægð fór norðaustur lyrir sunnan land. Mest
varð þá lrostið í byggð í Reykjahlíð við Mývatn, 22 st. í kjölfar þessarar djúpu
lægðar fylgdi N stormur á Austurlandi og fauk þá þak af söltunarhúsi á Seyðis-
lirði. SV stormur olli stórtjóni á ísafirði og víðar 18. nóv. Þetta var og hlýjasti
dagur mánaðarins og komst hitinn í 17 st. á Seyðisfirði.
Desember var um margt líkur mánuðinum á undan, umhleypingasamur og hit-
inn álíka langt undir meðallagi. Hlýtt var 2. des. og aftur dagana 9.—12. og þá
fylgdi mikil rigning á Suður- og Vesturlandi. Stórflóð hlupu víða í ár, t. d. norður
í Skagafirði og suðvestan lands. Hins vegar var N átt með talsverðu frosti og
hríðarveðri nyrðra 5.-8. des. Hlýindunum lauk skyndilega 13. des. en þá brast á
með stórhríð fyrir norðan og frysti um allt land.
Þetta veðurlag leiddi af sér mikil svellalög og hagbönn. Veður var mjög óstöð-
ugt um jólin og næstu daga þar á eftir. Ýmist S átt og þíða eða N átt með all-
miklu frosti. Stórhríðarveður var norðan til á landinu 27. og aftur 30. Síðasta dag
ársins snjóaði víða um land með A og síðar NA átt og frostið fór vaxandi. Fregnir
bárust af stökum haflsjökum og spöngum af og til í mánuðinum.
Janúar. Fyrstu 6 dagana var vindur af N og siðar NA. Norðan lands og austan
snjóaði flesta daga, en einkum þó 2. og 3. Þá var frostið um 15 stig og víða storm-
ur. Stórhrfð var á Norðurlandi og víða svo mikill skafbylur á Suðurlandi, að
ekki sá úr augum. Allir vegir að kalla voru tepptir á Vestfjörðum, Norður- og
Austurlandi. fs lagðist fyrir mynni Isafjarðardjúps svo að bátar komust eigi á
mið sín. Náði íshrafl suður á móts við Onundarfjörð. Sunnudaginn 7. jan. var
vindur austanstæður, þurrt og 10 st. frost fyrir norðan, en á svæðinu í kring um
VEÐRIÐ
15