Veðrið - 01.04.1968, Blaðsíða 28

Veðrið - 01.04.1968, Blaðsíða 28
ÓSKAli STEFÁNSSON frá Kaldbak: Gamlar minningar um tíðarfar Þriðja janúar síðast liðinn var dimm- viðris-stórhríð liér norðaustanlands. Áttin var norðvestlæg og frostið 17 st. Ég var á heimleið frá beitarhúsum. Ég átti móti veðri að sækja. Svo mikið var hvassviðrið, að mér var naumast stætt, enda liált undir fæti. Þegar leiðin var um jrað bil hálfnuð, fór ég að verða þess var, að mig var farið að kala í andliti. Ég minntist Jtess ekki að hala orðið fyrir Jrví síðan vetur- inn 1918. Þetta ferðalag mitt varð Jrví til Jtess að minna mig á svipað ferðalag fyrir 50 árum síðan. Ég hirti Jxi einnig fé á beitarhúsum. Þá Jrurlti ég oft að verja mig fyrir kali. Allt í einu rifjaðist |>að upp fyrir mér Jtarna i stórhríðinni í vetur, að ég ætti einhversstaðar í handraða gömul blöð, sem á væri skrifað eitthvað um veturinn 1918. Mig óraði fyrir Jjví, meira að segja, að í þeim blöðunt væri auk þess minnzt lítillega á næstu misseri [>ar á undan. Jú, J>að stóð heima, blöðin fann ég. Þau voru orðin gul af elli eins og höfundurinn, en gátu [>ó staðið skilum á J>ví, sent J>au höfðu að geyma. Ég ætla að gamni mínu að skrifa J>að upp að nýju. Það sýnir J>ó að minnsta kosti, að „fósturjörðin fríð og kær“ er æ hin santa, J>ó að árin líði. En J>að er meira en liægt er að segja um blessuð börnin hennar. — Eins og mig minnti hafði ég skrifað í fyrrnefnd blöð hið helzta um tíðar- l'arið allt frá byrjun sumarsins 1915 og fram í ntiðjan apríl 1918. Ank J>ess hafði ég skrifað dagbók, sem tók yfir fjóra fyrstu mánuði ársins 1911. Ég ætla þá fyrst að líta yfir J>essa fjóra mánuði 1911. Allan janúarmánuð og allan febrúarmánuð líka, hér um bil, mun engunt hafa dottið í hug hafís, enda lengst af bezta tíð. Þá var snjólétt mjög. Þá voru [n’ðviðri dag eftir dag. Að vísu fór að bera á liríðum og frosti er áleið febrúar. T. d. var frostið all að 20 stigum J>. 18. Hinn 26. febr. er svo hafís allt 1 einu að byrja að koma inn á Skjálfanda. Sást töluverður ís bæði frá Tjörnesi og Húsavík. 28. febr. var norð- vestan stórhríð með miklu frosti en engum sjógangi. Þeirri stórhríð slotaði undir eins nóttina eftir og brá til sunnan áttar að nýju. 28 — VEORIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.