Vikan


Vikan - 15.09.1966, Blaðsíða 10

Vikan - 15.09.1966, Blaðsíða 10
Börn virðast hafa frá hendi náttúrunnar hæfileika til mynd- rænnar tjáningar, en upp úr 10 ára aldri, er barnið fer að beita aukinni rökhyggju og skynsemi að viðbættu því sem fullorðið fólkið kennir barninu um per- spektíf og þessháttar reglur, fer þessi skemmtilegi hæfileiki oft- ast forgörðum. Barnið er ekkert að hugsa um það, hvort glugg- arnir séu í réttum röðum á hús- inu sem það teiknar, eða hvort litla stúlkan, sem leikur sér að brúðunum sínum framan við bæinn, sé ef til vill stærri en bærinn sjálfur. Það sem er aðal- atriðið í augum barnsins verður fyrirferðarmikið í myndinni án tillits til þess, hversu stór eða smár hluturinn er í raunveruleik- anum. Hin barnslega afstaða til við- fangsefnisins, ljær því töfra, svo jafnvel þrautþjálfaðir listamenn eiga erfitt með að gera betur. Þetta gæti bent til þess að hjart- að og tilfinningarnar ættu að ráða meira fyrir listamanninn en ísköld skynsemi hans, rökhyggja og lærdómur. Enda vill oft fara svo, því miður, að myndlist, sem sprottin er af stærðfræðilegri hyggju og ísköldum útreikning- um flatarmálsfræðinnar, verður leiðinlegri og Ijótari en sjálf erfðasyndin. Flestir myndlistarmenn gætu mikið lært af börnum og mynd- rænni tjáningu þeirra. Það eru að vísu ekki nein ný sannindi og stundum hafa fullorðnir menn meira að segja reynt að stæla barnalega list en það verður sjaldan meira en skopstæling ef maðurinn hefur tapað hugarfar- inu, sem að baki liggur. Hitt er svo annað mál, að til eru menn sem halda þessu hugarfari ef til vill alla ævi, og kallaðir „naiv- istar“, og er ísleifur okkar Kon- ráðsson glöggt dæmi um þá menn. Það hefur færzt í vöxt að und- anförnu að listamenn séu fengn- ir til að skreyta skóla og er það vissulega góðra gjalda vert. En Stír veggskreyting á sýningunni í Ásmundarsal. Sirkus með trúðum, fim- leikafvlki cg áhorfendabekkjum þar sem Bítlarnir eiga ineða.1 annars sín sæti. c> í Mýrarbúsaskóla. Börnin vinna að vegg- skreytingu, Arthúr Ólafsson teiknikennari stjórnar verk'nu. O Mósaik-veggmynd á sýningunni í Ás- mundarsal. Þarna er Örkin hans Nóa og dýraríkið a!lt. Þessi börn voru við nám í myndlist.arskólanum í Ásmundarsal við Freyjugötu og unnu að myndunum, sem á sýningunni voru.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.