Vikan - 01.03.1962, Page 3
Consul 315
Fræg viðurkennixig
í Kanada
„Track & Traffic“ nefnist vandað
og útbreitt bílatímarit, sem út er
gefið í Kanada. Á vegum þess er
árlega veitt viðurkenning vandað-
asta bílnum, sem framleiddur er
þar i landi — og vandaðasta inn-
flutta bílnum, eða kánnski væri
réttara að segja, vandaðasta og
hentugasta bílnum, miðað við þarfir
og smekk manna þar i landi. Með
öðrum orðum, sá bíll sem viður-
kenninguna hlýtur, verður einskon-
ar bíll ársins 1 Kanada.
Undirbúningurinn og veiting
þessarar viðurkenningar ber á sér
evrópskan svip frekar en bandarísk-
an. Sérfræðingar þeir, sem blaðið
fær til að athuga bílana og kveða
upp úrskurðinn, vinna verk sitt í
kyrrþey, viðurkenningin er síðan
þar í landi. Sjónarmið almennings
í Bandaríkjunum virðist nokkuð
annað, eins og marlca má af þvi
hve evrópskir bílar, og þá einkum
smábilarnir, seljast þar mikið og
vinna stöðugt á, en eiga þó yfirleitt
ekki upp á pallborðið í þessum
tímaritum.
Að þessu sinni var það „Consul
315“, sem hlaut vðiurkenningu bíla-
tímaritsins „Track & Traffic", sem
bezti innflutti bíll ársins.
Tímaritið gerir grein fyrir úr-
Góð útsýn á alla vegu, allur innri búnaður látlaust og smekklegur.
tilkynnt i timaritinu lúðraþytslaust.
Kannski er það einmitt þess vegna
að mikið þykir til hennar koina,
og að hún vekur mikla athygli, ekki
aðeins í Kanada heldur og í flest-
um „bílalöndum“ heims, og þá vit-
anlega fyrst og fremst hvaða inn-
fluttur bíll er talinn viðurkenning-
arinnar verður, þar eð hann er að
sjálfsögðu á boðstólum á alþjóðleg-
um markaði.
Vert er og að geta þess, að sjón-
armið þeirra i Iíanada gagnvart
bílum, virðist liggja mun nær
evrópsku sjónarmiði en bandarísku,
að minnsta kosti ef miðað er við
það bandaríska sjónarmið, sem
fram kemur í blöðum og tímaritum
skurði sínum, og lætur fylgja til-
kynningunni um úrskurðinn. Segir
þar meðal annars, að hann byggist
á þvi að „Consul 315“ sé sá inn-
fluttur bíll, sem sameini flesta kosti
kaupandanum í hag, og sé þá bæði
miðað við útlit, haganlegt bygging-
arlag, gæði og notagildi — með öðr-
um orðum, það sem kaupandinn
fær fyrir verðið, sem hann greiðir.
„Framleiddar eru nú margar
gerðir bíla, þar sem öll áherzla
er lögð á glæsibrag og tæknilega
fullkomnun. Eins eru framleiddar
margar gerðir bíla, þar sem öll
áherzla er lögð á sparneytni og að
bíllinn sé sem ódýrastur í rekstri.
En hin tæknilega fullkomnun er
Útgefandi: Hilmir h.f.
Uitstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingastjóri:
Jóhannes Jörundsson.
Framkvæmdastjóri:
Hilraar A. KriatjánBson.
Bitstjórn og auglýsingur: Skipholti
33. Símar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreíðsla og dretfing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími
30720. Dreifingarstjórí: Óskar Karls-
.son. Verð i lausasölu kr. 15, A.skrift-
arverð er 200 kr. ársþriðjungslega,
greiðist fyrirfrara. Prentun: Hilmir
h.f. Myndamót: Bafgraf h.f.
dýru verði keypt, og enginn bíll
verður réttilega dæmdur og metinn
eingöngu eflir því hversu ódýr hann
er i rekstri. Úrskurður okkar bygg-
ist á þvi að um sé að ræða hið
ákjósanlegasta jafnvægi hvað þetta
snertir, og bíllinn, sem við höfum
valið, sameinar þetta eins og bezt
verður á kosið, að okkar dómi.“
Síðan segir að Kanadamenn séu
löngu hættir að kaupa evrópska
bila fyrir nýji^ngagirni, eða af þvi
það sé fínt að aka í evrópskum bíl;
sökum legu landsins og þjóðlegra
mennigarerfða séu þeir á mörkum
evrópskra og bandarískra áhrifa,
og þegar þeir velji sér bil, geri
þeir þær kröfur til hans, að hann
sameini þá kosti, sem einkenna
evrópska bílaframleiðslu annars-
vegar og bandariska hinsvegar.
Evrópskir hílar af millistærð, segir
hlaðið, eru líklegastir til að sam-
eina þessa kosti — evrópska hóf-
semi í stærð, evrópska verkvöndun,
þokka og sparneytni annarsvegar,
bandarísk þægindi, styrkleika og
glæsibrag hinsvegar.
Blaðið telur og, að mikið hafi
skort á það árið 1961, að allir
evrópskir bílaframleiðendur hafi
tekið þessar kröfur um kostajafn-
vægi til greina; aðrir hafi endur-
bætt framleiðslu sína, til þess að
geta orðið við þeim eftir mætti —
og enn aðrir hafi sent á markaðinn
nýjar gerðir af bílum af millistærð,
með það fyrir augum að uppfylla
þessar kröfur eins og bezt verði á
kosið. Og „Consul 315“ sé einmitt
einn af þeim gerðum.
„Consul 315“ frá Fordverksmiðj-
unum á Bretlandi, er bæði hvað
snertir verð, ökugæði og þægilegt
rými, miðað við sem minnst hjóla-
stæði, ákaflega hentugt og hagan-
legt farartæki. Tæknilega er þetta
mjög sterkur bíll og uppfyllir kröf-
ur fjölskyldubilsins í fyllsta máta.“
Þá segir einnig að „Consul 315“
sé að allri gerð „gerhugsaður“ og
beri þvi ljóst vitni að þeir hjá
hrezku Fordverksmiðjunum séu ó-
smeikir við róttækar breytingar,
en sætti sig ekki við að standa í
stað. Til dæmis tekur blaðið, að
skífuhemlar séu á framhjólum, og
sé að þeim stóraukið öryggi, en
þessi hemlaútbúnaður fyrirfinnist
yfirleitt aðeins á bílum í mun hærri
verðflokki. Fjögra-hraða gírskipt-
ingin tryggi fyllstu orkunýtingu
hreyfilsins og komi því ekki að sök,
miðað við kanadiskar aðstæður, þótt
hann sé ekki stærri en 1340 rúmcm,
fjögurra strokka.
Loks segir að livað útlit snerti
sé bíllinn hinn glæsilegasti án þess
þó að um nokkurt yfirlæti sé þar
að ræða. Yfirbyggingin veiti það
innrými, sem frekast sé unnt, og
afturrúðan þannig sveigð að hún
veiti betri útsýn en yfirleitt sé um
Consul 315 er fáanlegur bæði með
stýris- og gólfskiptingu.
að ræða í öðrum bilum, auk þess
sem fyrir það verði svo rúmgott
í aftursætinu, að fullorðnir geti sem
Afturrúðan, stór og höll, tryggir
góða útsýn.
bezt setið þar uppréttir. „Og það
sem bezt er — „Consul 315“ er
einkar þægilegur i akstri, bæði i
mikilli umferð á borgargötum og
úti á þjóðvegum."
VIKAN 3