Vikan


Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 16

Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 16
Það var sænski greiíinn von RoRsen, sem hafði frum- kvæði um flutninga til hjálp- ar Bíöfrumönnum, sem komst svo að orði, að heimsins meginmein væri að þrátt fyr- ir gífurlegar tæknibyltingar síðustu áratuga væri hann ennþá í aðalatriðum hneppt- ur í skorður stjórnarkerfa frá nítjándu öld eða enn lengra aftan úr öldum. Þessu fylgdi seinlæti til þjóðfélagsumbóta, sljóleiki í mannúðarmálum og stórhættulegur skilaháttur í milliríkjaviðskiptum. Areiðanlega er mikið til í þessari umsögn sænska greif- ans. Fjölmargir voldugustu manna heims eru fæddir á nítjándu öld og manndóms- og móturnarskeið þeirra voru árinum kringum og upp úr aldamótunum. Nokkra má nefna. CHARLES DE GAULLE hershöfðingi, fæddur 1890, stjórnar Frakklandi enn harðri. Hann stendur af sér jafnt pólitískar og efnahags- legar kreppur og heimurinn getur ekki annað en dáðst að furðulegu úthaldi hans og lífsfjöri. í fyrrasumar ætlaði allt af göflunuin að ganga í óeirðum stúdenta og verka- manna, og vikurnar fyrir jól- in var frankinn í hættu —r en de Gaulle kemst yfir allt! FRANCISCO HAHA- MONDE F R, A N K O hers- höfðingi, fæddur 1892, er enn- þá ríkisstjóri konungsríkisins Spánar, önnum kafinn við að tryggja eftirmanni sínum ör- ugga framtíð. JOSIP TITO, l'æddur fæddur 1892, er fyrir utan de Gaulle sá eini af görpum síð- ari heimsstyrjaldar, sein enn er við völd. Að vísu gætir í landi hans andstöðu við stjórnina, en varla hafa Júgó- slavar mikinn áhuga á að skipta um leiðtoga í bráð, jafnmikið ' og þeir áttast nú nágrannann stóra í austri. WALTER ULBRICILT, fæddur 1898, er meðal elztu kommúnista. Hann sýnist liaía góð tök á sínu austur- þýzlca ríki og vera við góða heilsu. Ekki heldur þar bend- ir neit til leiðtogskipta í bráð. IIAILE SELASSJE Eþí- ópíukeisari, fæddur 1891, er líka enn ’við beztu iieilsu. SJANG KAÍ-SÉK mar- skálkur, fæddur 1887, mun nú vera aldursforsetinn með- al leiðtoga heims. Hann ríkir enn yfir eynní Formósu og horfir löngunaraugum yfir á kínverska meginlandið. Einn- ig honum heilsast vel, þrátt fyrir aldurinn. / Indíáninn rökstuddi skilnaðarumsóknina þaning: Mig planta korn, mig fá korn. Mig planta kartöflur, mig fá kartöflur. Mig planta Indjána, mig fá Kínverja. Guð lætur rigna jafnt á réttláta og rangláta, en þeir rang- látu geta þó altént stolið sér regnhlíf! Læknisfrúin er svo forvitin, að hún lét setja aukaheyrnartæki á hlustunarpípuna mannsins síns. V.___________;_______________________________________________:_V Iamlir menn í NVJIM HEIMI HO CHIN MIN, fæddur 1891, leiðtogi Norður-Víet- uams. Þessi litli, pervisni maður með rytjulega hökú- toppinn, lifir fábreyttu, næst- um meinlætalegu lífi, og er ákaft dáður af þjóð sinni. Otrúlegt er að hann láti af völduin í bráð, svo fremi að Elli kerling komi honum ekki á hné. MAÓ TSE-TUNG, fæddur 1898, hefur enn tök á stjórn- artaumunu mí sínu fjölmenna ríki, en óljóst er livort svo verður enn um langa fram- tíð. PÁLL páfi sjötti, fæddur 1897, er andlegur leiðtogi sex hundru ðmiljóna kaþólskra manna. Hann er hinn bratt- asti og hefur þegar sýnt, með pillubréfinu og á fleiri vegu, að hann vill ráða nokkru um hvernig fólk lifir lífinu. 16 VIKAN 20. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.