Tíminn - 15.05.1986, Qupperneq 4

Tíminn - 15.05.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn Fimmtudagur 15. maí 1986 GRASFLÖTIN Vel hirt og falleg grasflöt er sómi hvers garðeiganda. Og á sama hátt stingur í augun vanrækt og niðurnídd grasflöt. Nú þegar vorið virðist örugglega hafa tekið völdin er það einmitt sú sjón sem blasir við mörgum garðeigandanum, vanrækt og niðurnídd grasflöt, kannski jafnvel að miklu leyti hulin laufi því sem féll af trjánum í fyrrahaust. Nú þarf gott átak til að koma flötinni í gott lag og nota sumarið til hins ýtrasta til að koma í veg fyrir að hnignun flatarinnar haldi áfram. Hvað er til ráða? Við spyrjum Jóhann Diego skrúðgarðyrkjumeistara, verkstjóra hjá Reykjavíkurborg. Laufíð frá því í fyrra! Pað lauf sem fellur á haustin fýkur gjarna í skafla. Snjóþungi vetrarins pressar það saman og myndar úr því skán. Liggi slík skán á grasflöt fram eftir vori, getur hún orðið skaðleg, sé hún svo þykk að grasnálarnar nái ekki að ryðja henni af sér. Þá hættir grasinu við að sviðna eða rótin kafnar. Af þessum sökum má oft sjá dauða bletti í grasflötum. Nú er gras að lifna við. Hafi ekki verið séð til þess að hreinsa upp lauf sl. haust væri rétt að garðeigendur liugi að grasflötinni og raki það af henni og annað það sem hindrað getur grasvöxt. Deigur jarðvegur og misjöfnur og mosi Frostið er óðum að fara úr jörðu og jarðvegurinn þvi' deigur. Gott væri að fara yfir grasflötina með túnvaltara. Með honum má ná niður misjöfnum sem myndast hafa við misþcnslu af völdum frosta. Mosi er oft ríkjandi í grasflötum á vorin. Mcð góðri áburðargjöf nær grasið fljótt yfirhöndinni. Auk þess að nota venjulegan túnáburð, græði 3 (20-14-14), er gott að bera einnig á dálítinn kalksaltpétur. Gefur hann grasvextinum nokkra skerpu og fagurgrænt yfirbragð. Kalksalt- pétri verður að dreifa mjög jafnt yfir alla grasflötina. Hann má aðeins nota í fyrstu áburðargjöf á vorin og ckki nema annað hvert ár. Mulin skel er einnig góður mosa- eyðir. Um leið oghún gefur jarðveg- inum aukið kalk í jarðveginn eykur hún loftrými hans og opnar svörðinn. Mosi er og verður vandamál í skuggsælum görðum. Besta lausnin til að draga úr honum þar er að opna grasflötina fyrir sól. Jóhann Diego skrúðgarðyrkjumeistari fræðir okkur um ýmislegt í sambandi við grasflötina. Önnur þrif í garðinum og áburðargjöf Með hækkandi sól fer annar gróð- ur einnig að lifna. Þá er rétti tíminn til að þrífa upp plöntuleifar frá fyrra ári. Vorið er einnig sá tími sem notaður er til að skipta fjölærum jurtum og grisja ýmsa runna. Heppi- legast er að það sé afstaðið áður en laufgun verður veruleg. Pá er gott að bæta jarðveginn með lífrænum áburði. T.d. er afar hand- hægt að nota þurrkaðan hænsnaskít, sem fæst víða í handhægum umbúð- Verið velkomin að Grensásvegi 8. Sýningar pottar á staðnum. K. AUÐUNSSON H/F Grensásvegur 8 — 105 Reykjavík - Sími: 686775 - 686088 Baja akryl vatnsnuddpottar ★ Allt fyrir sundlaugar og potta ★ Hreinsitæki ★ Hringrásardælur ★ Ljós ★ Yfirbreiðslur ★ Vatnsnuddtæki ★ Leiktæki ★ Klór í duftformi ★ Allur fittings fyrir sundlaugar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.