Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 11
LÚPUS
HELDUR ÁFRAIVI
AÐ SKRIFA PALLADÖMA
SÍNA UM ALÞINGISMENN. AÐ
ÞESSU SINNI TEKUR HANN BIRGI
KJARAN TIL MEÐFERÐAR. UM HANN
SEGIR LUPUS M.A.: SKAPFERLI BIRGIS
KJARAN MUN TVlÞÆTT - HARÐNESKJU-
LEGT KALDLYNDI OG VIÐKVÆM HÉGÖMA-
GIRNI. HANN ER KEPPINAUTUR HARLA
ÖVÆGINN, SKIPULEGGUR SÉRHVERJA BAR-
ÁTTU EINS OG STÖRSTYRJÖLD OG GERIR
OFT MIKIÐ ÚR LITLU EFNI. BIRGIR FÆR
ÞESS VEGNA ÞAÐ ORÐ AÐ VERA GRIMM-
UR í KAPPI SÍNU, EN ÞVÍ VALDA HEITAR
TILFINNINGAR, SEM EIGA RÆTUR
í VIÐKVÆMNI HANS.“ - NÆSTI
PALLADÖMUR FJALLAR UM
BJARNA BENEDIKTSSON,
FORSÆTISRÁÐ-
HERRA.
skrautlegar og vinsælar bæk-
ur, en átt mestan hlut að hinni
þriðju. Fjalla þær einkum um
ferðalög og útilíf og bera
fróðleiksþrá og náttúruskynj-
un höfundarins glöggt vitni.
Er hann betur menntur en
flestir íslenzkir stjórnmála-
menn nú á dögum og hefur
alls ekki gerzt einhæfur af
þeirri sérþekkingu, sem hon-
um gafst í háskólanámi sínu
erlendis. Maðurinn er list-
rænn fagurkeri og á sér fagr-
ar tómstundir. Dálítið þykir
hann gjarn til þeirra lysti-
semda, er nautnir kallast, og
kann sú freisting að gera hann
hverflyndari en þá stjórn-
málamenn, sem aldrei tælast
frá ábyrgð sinni. Nýtur Birg-
ir sín ágætlega að sumbli í
kunningjahópi, en liann hend-
ir víst einnig að þjóna veiga-
drottni í einrúmi. Þeirrar til-
hneigingar gætir hins vegar
sjaldan opinberlega, því að
þar er Birgir eins og feiminn
og hlédrægur, nema hami
hafi skyldur að rækja, en þá
fer liæglætið brátt af honum.
Birgir Kjaran er vel máli
farinn, rökfastur og áheyri-
legur og harla slyngur í kapp-
ræðum, ef hann beitir sér.
Mjúk rödd hans og einörð
framganga reynist geðfelld á
málþingum og mannamótum.
Leggur Birgir ærna vinnu í
ræður sínar og temur sér
sjaldan skrúðmálgan áróður,
þó að hann vilji berast nokk-
uð á í málflutningi. Hann er
hygginn og raunsær og ein-
staklega fylginn sér, ef mikið
liggur við. Birgir Kjaran er
gæddur næmri skipulagsgáfu,
sem andstæðingar hans ætla,
að hann hafi lært af þýzku
nazistunum, en mun honum
meðfæddur hæíileiki. Honum
á hann mjög að þakka frama
sinn í Sjálfstæðisflokknum.
Skapferli Birgis Ivjarans
mun tvíþætt — harðneskju-
legt kaldlyndi og viðkvæm
hégómagirni. Hann er keppi-
nautum harla óvæginn, skipu-
leggur sérliverja baráttu eins
og stórstyrjöld og gerir oft
mikið úr litlu tilefni. Birgir
fær þess vegna það orð að
vera grimmur í kappi sínu,
en því valda heitar tilfinn-
ingar, sem eiga rætur í við-
kvæmni hans, þó að maður-
inn sé annars raunsær og jafn-
vægur. Mun þetta geðslag að
nokkru sprottið af uppeldi,
en hefur orðið ávani með aldri
og þroska. Birgir er öllum til-
ætlunarsamari, og fái hann
ekki fram vilja sinn, er hon-
um gjarnt að verða einrænn
og þunglyndur í sárum von-
brigðum og dulinni gremju.
Virðist sennilegt, að hann hafi
gjarnan kosið sér meiri veg-
tyllur en Sjálfstæðisflokkur-
inn lætur honum í té. Hafði
Birgir áreiðanlega augastað
á embætti borgarstjórans í
Reykjavík, þegar Geir Hall-
grímsson hreppti þann starfa
eftir Gunnar Thoroddsen, og
ennfremur mun hann hafa
talið ómaklega framhjá sér
gengið, að honum skyldi ekki
boðinn ráðherradómur, er
Jóhanni Hafstein og Magnúsi
Jónssyni veittist það hnoss.
Hins vegar myndi Birgir fús-
lega afþakka slíka upphefð,
ef hann fengi hégómagirninni
fullnægt, því að hann lætur
sér iðulega viðurkenningu
nægja og er engan veginn eins
valdsækinn og flestir ætla.
Honum er sýnu meira í mun
að ráða bak við tjöldin og
hafa þar þau áhrif, sem hann
vill, en leggja á sig fvrirhöfn
ábyrgðarinnar. Birgir Kjaran
er raunar sprettharður í um-
svifum, en hann nennir varla
að slíta sér út á þeirri erfið-
isvinnu, sem æðstu metorð
ki-efjast. Maðurinn er þess
vegna misskilinn og eigi síð-
ur af flokksbræðrum en and-
stæðingum. Ríki hans er fíla-
beinsturn, sem úr verður séð,
en ekki inn í lxorft, og þang-
að er fáum boðið. Birgir Kjar-
an leynir ýmsu, sem honum
býr í sinni, og veit ágætlega,
að hann er grunaður um
græsku.
Slíku myndi hins vegar
enginn trúa, sem rekst á Birgi
Kjaran að náttúruskoðun
niðri í fjöru eða uppi í fjalli,
þar sem liann tínir steina eða
les blóm í snoturt safn og
dýrmætt. Þar gefst honum
sú unun að þurfa ekki að
sýnast, en geta veitt sér
indælan dagamun frá önnum
og áhyggjum. Vinir hans
verða helzt þeir, sem slást í
fylgd með honum í þvílíkar
ferðir eða hann ræðir við bók-
menntir og listir. Birgir er og
engan veginn svo ofstækur,
að hann þoli ekki sæmilega
skoðanir og viðhorf annarra
í kurteisi og bróðerni. Hon-
urn finnst til um gáfur og sér-
kenni í fari mikilhæfra eða
Framhald á bls. 46.
20 tbi. VIKAN 11