Vikan


Vikan - 01.10.1964, Page 32

Vikan - 01.10.1964, Page 32
5 stærðir af kæliskópum. Sjálfvirk affryst- ing. 5 ára ábyrgð á fyrstikerfi. Algjörlega sjálf- virk þvottavél með suðu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. Forþvottur. 4 þvotta stilling- ar. 5 skol. Þeytivinda. Ódýrasta sjálf- virka þvottavél- in. Snorrabraut 44 — Sími 16242. * II Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú verður fyrir óþægindum, sem standa í sambandi við farartæki, sem kunningi þinn á. Þú færð að heyra góðan orðróm um sjálfan þig, sem kann að gera þig svolítið montinn. Náinn ættingi kemur í heimsókn og flytur þér staðfestingu á ákveðnum grun þínum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Fjölskylda þín eða mjög nánir vinir hafa orðið fyrir einhverri sorg. Það mun reyna talsvert á þig í þessu sambandi. Þú ferð í stutta ferð, sem veldur þér síðar miklum heilabrotum. Kringum þig sjálfan verður m.iög rólegt. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júni): Fjármálabrask, sem þú hefur staðið í fær nú giftu- K J samlegan endi. Þú hefur undanfarið unnið að erfiðu WVF verkefni, sem nú er senn til lykta leitt, en fagn- aðu sigrinum ekki of snemma. Þú umgengst mikið ákveðna persónu af hinu gagnstæða kyni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Málefni, sem hefur lengi pirrað þig, kemst nú veru- lega á skrið vegna atbeina eins kunningja þíns. Þú færð einhverja gátu til úrlausnar, sem í fyrstu reynist mjög dularfull, en allt á sínar orsakir, eins og fram kemur. Ljónsmcrkið (24. júli — 23. ágúst): Einn vina þinna fær gott starf og munið þið halda það hátíðlegt á eftirminnilegan hátt. Þú færð að súpa seyðið af einhverju hálfgleymdu atviki. Fjár- hagur þinn stendur með miklum blóma og mun gera það enn um skeið. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú hefur haft miklar áhyggjur undanfarið senni- lega vegna aðsetursskipta. Því miður horfir ekki vænlega fyrir þér en samt skaltu ekki hætta að vona. Þú færð vandamál í hendur, en skýringarnar fyrir því eru rangar. Vogarmerkið (24. september — 23. október): í vikulokin verða einhverjar breytingar á fjárhag þínum. Þú færð ráðleggingar frá félaga þínum, sem til að byrja með eru þér fjarri skapi, en síðar meir sérðu að eru þær einu réttu. Haltu þig að einhverjum ákveðnum félögum. Drckamcrkið (24. október — 22. nóvember); Þú hefur verið sakaður um að vera heldur laus í rásinni og alit bendir til að þér væri hollast að bæta ráð þitt. Þú kemur einhverju ákveðnu til leiðar á vinnustað sem fær misjafnar undirtektir. Um helgina skemmtirðu þér vel. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú ert ákveðinn í að láta til skarar skríða í ákveðnu Wtri 3 rriáli og allt bendir til að árangurinn verði giftu- ríkur. Þú mátt til að slaka svolítið á kröfum þín- um um fullkomnleika, þær eru á hraðri leið að verða að öfgum. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú átt við eitthvert vandamál að stríða, en svo virðist sem þú ættir að leysa úr því á eigin spýtur og blanda engum inn í það. f vikulokin eru tæki- færi fyrir þá sem ástfangnir eru til að sýna mót- partinum hvað þeim býr í huga.. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ný kynni við yfirmenn þína gefa þér meiri mögu- leika en áður til að ná takmarki þínu. Það er tals- vert undír þér sjálfum komið hver árangurinn verður. Þú verður að sýna mikla þolinmæði og tillit- semi við ákveðinn fjölskyldumeðlim. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Á einhvern hátt mun rýmkast hagur þinn, eitt- hvað, sem þú hefur óskað þér lengi rætist nú á mjög hagkvæman hátt. Viss persóna, sem þú hefur haft hálfgerðan ýmigust á, sýnir svo ekki verður um villst að þú hefur haft hana fyrir rangri sök. 32 VIKAN 40. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.