Tíminn - 15.05.1986, Qupperneq 2

Tíminn - 15.05.1986, Qupperneq 2
2Tíminn' Fimmtudagur 15. maí 1986 Garðyrkjufélag íslands: Félag áhugamanna um hefur starfað í 100 ár Sigríður Hjartar, form. í Garðyrkjufélagi íslands. Hér er hún í gróðurhúsinu sínu að huga að vorverkunum. (Tímamynd-Róbert) Vðtu prýða garðinn þinn? Gosbrunnar, styttur, tjarnir, dælur, Ijós. Sláið á þráðinn Sendum um land allt. Vörufell h/f Heiðvangi 4, Hellu. Sími 99-5870. garðyrkju sem Sigríður Hjartar, formaður G.I., kynnir lesendum starfsemi og tilgang félagsins, sem starfar um allt land og í því eru nær sex þúsund félagsmenn - Garðyrkjufélagið er liðlega 100 ára félag. í ár er 101. starfsárið. Þetta er áhugamannafélag, - ekki fagfélag að neinu leyti, sagði Sigríður Hjartar formaður Garðyrkjufélags íslands, er blaðamaður Tímans leitaði frétta hjá henni af þessu merka félagi. - Þó Garðyrkjufélagið sé áhugamannafélag þá höfum við innan okkar vébanda bæði háskóla- menntað fólk í ræktunarmálum og einnig þá, sem lítið sem ekkert vita eða kunna, - en hafa fyrst og fremst áhuga og ánægju af ræktun. Og innan okkar félagsskapar rúmast allir, sem hafa gaman af gróðri, jafnvel þó þeir láti sér bara nægja að dreyma um gróður! Félagið hefur í raun starfað í 100 ár og er með allra elstu áhugamanna- félögum í landinu. Og alla tíð hefur markmiðið verið að auka þekkingu og prófa hvað hér geti dafnað. Mikið af því sem hér er nú farið að rækta hefur fiust til iandsins fyrir tilstilli félaga í Garðyrkjufélaginu, beint eða óbeint. Starfsemi Garðyrkjufélagsins er nú mikil og félagar eru hátt á 6. þúsund og þeir eru dreifðir um allt land. Það eru 19 skipulegar deildir G.í. úti um land. Þær eru bæði í bæjum og eins eru þrjár deildir í dreifbýlinu: 1 Skagafirði, í Aðaldal og Austur-Húnavatnssýslu. Það er heilmikið líf í félagsdeildunum. Útgáfa fræðslu- og fréttarita G.I. og árlegra pöntunarlista - Starfsemi félagsins byggist á fræðslu. Gefið er út ársrit sem heitir Garðyrkjuritið, og undanfarin ár hefur það verið á þriðja hundrað síður. { ársritinu eru greinar um ýmiss konar garðyrkjumál, faglegar greinar byggðar á rannsóknum og reynslu garðyrkjumanna og eins ýmsar í léttari dúr, þar sem sagt er frá skemmtilegum atvikum, bæði úr garðyrkjunni og félagslífinu. Líka er í ritinu svarað spurningum frá les- endum, því mjög algengt er að félagsmenn þurfi að fá leiðbeiningar um einhver vandamál í garðyrkj- unni, og þá birtast gjarnan í ritinu bæði spurningar og svör. Auk þess er viðkomandi spyrjanda alltaf svar- að beint, því annars yrði hann kannski að bíða mánuðum saman eftir svari í ritinu. Þarna kom líka oft og iðulega greinarkorn frá félögunum. Líka gefur Garðyrkjufélag fslands út lítið fréttablað. sem kallað er GARÐ- URINN, og það blað fá félagar 4-8 sinnum á ári, eftir því hvað mikið er um að vera og hvernig útgáfan gengur. Glafur B. Guðntundsson lyfjafræðingur er ritstjóri bæði Garð- yrkjuritsins og Garðsins, og er það starf allt unnið í sjálfboðavinnu, eins og flest önnur störf á vegum félagsins. í fréttabréfinu birtast stuttar frétt- ir og leiðbeiningar um garðyrkju eftir árstímum og auðvitað fundar- boð og tilkynningar. og þá fyrst og fremst fyrir fundi hér.á höfuðborgar- svæðinu, því deildirnar úti á landi hafa oftast annan hátt á að boða sína íundi. Garðyrkjufélagið er árlega með þrjá pöntunarlista fyrir félagsmenn. Haustlauka-pöntunarlisti verður sendur til félagsmanna í þesarri viku, í honum eru krókusar, páska- liljur, túlipanar o.fl. Haustlaukar blómstra á vorin en eru settir niður á haustin og þess vegna kallaðir haustlaukar. Vorlaukalistinn kemur svo til félagsmanna skömmu fyrir jól og þar má panta begoníur, gladíólur, dalíur og fleiri af þessum storu, fallegu blómjurtum. Ýmsar leiðbeiningar um blómlauka En haustlaukarnir, krókusarnir, páskaliljur og aðrir smálaukar fjölga sér ár frá ári, svo þá er gott að eiga í garðinum. Hægt er svo að dreifa þeim síðar meir. Fólk skyldi athuga að klippa ekki öll blöðin á páskaliljunum, þó gam- an sé að taka af þeim í vasa, því að blöðin eru nauðsynleg fyrir laukinn til þess að mynda nýjan forða til blómstrunar næsta sumar. Það er svolítið mismunandi með túlipanana, hvernig gengur að láta þá lifa frá ári til árs. Bæði fer það eftir tegundum og eins hvar túlipan- arnir cru staðsettir. Ef þeir eru alveg upp við hús á góðum og heitum stað, þá gengur betur að fá þá til að koma upp aftur ár eftir ár, en túlipanarnir ganga þó smám saman úr sér. Ef áhugi er á að halda í sérstaklega fallega túlipana og fá þá til að blómstra aftur, þá á að bíða þangað til blöðin fara að visna, en grafa þá upp laukinn og setja hann í geymslu á hlýjan stað. Taka á visnu blöðin af lauknum og hrista af honum moldina og geyma svo laukana (eins og kartöflur) þar til í miðjum septemb- er. Þá er hægt að setja laukana niður aftur. Blómið þroskast í lauknum seinni part sumars til að koma upp næsta ár á eftir. Afgreiðsla á pöntununum er mikil vinna Það er mikið að gera í kringum afgreiðslu á pöntunum til félags- manna úr pöntunarlistunum, og eig- inlega er öll sú vinna unnin í sjálf- boðavinnu. Reyndar er fastráðinn skrifstofustjóri starfandi á skrifstofu Garðyrkjufélagsins á Amtmannsstíg, en vinnan er svo mikil hjá svona stóru félagi að það kallar á mikla sjálfboðavinnu. Svo er það þriðji pöntunarlistinn. Það er Frælistinn. Margir félagar safna fræi úr eigin görðum og svo er þetta sett í sameiginlegan sjóð eða banka. Á veturna er sendur út listi og þá geta allir félagar pantað sér a.m.k. 15 tegundir af fræjum úr þessum lista. Oft er mjög erfitt að fá fræ af fjölærum plöntum, því það er lítið flutt inn af því, og þarna er oft unt að ræða plöntur, sem eru alls ekki til í gróðrarstöðvum okkar, en félagar hafa náð sér í með einhverju móti. Þarna er afskaplega góð leið til að komast í samband við áhugamenn um fræsöfnun og fá hjá þeim einhverjar sérstakar tegundir, ef fólk vill breyta til í garðinum sínum. Núna í vetur voru 900 tegundir í þessum frælista. Vinnan í kringum þetta allt, - að taka á móti fræjum, flokka þau og

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.