Vikan


Vikan - 20.01.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 20.01.1966, Blaðsíða 32
AVON VEKUR FEGURÐINA AF DVALA ALLA ÞÁ FEGURÐ, SEM ÞÉR VISSUÐ AÐ ÞÉR ÁTTUÐ. Hulin fegurð, sem þér vissuð að þér áttuð, kemur í ljós við snertingu Avon. Blómstrar við snertingu Avon makeup. Springur út við hiýju hinna nýju varalita og naglalakka.... Og svo að lokum gerir Avon augna makeup fegurð yðar fullkomna. Það geta allir séð. Það þarf Avon töfra til að fegurðin líti dagsins ljós. 22 VIKAN 3. tbl. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert ekki allskostar ánægður með þig vegna þess að þér finnst að gerðir þínar hafi verið misskild- ar. Þú færð óvænta uppörvun á vinnustað og ein- hverja þóknun í sambandi við aukavinnu þína . s&rW Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Vinna þín virðist einstaklega vel skipulögð og er ótrúlegt hversu miklu þú getur komið í verk á skömmum tíma. Taktu heimboði sem þér berst seinni hluta vikunnar. Heillatala er sjö. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú kynnist vissum aðferðum sem þér falla mjög vel og þú gætir hagnýtt þér. Gættu þess að ofþreyta þig ekki. Eyddu kvöldunum sem mest heima við og dundaðu við verkefni sem bíða þín þar. fh Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú verður mjög önnum kafinn við áhugamál þín og mátt lítið vera að því að sinna öðru. Þú verður aðili í skemmtilegum félagsskap eða þú endurnýjar kunningsskap þinn í gömlu félagi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Gættu vel tungu þinnar og reyndu að koma vel fram, þótt þig langi til að vera óþægilegur. Persóna á þínum aldrei býður þér fjárhagslega aðstoð sem þú skalt ekki þiggja að sinni. %u Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september):- Þér hlotnast einhver upphefð og þar með aukinn vandi. Eldri maður sem þú hefur átt nokkur við- skipti við sýnir ekki alveg hreinan leik. Varaztu að vera úti seint á kvöldin. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú lendir í smá deilum við persónu sem þú um- gengst daglega, reyndu sem fyrst að hreinsa and- rúmsloftið aftur. Þú færð að spreyta þig á verk- efni sem hefur þroskandi og holl áhrif á þig. Drekarrterkið (24. október — 22. nóvember); Þú skalt leita til kunningja þinna og fá lánaðan hjá þeim ákveðinn hlut sem þú þarfnast í bili. Þér verður áreiðanlega vel tekið. Þú færð kunningja- heimsókn sem verður mjög ánægjuleg. ** Bogamannsmerkið (23. nðvember — 21. des.): Þú átt í nokkrum erfiðleikum með að afgreiða á- kveðið mál fyrir tilskilinn tíma. Þessvegna skaltu leita þér aðstoðar, þú munt ekki sjá eftir því. Þú færð skemmtilegar fréttir. & Sfeingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú átt í einhverjum erfiðleikum og skaltu því eftir megni reyna að leysa úr þeirri með ráðum og dáð. Ef þú ert hugrakkur og sýnir vilja verða margar hendur á lofti til að aðstoða þig. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19 febrúa'r): Það verður mikið um truflanir í starfi þínu svo þér gengur ekki vel að koma því daglega af. Varastu að skemmta þér um of, það gæti ýtt undir vissan orð- róm sem er þér fjarri skapi. Fiskamerkið (20. febrúar — 20 marz); Ýmsar aðstæður verða þess valdandi að þú verður að fresta öllum framkvæmdum, um sinn. Maður nokk- ur gerir þér gott tilboð sem þú skalt taka ef þú hefur nokkra möguleika á að nýta þér það.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.