Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 4
Sjálfvirkar þvottavélar 5 kg
Frá kr. 23.450.00
KÆLISKÁPAR FIMM STÆRÐIR
AFBORGUNARSKILMÁLAR
Snorrabraut 44 - Reykjavík
Pósthólf 119 - Símar 16242 - 15470
4 VIKAN
SPADOMUR UM DAUÐA
Kæri Póstur!
Það er nýbúið að spá
því fyrir mér, að ég muni
farast í bílslysi, þegar ég
verð 17 ára, en ég er 15
ára núna. Ég vil taka það
fram, að ég er ekki hjá-
trúafull, en samt hefur
mér liðið hálf illa, síðan
þessu var spáð fyrir mér.
Kemur það ekki oft fyrir,
að spádómar eins og þessi
rætist?
Kæri Póstur: Svaraðu
þessu fyrir mig.
Og svo er það tvennt í
viðbót, sem ég vona, að þú
svarir líka fyrir mig.
Voru engar stelpur kosn-
ar númer 2 og 3 í táninga-
keppninni Unga kynslóðin?
Hvernig passa saman
stelpa, sem er fædd undir
Vatnsberamerkinu og
strákur fæddur undir Tví-
buramerkinu?
Með þökk fyrir allt gam-
alt og gott.
Hanna Bella.
Nei, það kemur mjög
sjaldan fyrir að spádómar
eins og þessi rætast, svo að
þú þarft ckkert að óttast.
Fyrir nokkru var þáttur í
sjónvarpinu, þar sem fjall-
að var um stjörnuspádóma
almennt. Þar komu fram
sálfræðingar og læknar,
sem lýstu því yfir, að
stjörnuspádómar væru
stórhættulegir og ætti helzt
að banna þá. Einn nefndi
dæmi um konu, sem allt í
einu fór að fitna og hætti
að sinna bömum sínum og
heimili. Hún var lögð inn á
sjúkrahús, en ek'kert dugði:
Hún fitnaði stöðugt og varð
sljórri og áhugalausari með
hverjum degi. L>oksins kom
í Ijós, hver orsökin var:
Því hafði verið spáð fyrir
henni í æsku, að hún mundi
deyja um ícrtugt. Og nú
var hún einmitt orðin
fjörutíu ára. Annar sagði
frá konu, sem spáð var fyr-
ir að mundi deyja 32 ára
gömul. Á 32. afmælisdegi
sínum lagðist hún upp, í
rúm, sneri sér til veggjar
— og dó! Að okkar dómi
eru stjörnuspár ágæt
dægradvöl og skemmtun,
en þær má alls ekki taka
of alvarlega. Að sjálfsögðu
langar alla til að vita hvað
framtíðin muni bera í
skauti sínu. En það væri
lítið gaman að lifa, ef mað-
ur vissi alltaf upp á hár
hvað gerðist næst. Óvissan
er einmitt það, sem gerir
lífið svo spennandi. — Að
þessu sinni var aðeins kjör-
in fulltrúi ungu kynslóðar-
innar, en ekki valið í ann-
að og þriðja sæti eins og
undanfarin ár. — Þeir sem
fæddir eru undir Vatns-
beramerkinu og Tvíbura-
merkinu eiga ágætlega
saman.
STARFSFRÆÐSLA . . .
Kæra Vika!
Það eru svo margir, sem
hafa leitað til þín með
vandamál sín. Þess vegna
ætla ég að gera það líka í
þeirri von, að þú svarir
mér.
Hvað geta stúlkur með
gagnfræðapróf lært, svo að
í því sé einhver framtíðar-
vinna? Þær fara margar í
hjúkrun og hárgreiðslu eða
verða flugfreyjur. En hvað
er fleira til og hvar er hægt
að fá upplýsingar um það?
Með fyrirfram þökk.
Ein í vandræðum,
Akureyri.
Á hverju hausti er hald-
inn í Reykjavík svokalláð-
ur starfsfræðsludagur. Þar
eru fulltrúar allra starfs-
greina og hægt að fá upp-
lýsingar um allt í þessum
efnum. Okkur minnir, að
slikir starfsfræðsludagar
hafi einnig verið haldnir á
Akureyri, en cf til vill eru
þeir ekki árlega. Svo er
einnig til kennslubók sem
heitir Starfsfræðsla og
hana er hægt að fá hjá
Ríkisútgáfu námsbóka. Þú
skalt reyna að fá uppgefið,
hver sé umboðsmáður fyr-
ir Rikisútgáfu námsbóka á
Akureyri og snúa þér síðan
til hans.
ÓTÍMABÆR GAGNRÝNI
Kæri Póstur!
Ég er 26 ára gömul hús-
móðir og eiginkona og mig
langar til að leggja fyrir
þig ofurlítið vandamál í
sambandi við hjónabandið