Tíminn - 15.05.1986, Side 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 15. maí 1986
BLÓMAMIÐSTOÐIN H.
Leiðbeiningar um meðferð afskor-
inna blóma.
1. Látið blómin standa stundarkorn í vatni
áður en umbúðir eru fjarlægðar.
2. Vasinn þarf að vera vel hreinn, sápuþveg-
inn og síðan skolaður.
3. Næringarefni, seld í blómabúðum, lengja líf
blóma.
4. Skerið eða klippið af stöngulenda, áður en
blómin eru látin í vasa. Ekki skal brjóta eða
merja stöngulenda.
5. Fjarlægið öll blöð, sem annars lenda í vatni.
Þau auka gerlagróður og stytta líf blóma.
6. Bætið reglulega í vasann, en skiptið ekki
um vatn, ef næringarefni er notað.
7. Geymið blómin á köldum stað um nætur og
iengið þannig líf þeirra.
8. Blóm þola ekki beina sól eða dragsúg.
Blómamiðstöðin ieggur áherslu á góð blóm
og sendir þau í verslanir um land allt.
Hvernig væri að líta við í næstu blómaversl-
un, reyna þessi ráð og geyma auglýsing-
una.
Blómamiðstöðin h.f.
FÓLKÁFERÐ! "\
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
J
iiag8**"
Seglagerðin Ægir Eyjarslóð 7:
Dúkur getur verið sundlaug
eða segl, bátur eða blæja
Seglagerðin Ægir er með eldri
fyrirtækjum í landinu, stofnuð í
nóvember 1913. Frá því ÓIi Sigurjón
Barðdal keýpti fyrirtækið um 1950
hefur það verið rekið sem fjöl-
skyldufyrirtæki og er núverandi
framkvæmdastjóri, Óli Barðdal
barnabarn Óla Sigurjóns.
Margt hefur breyst frá því fram-
leiðsla var fyrst hafin, þá fór öll
vinna fram í höndunum og tók um
ár að fyllgera eitt stórsegl. í dag sér
Seglagerðin Ægir um framleiðslu,
innflutning og sölu á margskonar
varningi, bæði fyrir útgerðina sem
og útivistar og garðáhugafólk.
Fyrir útgerðina eru framleidd segl
og yfirbreiðslur af mörgu tagi auk
sölu á bjarghringjum og öryggislfn-
um. Fyrirtækið mun fljótlega hefja
innflutning á björgunarvestum og
öryggisljósum.
Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt
úrval viðleguútbúnaðar. f>ar eru seld
tjöld af öllum gerðum, allt frá eins-
manns tjöldum til 26-manna tjalda.
Ægir hefur lengi framleitt eigin
tjöld, en eins flytja þeir inn mikið
úrval. Lagði Óli Barðdal áherslu á
að verið sé að stækka rými verslunar-
innar um helming og því verði þar
hægt að tjalda þar öllu sem til er, í
orðsins fyllstu merkingu.
Verður því hægt að virða þar fyrir
sér, auk tjalda, hið fjölbreytta úrval
verslunarinnar af garðhúsgögnum
alls konar og sóltjöldum, auk bak-
poka, svefnpoka og annars viðlegu-
útbúnaðar. Rúmt ætti að vera um
sýningarhluti þó margt sé á boðstól-
um, því að sögn Óla er hið nýja
húsnæði hvorki meira né minna en
500 m2.
Fyrir sumarið er nýhafinn inn-
flutningur á dönskum sundlaugum
sem gerðar eru úr nælonstyrktum
PVC-dúk. Eru þær fáanlegar í öllum
stærðum og gerðum, allt frá litlum
hreyfanlegum fjölskyldusundlaug-
um til stórra lauga, fyrir bæjarfélög
og kaupstaði.
Óli minnti ennfremur á að þeir
taki að sér að klæða gamlar laugar
með nælondúk og megi þannig fram-
lengja líf úrsérgenginna lauga, til
muna.
Það má segja að Seglagerðin beri
nafn með rentu. Auk ofangreindrar
framleiðslu, framleiða þeir skyggni
fyrir búðarglugga, blæjur fyrir báta
og bíla og taka jafnvel að sér bólstr-
un á sætum. Pá selja þeir einnig
tiltölulega ódýran striga fyrir listmál-
ara, og hefur það orðið margri
auralítilli listaspírunni búbót.
Nýlega er hafin framleiðsla inn-
kaupapoka úr bómull og taka þeir
að sér að prenta þá að óskum
kaupenda.
Að lokum benti Óli á þá þjónustu
sem fyrirtækið býður öllum laxeldis-
áhugamönnum þessa lands. Seld eru
SPÍRA
ÞAU -
Fjögurra manna tjald af Dallas-gerð kostar 16.350 kr.
Danskar Silver sundlaugar úr nælonstyrktum PVC-dúk.
GRÓÐURHÚS
Gróðurhúsin eru ódýr, sterk og auðveld
í samsetningu. Húsin fást í mismunandi
stærðum, allt frá 4,8 ferm. upp í 39 ferm.
og jafnvel enn stærri. Þau henta því vel
jafnt garðyrkjumönnum, bændum sem
garðeigendum, sem á undanförnum
árum hafa í auknum mæli drýgt tekjur
sínar með eigin ræktun.
Gerið pantanir tímanlega.
GRÓÐURREITIR
Gróðurreitirnir eru 2,5mx1,2m að stærð
og hið bogadregna lag þeirra gerir þá
einkar hentuga til ræktunar á ýmsum
hávöxnum jurtum, t.d. káljurtum. Opn-
un reitanna er stillanleg. Þeir eru auð-
veldir í samsetningu og allir nauðsyn-
legir fylgihlutir fylgja.
í^JalWf
Tangarhölða 9, 110 Reyk/avlk
Sími 91-671515
SPIRA
ÞAU
EKKI
Ef verið er í vafa um hvort
eitthvað af gömlu fræjunum spíri,
má ekki bíða eftir að athuga það
þegar kominn er fimi til að sá og
planta út í garðinn. Það gæti
verið of seint. Öruggast er að
gera spírunarprufu, það er að sá
til dæmis 10 fræjum á helminginn
af eldhúsrúllublaði, sem lagt hef-
ur verið á bakka eða disk. Hinn
helmingurinn af pappírnum er
svo lagður yfir og hann bleyttur
svo fræin haldist vel rök þau
mega ekki liggja í vatni. Nú er
diskurinn eða fatið sett inn í
plastpoka og látið standa á volg-
um stað. Pokinn er síðan opnaður
daglega til að ganga úr skugga um
að ekki hafi komist mygla að
fræjunum eða pappírinn sé að
þorna . Eftir 4-10 daga eiga öll
fræ, sem á annað borð spíra að
hafa spírað. Þá er auðvelt að
athuga hvað mörg prósent spír-
unin er. Ef til dæmis 7 fræ
spíra er prósentan 70%. Ef ein-
hver tegundin er fyrir neðan 30%
þarf að kaupa ný fræ, því þá
borgar sig ekki að sá þeim. Með
heldur betri prósentu eða um
40-50% þarf að sá þéttar og nota
meira fræ.