Vikan - 24.08.1967, Page 29
PHILIPS
PHILIPS
PHILIPS
★ Mestseldu útvarpstæki á íslandi.
★ Margar gerðir.
PHILIPS - Á ÍSLANDI
HEIMILISTÆKI SF.
Hafnarstræti 3, Sími 20455
Alltaf eitthvað nýtt — fró PHILIPS
★ Margar gerSir.
★ Verð frá kr. 2.325.00.
PHILIPS - Á ÍSLANDI
HEIMILISTÆKI SF.
Hafnarstræti 3, Sími 20455
★ Margar gerðir.
★ Greiðsluskilmálar.
★ Viðgerðarþjónusta.
PHILIPS - Á ÍSLANDI
HEIMILISTÆKI
Hafnarstræti 3, Sími 20455
Alltaf eitthvað nýtt — fró PHILIPS
Alltaf eitthvað nýtt — fró PHILIPS
Hann má við því
að missa skjólstæðing
Framhald af bls. 25.
Lögfræðingar, sem ekki gera
rækilegar grundvallarrannsóknir,
eru ekki starfi sínu vaxnir, segir
hann. Alltof oft kiósa þeir að halda
peningunum sjálfir í stað þess að
eyða þeim ( rannsóknir.
iFyrir réttinum pælir hann sig
áfram af nákvæmni og hikleysi
eins og viijasterkur greifingi og
grefur undan andstæðingi sínum.
Hann minnir meira að segja á greif-
ingja f útliti — stuftvaxinn, stæltur
og kraftalegur. Þegar hann verður
verulega móðgaður getur hann
hækkað sig f 1.75. Hann er sjötíu
og nfu kfló á þyngd, eða nokkurn-
veginn jafnþungur og þegar hann
lék f áhugamannahockeyflokki
Þorskhöfða (Cape Cod) fyrir fimm
árum. Það hleypur roði í digran
svfra hans þegar hitnar í kolunum
í réttarsalnum. Blá augu hans nfsta
hverja þá svipgrímu, sem jafnvel
hinn kaldlyndasti kviðdómari getur
brugðið fyrir adlit sér, og rödd
hans er hvöss en jafnfamt málm-
kennd. Hann er í essinu sfnu, segir
hann, þegar hann er móðgaður og
í skapi til að láta gremju sína f
Ijós. Þá finnst mér sem tappinn
hrökkvi úr, segir hann, og þá kemst
ég fyrst fyrir alvöru á skrið.
Svo lítið ber á er hann Ifka
slyngur dáleiðari.
— Dáleiðsla er ekkert annað en
afturhvarf til þess liðna, segir hann.
— Hún er eins og að rekja slóð,
að ganga til baka og endurlifa at-
burð. Dáleiðslan hefur kennt mér
að það er auðveldara að Ijúga þeg-
ar talað er í þátíð en nútfð. Ég
yfirheyrði einu sinni vitni, sem full-
yrti að skjólstæðingur minn hefði
nauðgað henni sjö sinnum sama
daginn. Ég sagði við skjólstæðing-
inn: Segðu mér frá einhverju sem
þið gerðuð þetta síðdegi svo ég
náti taki á henni. Hann svaraði:
Jú, við fórum fram f eldhús og
drukkum te.
Og svo fór ég varlega f sakirnar
með hana til að byrja með og sagði:
Reynið að muna smáatriðin, að sjá
herbergið fyrir yður eins og það
var þennan daginn. Hugsið yður
aftur á bak í tímann. Ég byrjaði á
þvf að fara f gegnum þýðingar-
laus smáatriði með henni — og
þetta er gildran, sá þáttur yfirheyrsl-
unnar þegar sagt er: Horfðu á vinstri
hönd mína. Vitnið horfir á vinstri
höndina, og svo lyftir maður þeirri
hægri.
Á þennan hátt vakti ég hjá henni
áhuga á ýmsu, sem hún annars
hefði ekki munað eftir, og kvið-
dómnum fannst hún sannfærandi.
Og síðan sagði ég með þessari
hálfsönglandi rödd, sem dæmigerð
er fyrir dáleiðandann: Mynduð þér
vilja segja okkur hvar þið sátuð og
drukkuð teið? Og hún sagði: Við
sátum f eldhúsinu. Og ég spurði:
Var það eftir fjórðu eða fimmtu
nauðgunina? Hún sagði: Það var
eftir þá fimmtu. Jæja, sagði ég,
þarna sjáið þið þá stúlku, sem eftir
að hafa verið nauðgað fimm sinn-
um fer með þeim ákærða fram í
eldhús, hitar te, fer síðan með hon-
um inn í stofu og þar nauðgar
hann henni tvisvar í viðbót. Þar
með var þetta runnið út í sandinn
fyrir henni.
Bailey er áhlaupamaður. Eini
hraðinn, sem hann þekkir, er full
ferð áfram. Hann ekur bíl á sama
hátt og hann flýgur flugvélinni sinni
— leggur sig allan fram, einbeitir
sér, leyfir sér aldrei neinn slóða-
skap.
Sami æsilegi hraðinn gagntekur
einkalíf hans. Hann á fimmtán her-
bergja fbúð á hæð einni f Marsh-
34. tw. VIKAN 29