Vikan


Vikan - 27.07.1967, Side 27

Vikan - 27.07.1967, Side 27
nóttina, voru þar að vanda fyrir argentínskir hermenn, er stóðu vörð við landgöngubrúna í ör- yggisskyni. Þeir stöðvuðu sjó- mennina, sem vildu komast um borð, og litu á landgönguleyfis- vegabréf — shoreleave's pass — þeirra. En einn Eistlendinganna var nú ekki í skapi til að sinna svoleiðis formsatriðum. Hann hneppti frá sér lokunni, tók út á sér besefann og skók hann framan í dátatuskuna, svo- mælandi: Here is my shore- leave's pass“ — hér er nú tand- göngupassinn minn. Argentínu- mennirnir trylltust og ætluðu að grípa hann, en hann var snar í snúningum og komst undan þeim um borð. En stýrimaðurinn, sem var á vagt, framseldi þeim hann, Daginn eftir var honum aftur skilað um borð, og var hann þá illa útlítandi. Argentínumennirn- ir höfðu ekki einungis látið hann borga sekt, heldur og lamið hann allan bláan og blóðugan. Hann og landar hans hugsuðu stýri- manninum, sem framseldi hann, heldur betur þegjandi þörfina. Á leiðinni til New York sátu þeir stöðugt um færi til að koma fram á honum hefndum. Það tókst ekki, sem betur fór. Ég er viss um að þeir hefðu drepið hann, hefði þeim tekizt að koma að honum einum á afviknum stað. SVÍINN SEM VARÐ AÐ SOFA 1 BAÐKARINU. En Eistlendingarnir voru ekki einu skapmennirnir á Belgíu gömlu. Þar var alltaf slæðingur af Svíum, og það voru nú dreng- ir sem ekki voru á þeim buxun- um að láta hlut sinn fyrir nein- um. Sænskur maður var um tíma þriðji meistari í vél, ágætismað- ur. Eitt sinn — við lágum þá í höfn sem heitir Oranges, á strönd Flórída ■— kom einn skipfélagi hans, sem var á dekkinu að máli við hann og bað hann að lána sér pening; sagðist ætla í land. Meistari var ekki með nema þrjá- tíu dollara á sér, en réttir landa sínum — hann var nefnilega Svíi líka — strax tíu doliara seðil. f sömu svipan var kallað í meist- ara annarsstaðar úr vélarrúminu, svo að hann varð að bregða sér þangað í skyndi, en gaf sér ekki tíma til að stinga á sig veskinu og skildi það eftir. En þegar hann kom til baka, voru tuttugu dollararnir horfnir úr því. Hinn Svíinn hafði þá tekið þá. Þetta fréttu aðrir Svíar, sem á skipinu voru, og þótti þeim ómannlega að verið og maklegt að þjófur- inn hlyti nokkra refsingu. Fóru þeir í land á eftir kauða og gáfu honum gætur í laumi, unz þeir sáu hann taka upp luttugu doll- ara seðil. Síðan fóru þeir niður í skip og sálu fyrir honum við landgöngubrúna. Það vildi svo til að ég kom upp á dekkið um leið og þjófurinn kom um borð og varð því vitni að móttökun- um, sem hann fékk. Landar hans slógu hann umsvifalaust í rot, en þar eð þeim þótti það ekki nægja, tóku þeir undir axlir hans og lömdu hausnum á honum niður við dekkið. Þeir hefðu sjálfsagt drepið hann þanna, ef ég og fleiri hefðum ekki truflað leik- inn. En ekki var þjófurinn búinn að bíta úr nálinni með þetta, því slíkur var æsingurinn í löndum hans gagnvart honum, að ekki var viðlit að láta hann sofa inn- an um þá í lúkarnum. Það varð að búa um hann í baðkerinu til frekara öryggis tók einn stýri- mannanna að sér að sofa á gólf- inu framan við kerið. „ÞÚ HEFUR STOLIÐ SÁPUNNI MINNI, 1SLAND“. En það getur borgað sig illa að kunna ekki að stilla skap sitt. Ég get sagt þér sögu til dæmis um það. Á Belgíu var um árs skeið eða svo Rússi, sem var pólitískur flóttamaður eða eitt- hvað í þá áttina. Þetta var lítill pervisi og ósköp einmana og aumkvunarverður, og ekki bætti það úr skák að honum var næst- um fyrirmunað að geta lært nokk- uð í ensku, en það er algengt um Rússa. Þetta ár, sem hann var á Belgíu, hændist hann talsvert að mér og hélt sig sem mest í nám- unda við mig, enda lagði ég mig fram um að vera alúðlegur við hann og að skilja þessa takmörk- Framhald á bls. 28. EndurmiinlBoar Jóns Pótnrs Jónssnnar Dagur Þorleifsson skráði. Teikning Baltasar. Innan skamms stendur kyndarinn upp á ný og leggur aftur til atlögu . . . . . . hásetarnir rjúka upp til handa og fóta, grípa hvert það áhald er hendi var næst og ráðast á stýri- mann . . . En svo rann lausn gát- unnar allt í einu upp fyrirokkur. Spegill hékk á þilinu á bak við stól Finnans, og í honum gat Svíinn hæglega séð hvað hann hafði á hendi. Einhver þeirra, sem horfðu á, benti Finnanum á þetta. Finninn spratt þegar á fætur, dró hníf úr slíðr- um og skutlaði honum yfir borðið í Svíann. 26 VIKAN 30-tbl- KYNDARINN ÓÞREYTANDI. Eg var staddur á Flaglar í Port of Spain, þegar óeirðir urðu í borginni, skothríð og djöf- ulsskapur. Ég hafði farið í land með skipsfélaga mínum, Dana að nafni Hans, og fengum við okkur herbergi á hóteli. Þá er allt í einu farið að skjóta fyrir utan, kvenfólkið æpir og veinar að það sé verið að gera byltingu og Hans, sem var orðinn vel full- ur, trylltist líka og vill endilega fara út í iætin. Ég reyndi eftir beztu getu að halda aftur af hon- um, en um síðir slapp hann úr greipum mér út í myrkrið. Ég lét hann eiga sig, því ekki ætlaði ég að fara að láta drepa mig út af vitleysunni í honum. Um morg- uninn var allt orðið rólegt, og þá gekk ég út í garðinn hjá hótel- inu. Það fyrsta sem ég sé þar er Hans, sem liggur eins og skata undir tré. Ég hélt fyrst að hann hefði verið skotinn og væri dauð- ur, en svo illa hafði nú ekki far- ið. Hann hafði verið orðinn svo fullur, þegar hann slapp út, að hann hafði ekki komizt lengra. Það er sagt að vínið verði mörg- um að fjörtjóni, en í þetta sinn hefur það líklega bjargað manns- lífi. í annað skipti, þegar Flaglar lá í höfn í Venesúelu, skammt frá höfuðborginni Caracas, fór ég í land ásamt tveimur kyndurun- um okkar, sem voru báðir Norð- menn. Við fórum inn á bar, eins og oft vill verða. Þar sat skip- stjórinn okkar þá fyrir og hafði hjá sér ekki eina dömu, heldur tvær. Þetta var rumur stór og akfeitur. Annar Norðmannanna var orðinn þéttfullur og fór nú að hella skömmum og svívirðing- um yfir skipstjórann. Skipstjóri hlustar litla hríð, áður en hann stendur upp og steinrotar kynd- arann; stendur svo yfir honum í boxarastöðu, ÞÚtt enginn við- staddra gerði sig líklegan til að sletta sér fram í viðureignina. Eftir litla hríð raknar kyndarinn við, rís upp og tekur til þar sem frá var horfið við að úthúða skipstjóranum og gefur honum nú jafnframt á kjaftinn. Skip- stjóri rotar hann umsvifalaust aftur, stendur svo yfir honum og bíður. Innan skamms rís kyndar- inn aftur upp og leggur enn á ný til atlögu, með álíka árangri og fyrr. Þetta endurtók sig fjór- um eða fimm sinnnum. Þá var skipstjórinn farinn að mæðast, svo sem eðlilegl var af manni með hans holdafar, og kemur þar að kyndaranum tekst að koma á hann rothöggi, leggst síð- an ofan á þetta feikna kjötfjall og fer að þjarma að því. En í þeirri svipan kemur lögreglan á vettvang, dregur skipstjóra und- an honum og fer með hann — skipstjórann — en af einhverjum óútskýrðum ástæðum tóku þeir kyndarann ekki líka. Við sögðum honum að hypja sig út í skip, því þeir myndu áreiðanlega sækja hann á eftir, en hann var of vitlaus til að skeyta um það og fór að drekka eins og fífl. Og svo kom lögreglan auðvitað aft- ur og náði í hann líka. landgöngupassi EISTLENDINGSINS. Eftir að ég fór af Flaglar, réð- ist ég á annað skip frá Standard Oil er Belgia hét og hafði raunar siglt undir belgískum fána fyrir stríðið, enda var skipstjórinn og margir af áhöfninni af því þjóð- erni. Annars voru þjóðernin um borð alls seytján þegar bezt lét. Enska var aðalmálið um borð og talaði hver hana með sínu nefi, svo að þetta var dálítið hæpinn tungumálaskóli. Ég kunni að mörgu leyti vel við mig á Belgíu gömlu og á þaðan margar skemmtilegar minningar. Norðurlandabúar voru all- nokkrir á þessu skipi og líka nokkrir Eistlendingar. Þetta voru allra viðkunnanlegustu menn, rólegir hversdagslega en reiddust illa ef þeim rann í skap á annað borð. Þeir gálu líka verið slæm- ir við vín og þá voru þeir engin lömb að leika við, stórir og sterk- ir og mestu berserkir. Þeir voru að mörgu líkir frændum sínum Finnunum. Þegar við einu sinni sem oftar lágum í Buenos Aires, brugðu Eistlendingar sér í land og drukku sig vel hífaða. Sem þeir komu niður að skipi um

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.