Vikan - 12.12.1968, Síða 33
leysislega, hiklaust; allt í einu
fannst henni allt svo einfalt. Hún
mundi enn eftir ástríðuheitum
kossum hans í Arras, og þegar
varir hans snertu hennar, lokaði
hún augunum og andvarpaði of-
urlítið. Hún vissi ósjálfrátt, að
með þessum manni, sem var í
senn kaldur og ástríðuþrunginn,
var unaður ástarinnar óbrigðull.
Hann kunni að koma maka sín-
um til að gleyma öllu, stjórn-
málum, fólki; öllu, vegna þess að
hann hafði lært að stjórna sjálf-
um sér. Koss hans var ósegjan-
lega mildur, fullkomið sambland
af ástríðu og sjálfsstjórn. Hvað
ástarleiki snerti var hann meist-
arinn, sem allar konur bíða ó-
meðvitað eftir, og Catherine lét
eftir sér að berast á bylgjum
nautna og atlota, sem fljótlega
brutu niður alla mótspyrnu. Því
Philippe lét ekki staðar numið
við einn koss, nú þegar hann
hafði náð henni. Áður en langt
um leið, bar mildur blærinn, sem
laumaðist milli trjánna, burtu
með sér andvörp og ástarorð, út
yfir sofandi sveitina. Eina vitnið
að sigri Philippes var hestur
hans.
Þegar Catherine skynjaði
raunveruleik líkamlegrar ástar í
fyrsta sinni, opnaði hún augun
og starði upp í laufið yfir höfði
sér. Silfurbirta nýs tungls laum-
aðist ofan í rjóðrið og varpaði
bjarma á alvarlegt og spennt
andlit elskhuga hennar, á þeirri
stundu fannst henni hann næstum
yfirnáttúrulega fallegur; hún
vissi ekki, að hennar eigin andlit
var gagntekið af ástríðu. Phil-
ippe kæfði stutt sársaukaóp
hennar með kossi og andartaki
seinna varð það að langri unað-
arstunu.
Á eftir fól Philippe andlit sitt
í hári hennar og þakti það með
kossum, Catherine strauk um
vanga hans og fann að kinnar
hans voru votar af tárum.
— Ertu að gráta?
— Af hamingju, ástin mín, og
þakklæti. Ég hafði aldrei ímynd-
að mér, að þegar þú gæfist mér,
yrði það svo algjörlega og dá-
samlega ... að ég yrði sá fyrsti..
Hún lagði hönd sína yfir munn
hans til að þagga niður í honum.
— Ég sagði þér, að eiginmaður
minn hefði aldrei snert mig. Við
hverju bjóstu?
— Þú ert svo fögur.... Þú
hlýtur að hafa orðið fyrir mörg-
um freistingum ....
— Ég get passað sjálfa mig,
sagði Catherine með svo fallegri
grettu að með henni ávann hún
sér annan koss. Svo, þegar tungl-
skinið féll á nakinn líkama henn-
ar, reis Philippe upp til að ná í
teppi, sem hann hafði bundið við
söðulinn, og vafði því utan um
hana, áður en hann tók hana í
fangið aftur. Hann fór að hlæja.
— Ég hugsaði mér, að fyrsta
nótt okkar saman skyldi verða
með öllum þeim ljóma og íburði,
BEIIMT í MARK
Húsmœður !
Óhreinindj og blettir, svo
sem fítublettir, eggja-
blettir og blóSblettir,
hverfa á augabragði, ef
notaS er HENK-O-MAT í
forþvottinn eSa til aS
leggja í hleyti.
SiSan er þvegiS á venju-
legan hátt úr DIXAN.
HENK-O-MAT, ÚRVALS VARA FRÁ
Entfernt
P*t«-. Kakao-
SoBen-. Milch-. Eigelb-
s°9ar Blutfiecken '
|st^fbssfeitteí
s9h)íub-b?íf„rMeii
laktn, gegen F^gchccs
49. tbl.
É8 iWXIA