Vikan - 24.08.1967, Síða 7
Judy Garland
og sá tilvon-
andi.
ÞAÐ ER JUDY GARLAND, sem átt er við. Bráðum kemur hún fram í
siónvarpsþáttum aftur. Grönn, falleg, svolítið hengslisleg og beina-
ber, með óveniustór, svört augu, sem hrópa á aðdáun.
Það er þó nokkur tími síðan hún kom fram í sjónvarpinu síðast,
slúðurdálkahöfundar hafa iafnt og þétt talað um hana, um skilnað
hennar og ný hjónabönd, taugaáföll og siálfsmorðstilraunir.
Hún hefur samt alltaf verið dáð sem listakona. Nú er hún komin yfir fer-
tugt og ætlar að gifta sig í fimmta sinn.
— Það má segia, að ég sé fædd í bakpoka, segir hún. Fcreldrar hennar
störfuðu við umferðaleikflokk; sjálf var hún aðeins þriggja ára, þegar henni
var í fyrsta sinn ýtt inn á leiksviðið, þar sem hún söng ,,BjölIuhljóm". Þegar
hún var fimm ára var hún farin að leika að staðaldri. Hún hafði yndi af
því að dansa, syngja og hlusta á gleðilæti áhorfenda. Þá hætti mamma
hennar að leika sjálf og yfirfærði þær vonir um leikfrægð, sem henni sjálfri
hafði aldrei hlotnazt vfir á dóttur sína, fór í leikferð með Judy, auðvitað
með Hollywood fyrir augum. Faðirinn kevpti lítið kvikmyndahús, til að sjá
fjölskyldu sinni farborða. Hann var aldrei hrifinn af því hve móðirin rak
Judy áfram, og heilbrigð glaðværð hans var Judv ómetanleg.
Þá kom hinn voldugi Louis B. Maver, forstjóri Metro-Goldwyn/Mayer,
auga á Judv, og hún var sett í leikskóla. Þar voru fvrir m. a. Mickev Rooney
og Deanne Durbin.
Þá dó faðir hennar. Það varð fvrsta sorgin sem varð á vegi hennar.
Eftir að hún var búin að vera eitt ár í leikskólanum, fékk Judy fyrsta
stóra hlutverk sitt. Það var í Andy Hardv myndunum, með Mickey Rooney,
sem var hinn dæmigerði prakkari og Judv var sú sem hann var alltaf skot-
inn í. Kvikmyndirnar gerðu gevsimikla lukku, og Judy og Mickey urðu að
þræla eins og skepnur, til að kreista fram eins margar mvndir og mögulegt
var. Þá fór hún að lenda í erfiðleikum með þyngdina. í hvert sinn sem hún
stakk upp í sig súkkulaðimola eða aukabita komst herra Mayer að því,
og svo sagði hann ósköp rólega við Judy:
— Þú ert að verða eins og vatnahestur, og ef þú grennist ekki, færðu
ekki fleiri hlutverk.
Judy vann af kappi og svelti sig. Hún sló algerlega í gegn í hlutverki
sínu í „Galdrakarlinum í Oz". En stuttu eftir að hún lauk við bað fékk hún
taugaáfall í fyrsta sinn.
Hún átti bágt með svefn. Þá fékk hún pillur til að geta sofið. Hún varð
máttlaus af næringarskorti og alltof mikilli vinnu. Þá fékk hún pillur til að
hressa sig. Og svo fékk hún pillur til að megra sig. Og alltaf varð hún að
vinna fvrir móður sinni og fvrir félagið, sem hafði verið svo ,,gott" við
hana. Hún var líka látin vita það, að ef hún gæfist upp, þá væru nógar
aðrar til að taka við af henni.
Þegar hún var 19 ára revndi hún í dauðans ofboði að slíta sig lausa.
Hún gftist Pavid Rose, sem var tónskáld og mörgum árum eldri en hún. Það
hjónaband endist ekki nema í nokkra mánuði.
Nokkru eftir skilnaðinn giftist hún í annað sinn, leikstióranum Vincente
Minelli, og þá voru bæði kvikmvndafélagið og móðir hennar ánægð, og
lögðu blessun sína á ráðahaginn. Hún eignaðist dótturina Lizu og lék f
nokkrum kvikmyndum, þar sem maðurinn hennar var leikstjóri. En taugar
hennar urðu æ verri. Hún var hrædd við kvikmvndaverið, hrædd um að gera
einhverja vitleysu, hrædd um að missa hylli áhorfenda.
Þegar hún var 27 ára, var henni boðið eftirsóttasta hlutverk ársins, hlut-
verk Annie í „Annie get your gun". Kvikmyndatakan hófst og Judy gerði
allt sem henni var unnt til að standa sig, og gekk fyrir pillum. En einn dag-
inn kom hún ekki í kvikmyndaverið, og félagið tilkynnti að Betty Hutton
hefði verið falið hlutverkið.
Judy varð veik, vinnulaus og missti peninga sína, — móðir hennar hafði
farið óvarlega með fé hennar. Félagið greiddi sjúkrakostnaðinn, og
þegar hún kom af sjúkrahúsinu fannst henni að hún hefði aldrei verið hressari.
Framhald á bls. 44.
Eldhúsborcf
á einum fæti
STALHUISG'O'GN
meira gölf pláss ■ lett ■ gott verff
■ allar gerffir og stærffir ■
■ stólar bekkir kollar ■
■ greiffsluskilmálar ■
m
betra ad sitja betra ad hreinsa betra ad rada
Ödinstorg sfmi
10322.
Fást í næstu búð
LOXENE
- og flasan fer
34. tbi. VIKAN 7