Tíminn - 15.05.1986, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 15. maí 1986
Trésmiðjan Ösp í Stykkishólmi:
En fólk hugar betur að peningahliðinni en áður var
GARÐ-
YRKJU-
ÍLÁT
Nú er kominn sá árstími að gall-
harðir ræktendur þurfa að fara að
viða að sér ræktunarílátum til að
nota á mismunandi stigum garð-
yrkjunnar.
Eitt það besta sem hægt er að
komst yfir eru einnota drykkjarglös
eða bollar, sem eru mikið notuð á
skrifstofum og öðrum vinnustöðum.
Ef ekki er hægt að fá þá á eigin
vinnustað þá eru góðar líkur á því
að einhver vinur eða kunningi hafi
aðgang að þeim. Það þarf aðeins að
stinga nokkur göt á botninn á þeim
til að þeir hafi nógu gott afrennsli.
Annað nauðsynjaílát er tómar
djúsflöskur úr plasti af öllum
stærðum. Þær gera mikið gagn til að
verja nýútplantaðar smáplöntur fyrir
kulda. Skerið af þeim botninn og
takið úr þeim tappann. Þá er komið
mjög gott ílát til að steypa yfir
plönturnar og það ver fyrir kulda á
nóttunni en verkar eins og smágróð-
urhús á daginn.
Það er líka hægt að nota tómar
mjólkurfernur á óteljandi vegu. Það
er hægt að nota fernurnar til að verja
nýlega útplantaðar smáplöntur. Þá
er toppurinn skorinn af og botninn
skorinn í sundur á þremur hliðum.
Nú er hægt að nota fernuna á tvo
vegu. Fyrst ef verið er að nota
fernuna á plöntur, sem búið er að
herða aðeins þá er botninn látinn
snúa niður og lausa botnspjaldið
látið standa út með fernunni, á hann
er svo lagt farg. Hin aðferðin er sú
að stinga cfri hluta fernunnar niður
í moldina þangað til hún er stöðug
eða um það bil Vz hluta hennar.
Síðan er botninn hafður eins og lok.
Þegar á að halda lokihu opnu er
notuð klemma til að halda botninum
niður með einni hliðinni. Seinast og
ekki síst þá er hægt að nota fernurnar
til að sá í þær. Þá er efri hlutinn af
fernunni skorinn frá eins langt frá
botninum og ílátið á að vera djúpt.
Þá er komið ágætis ílát til að sá í.
„Það er allavega miklu meiri
spenningur í loftinu eftir að þessi
nýju lög um stórhækkun lána voru
samþykkt - fyrirspurnir hafa stór-
aukist og fólk sýnir mikinn áhuga
fyrir húsunum þótt fastir samningar
hafi enn ekki verið gerðir." sagði
Ríkharður Hrafnkelsson hjá Tré-
smiðjunni Ösp í Stykkishólmi spurð-
ur hvort eihhver hreyfing væri að
komast á einingahúsamárkaðinn á
ný, með breyttum lánamarkaði. En
vægast sagt mjög lítil hreyfing hefur
verið í sölu timbureiningahúsa s.l.
ár. T.d. sagði Ríkharður Ösp ekki
hafa selt hús í eina 10 mánuði.
Fyrirspurnirnar sagði Ríkharður
koma bæði frá höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðafólki. Fólk sé þó enn
nokkuð hikandi þar sem ýmislegt sé
enn óljóst með framkvæmdina varð-
andi þessi háu Húsnæðisstjórnarlán
ennbá. Þarscm bygging einingahúsa
taki svo miklu skemmri tíma liggi
heldur ekki svo mjög mikið á að
panta þau, þar sem nýju lögin taki
ekki gildi fyrr en eftir 1. september.
Jákvætt verður að telja að Rík-
Áhugi fólks á einingahúsakaupum er nú að glæðast á ný þótt margir hinkri
með samningsgerð þar til mál skýrast frekar varðandi nýju háu húsnæðislánin.
Eitt af timbureiningahúsunum frá Ösp í Stykkishólmi.
harður kvaðst verða var við að
væntanlegir húsbyggjendur velti
fjárhagshlið málsins miklu betur fyr--
ir sér nú en það gerði áður. „Fólk fer
tæpast út í húsakaup í dag öðruvísi
en að velta dæminu mjög vandlega
fyrir sér - sem er líka mun auðveld-
ara nú með minnkandi verðbólgu".
Spurður sagði Ríkharður áhugann
einna mest beinast að millistærð af
húsum, þ.e. 115 og 138 fermetra
húsum sem eru 4ra og 5 herbergja.
Að markaðurinn fyrir einingahúsin
datt svo mjög niður í fyrra telur
Ríkharður hafa átt sér margar orsak-
ir. Fyrst og fremst hafi það þó verið
breyttar útlánareglur Húsnæðis-
stofnunar, þ.e. að lengja útborgun-
artíma lánanna úr 9 í 18 mánuði. í
35% verðbólgu hafi það rýrt lánsupp-
hæðirnar verulega, sem sett hafi
marga húsbyggjendur í mikinn
vanda.
Verð á eldra húsnæði hafi líka
lækkað mikið á síðasta ári, þannig
að fólk valdi þá frekar að kaupa
gamalt húsnæði en að byggja nýtt.
Hin mikla umræða um vanda hús-
byggjenda hafi líka vafalaust dregið
kjarkinn úr mörgum.
Hjá Ösp vinna nú um 25 manns,
eða helmingi færri en þeir hafa
flestir orðið. Ríkharður sagði þá hjá
Ösp vera að hverfa frá því að selja
húsin u.þ.b. fullbúin, eins og algengt
var áður. Nú sé stefnt að því að selja
þau á því stigi sem þeir geti lokið
þeim sjálfir, með sínum mannskap
og tækjum, þ.e. allri trésmíðavinnu,
en þá vantar alla vinnu frá öðrum
iðnaðarmönnum; rafvirkjum, píp-
urum, málurum og dúklagningar-
mönnum og það efni sem þeir vinna
með.
-HEI
LÓMASTEINAR
Góð lausn í garðinn þinn
B.M. Vallá kynnir Blómasteina - nýtt kerfi gangstéttar-
hellna, hleðslusteina og kantsteina sem býður upp á
nýjar og spennandi lausnir.
Hellur
Við bjóðum tvær gerðir af hellum í Blómasteinskerfinu:
ílanga og sexkantaða. Vegna lögunar sinnar og þykktar
henta hellurnar sérstaklega vel þar sem álag er mikið, s.s.
í innkeyrslur, bílastæði og iðnaðargólf. Að sjálfsögðu eru
þær kjörnar í gangstíga og alla aðra venjulega notkun.
Hleðslusteinar
Með tveimur stærðum af hleðslusteinum er hægur vandi
að búa til blómaker, tröppur, tjamir og ýmsar aðrar
hleðslur, og nota síðan hellur með sams konar mynstri í
hellulögnina. Tvo hleðslusteina er einnig hægt að líma
saman með steinlími og auka þannig enn á fjölbreytnina.
Kantsteinar
Með notkun kantsteinsins er auðvelt að leggja sexköntuðu
hellumar með öðmm hellutegundum.
Við söluskrifstofu okkar að Breiðhöfða 3 höfum við
komið upp sýningaraðstöðu fyrir framleiðslu okkar.
Þar getur þú séð Blómasteinskerfið í notkun svo og
flestar aðrar gerðir af hellum og skrautsteinum sem
við framleiðum.
Söluskrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-18, og á
laugardögum frá kl. 9-15, þar getur þú einnig fengið
litprentaðan bækling með ýmsum hugmyndum um
notkun skrautsteina og hellna.
STEINAVERKSMIÐJA
Söluskrífstofa
Sýningarsvæði
Breiðhöfða 3
Sími (91) 68 50
Fyrirspumir stóraukist