Vikan - 14.07.1966, Qupperneq 3
A hverjum tíma má víst fleira 09 fleira
finna af allskonar röskun á högum vorum
og unglingar drckka yfirleitt heldur meira
en eldra fólkiÖ gerði í þeirra sporum.
Og mikið orð er gert á sukki og sóun
sjóðum er tæmast, dýru víni á skálum,
en slíkt er talin algeng og eðlileg þróun
á öllum svonefndum þjóðfélagsvandamálum.
Þar sem gamlir síma-
staurar syngja
Sigurður Hreiðar, blaðamaður hjá Vikunni, dvaldi fyr-
ir skömmu um nokkurra vikna skeið suður i Búlgariu í
boði þarlendrar ferðaskrifstofu, Balkantourist. Hefur
hann skrifað fyrir Vikuna tvær greinar um dvöl sína
þar syðra, og birtist hin fyrri í næstu Viku. Búlgaría
Í NflESTU VIKU
er merkilegt land fyrir marga hluta sakir, en líklega
þekkja íslendingar almennt minna til þess en flestra
annarra landa álfunnar. Verður því fróðlegt að heyra
af kynnum Sigurðar af þessu ríki og fólki þess.
Annað efni: Guð blessi þig, Fíat 6001 Á Ítalíu þykir
ekki annað hlýða en bílar fái klerklega blessun, áð-
ur en þeir eru sendir á markaðinn, og veitir sjálfsagt
ekki af. Þar fæðast stjörnurnar, frásögn með myndum
frá kvikmyndahátíð í Cannes, en þar er slatti af stjörn-
um uppgötvaður árlega. Kvöldstund í Víkingasal: grein
eftir Gísla Sigurðsson með teikningum eftir Baltasar.
Fegurðardrottning á ferðalagi: Grein um Rósu Einars-
dóttur, sem verið hefur fulltrúi (slands á fegurðarsam-
keppnum í Nice, Long Beach og Lundúnum. Greinin
er prýdd mörgum myndum. Þá er í blaðinu smásagan
Kvöld í Andalúsiu eftir hinn gagnmerka höfund Robert
Ruark, framhaldssögurnar báðar, Eftir eyranu, Vikan
og heimilið o.fl.
Í ÞESSARIVIKU
MODESTY BLAISE. 16. hluti.............. Bls. 4
HESTURINN, SEM IÐKAR DÝFINGAR Bls. 8
VELFERÐARRÍKIÐ OG ANDLEG HEILSA AL-
MENNINGS. Eftir sr. Jóhann Hannesson, próf. Bls. 10
OF UNG TIL AÐ GIFTAST. Smásaga Bls. 12
ÍSLENZKA BRÚÐULEIKHÚSIÐ. Frásögn og
myndir ................................ Bls. 14
ER HREYFING NAUÐSYNLEG? Grein um holl-
ustu líkamlegrar áreynslu ............. Bls. 15
EFTIR EYRANU Bls. 16
ÍSFIRÐINGAR BJARTSÝNIR Á FRAMTÍÐINA.
Viðtöl og myndir: Gfsli Sigurðsson .... Bls. 18
ANGELIQUE OG SOLDÁNINN. 22. hluti ... Bls. 24
STRUENSEE-MÁLIÐ ....................... Bls. 26
VIKAN OG HEIMILIÐ Bls. 30
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Blaðamenn: Sigurð-
ur Hreiðar og Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri
Friðriksson. Auglýsingar: Ásta Bjarnadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar 35320,
35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingar-
stjóri: Óskar Karlsson. Verð 1 lausasölu kr. 30. Áskrift-
arverð er 400 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram.
Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
FORSÍÐAN
Forsíðumyndin af Seljalandsfossi, á 26. tbl., er eft-
ir Jón Guðjónsson, en ekki Rafn Hafnfjörð, eins og
hermt var í því blaði. Biðjum við hlutaðeigendur
hér með afsökunar á mistökum þessum. Forsíðan
á þessu blaði, sem er í stfl við heyskap og sveita-
sælu sumarsins, er hinsvegar örugglega eftir Rafn.
HÚtíOR í VIKUBYRIUN
Kristján, heyrirðu það, myndin er
búin.
.JA'
Já, það er svolítið erfitt að lýsa
unnustanum mínum, en ég þekki
hann alltaf á rauða sportbílnum.
Þjónn, viljið þér láta mig fá eina
kotelettu, en hún verður að vera
stór. Ég er svo taugaveiklaður og
verð alltaf reiður af smámunum.
VIKAN 3