Vikan - 01.10.1964, Blaðsíða 32
5 stærðir af
kæliskópum.
Sjálfvirk affryst-
ing.
5 ára ábyrgð á
fyrstikerfi.
Algjörlega sjálf-
virk þvottavél
með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
Forþvottur.
4 þvotta stilling-
ar.
5 skol.
Þeytivinda.
Ódýrasta sjálf-
virka þvottavél-
in.
Snorrabraut 44 — Sími 16242.
*
II
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú verður fyrir óþægindum, sem standa í sambandi
við farartæki, sem kunningi þinn á. Þú færð að
heyra góðan orðróm um sjálfan þig, sem kann að
gera þig svolítið montinn. Náinn ættingi kemur í
heimsókn og flytur þér staðfestingu á ákveðnum grun þínum.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Fjölskylda þín eða mjög nánir vinir hafa orðið fyrir
einhverri sorg. Það mun reyna talsvert á þig í
þessu sambandi. Þú ferð í stutta ferð, sem veldur
þér síðar miklum heilabrotum. Kringum þig sjálfan
verður m.iög rólegt.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júni):
Fjármálabrask, sem þú hefur staðið í fær nú giftu-
K J samlegan endi. Þú hefur undanfarið unnið að erfiðu
WVF verkefni, sem nú er senn til lykta leitt, en fagn-
aðu sigrinum ekki of snemma. Þú umgengst mikið
ákveðna persónu af hinu gagnstæða kyni.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Málefni, sem hefur lengi pirrað þig, kemst nú veru-
lega á skrið vegna atbeina eins kunningja þíns.
Þú færð einhverja gátu til úrlausnar, sem í fyrstu
reynist mjög dularfull, en allt á sínar orsakir, eins
og fram kemur.
Ljónsmcrkið (24. júli — 23. ágúst):
Einn vina þinna fær gott starf og munið þið halda
það hátíðlegt á eftirminnilegan hátt. Þú færð að
súpa seyðið af einhverju hálfgleymdu atviki. Fjár-
hagur þinn stendur með miklum blóma og mun
gera það enn um skeið.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú hefur haft miklar áhyggjur undanfarið senni-
lega vegna aðsetursskipta. Því miður horfir ekki
vænlega fyrir þér en samt skaltu ekki hætta að
vona. Þú færð vandamál í hendur, en skýringarnar
fyrir því eru rangar.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
í vikulokin verða einhverjar breytingar á fjárhag
þínum. Þú færð ráðleggingar frá félaga þínum,
sem til að byrja með eru þér fjarri skapi, en
síðar meir sérðu að eru þær einu réttu. Haltu
þig að einhverjum ákveðnum félögum.
Drckamcrkið (24. október — 22. nóvember);
Þú hefur verið sakaður um að vera heldur laus í
rásinni og alit bendir til að þér væri hollast að
bæta ráð þitt. Þú kemur einhverju ákveðnu til
leiðar á vinnustað sem fær misjafnar undirtektir.
Um helgina skemmtirðu þér vel.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú ert ákveðinn í að láta til skarar skríða í ákveðnu
Wtri 3 rriáli og allt bendir til að árangurinn verði giftu-
ríkur. Þú mátt til að slaka svolítið á kröfum þín-
um um fullkomnleika, þær eru á hraðri leið að
verða að öfgum.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú átt við eitthvert vandamál að stríða, en svo
virðist sem þú ættir að leysa úr því á eigin spýtur
og blanda engum inn í það. f vikulokin eru tæki-
færi fyrir þá sem ástfangnir eru til að sýna mót-
partinum hvað þeim býr í huga..
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Ný kynni við yfirmenn þína gefa þér meiri mögu-
leika en áður til að ná takmarki þínu. Það er tals-
vert undír þér sjálfum komið hver árangurinn
verður. Þú verður að sýna mikla þolinmæði og tillit-
semi við ákveðinn fjölskyldumeðlim.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Á einhvern hátt mun rýmkast hagur þinn, eitt-
hvað, sem þú hefur óskað þér lengi rætist nú á
mjög hagkvæman hátt. Viss persóna, sem þú hefur
haft hálfgerðan ýmigust á, sýnir svo ekki verður
um villst að þú hefur haft hana fyrir rangri sök.
32
VIKAN 40. tbl.