Vikan - 27.07.1967, Page 3
Ný framhaltíssaga
í næstu viku hefst ný framhaldssaga. ÞaS er nýtt
ævintýri um hina gömlu vinkonu okkar, Modesty
Blaise, og hægri hönd hennar, Willie Garwin. Sagan
hefst með lýsingu á óaldarflokki, sem hefur á pr|ón-
unum ofsafengna áætlun. Gengur hún undir kenni-
heitinu og dulnefninu Tígristönn, og þar af dregur
sagan nafn. Að siálfsögðu verður það svo hlutverk
Modesty og Willies að koma þeim flokki fyrir katt-
arnef. Það tekst með glæsibrag, þótt það kosti ótrú-|
legar fórnir og oft skelli hurð nærri hælum. Sagan'
er æsispennandi eins og búast má við og stendur síð-
ur en svo hinu fyrra ævintýri Modesty Blaise að baki.
Smásagan í næsta blaði heitir Eldspýtur og er
eftir Astu Sigurðardóttur. Það er óþarfi að kynna
Astu fyrir lesendum. Sögur hennar vöktu mikla at-
hygli á sínum tíma, en það er orðið nokkuð langt
síðan ný saga eftir hana hefur birzt.
Af öðru efni má nefna greinina Afkastamesti rit-
höfundur veraldar. Þar segir frá franska rithöfundinum
Georges Simenon, sem hefur samið 430 skáldsögur
og er ekki einasta afkasamestur heldur einnig mest
lesinn allra rithöfunda í víðri veröld. Þá er greinin
Hringborgin, þar sem segir frá framtíðarskipulagi í
stórborgum og ótalmargt fleira.
Síðast en ekki sízt vildum við minna á Sumarget-
raunina okkar. Það eru glæsilegir vinningar í boði:
Ferð fyrir tvo til Marokkó, Polaroid-myndavélar og
•útileguútbúnaður frá Belgjagerðinni. Síðasti hluti get-
■raunarinnar birtist í næsta blaði.
HÚMOR í VIKUBYRJUN
ws-’’ f?' ,0 , tTV, • •'i'lj/ •' 1 'gi’. | « *?,
I ÞESSARIVIKU
SUMARGETRAUN VIKUNNAR, 4. hluti .... Bls. 4 ÚTILÍF, VEIÐIMENNSKA OG ÍÞRÓTTIR, grein
SIGURINN YFIR TÍMANUM Bls. 8 eftir Helga Sæmundsson Bls. 18
MAROKKÓ, grein um þetta ævintýraland. ANGELIQUE í BYLTINGUNNI, framhaldssag-
sem allir þekkja úr Þúsund og einni nótt. an um þessa vinsælu, frönsku ævintýrakonu Bls. 20
Dagur Þorleifsson tók saman Bls. 10 SÍÐAN SÍÐAST Bls. 22
VIÐVÖRUNIN, smásaga . . Bls. 12 Á LEIÐ TIL HOLLYWOOD, örstutt viðtal við
HVIKULT MARK, framhaldssagan um hið æv- Jón Viggósson, sem hyggst gerast kvikmynda-
intýralega líf Lew Harpers eftir Ross Mac- leikari í Hollywood Bls. 25
Donald Bls. 14 ÞAÐ BORGAR SIG AÐ RÁÐA VIÐ SKAPIÐ,
FLEYGIFERÐ TIL MALLORKA, Gylfi Gröndal síðari hluti endurminninga Jóns Péturs Jóns-
segir frá örstuttri ferð til þessa vinsæla ferða sonar .... Bls. 26
mannastaðar Bls. 16 VIKAN OG HEIMILIÐ Bls. 46
ÚTGEFANDX: HILMIR H.F.
Ritstjóri: Sigurður Ilrciðar. Meðrltstjórl: Gylfi Gröndal.
Blnðamaður: Dagur Þorlelfsson. Útlitsteikntng: Snorri
Friðriksson. Auglýsingar; Ásta Bjarnadóttir. Drriflng:
Óskar Karlsson.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholt
33. Símar 35320 - 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu
kr. 35. Áskrlftarverð er 470 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrlrfram. Prentun og myndamót Hilmlr h.f.
FORSÍÐAN
Vatnsdalur í Austur-Húnavatnssýslu er grösugur
dalur og svipfríður og þar er mjög búsæidarlegt.
Forsíðumyndin okkar er aS þessu sinni tekin af
brúnni yfir Gil í Vatnsdal.
Myndina tók BöSvar IndriSason.
30. tbi. VTKAN 3