Vikan


Vikan - 14.05.1969, Síða 36

Vikan - 14.05.1969, Síða 36
 *■ RAFHA-HAKA 500 er bérstak- lega hljóðeinangruð. — Getur staðið hvar sem er án þess að valda hávaða. * Öruggari en nokkur önnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin að tæma vélina. V________________________________ ingjuna. 1931 hitti hún á Frönsku rivierunni mann, sem varð þriðji elskhugi hennar. Hann var brezkui' og af geysi tignum ætt- um. Hann bar titilinn hertoginn af Westminster og var frændi Viktoríu drottningar. Auk þess var hann í hópi ríkustu manna í Evrópu. Hann átti stórar lóðir og byggingar í hjarta Lundúnaborg- ar og höll úti á landsbyggðinni. Skemmtisnekkja hans „Flying Cloud“ lá ár hvert í Monte Carlo. Á sumrin dvaldist hann í fleiri vikur á Malta, en á vetrum var hann í Cap Martin, þar sem hann átti einbýlishús með 40 herbergj- um. Hann hafði verið kvæntur tvisvar sinnum, en skildi við báðar konurnar. Hann varð svo ástfanginn af Coco, að hann gat varla afborið einn einasta dag, án þess að heyra eitthvað frá RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full- komnum þvotti ef þér aðeins gœtið þess að nota rétt þvcttakerfi, þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Ullarþvottur 30° 2. Viðkvæmur þvottur 40° 3. Nylon, Non-Iron 90° 4. Non-Iron 90° 5. Suðuþvottur 100° G. Heitþvottur 60° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° 8. Heitþvottur 90° 9. Litaður hör 60° 10. Stífþvottur 40° 11. Bleiuþvottur 100° 12. Gerviefnaþvottur 40° Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. henni. Venjulegar póstsamgöng- ur voru alltof hægfara fyrir hann. Hann var svo óþolinmóður, að hann réði til sín fjóra sendimenn, sem hann lét fljúga með bréfin fram og aftur. Þrátt fyrir auðævi sín var hann lítillátur og sparsamur á sumum sviðum. Hann ók til að mynda aldrei í nýja Rolls Roysinum sínum, af því að honum fannst hann „alltof nýr og gljáandi". Hann klæddist ekki litríkum sportfötum, þótt hann færi til Monaco eða Cannes. Og þjónarn- ir urðu að fara með skóna hans til skósmiðs til að láta gera við þá. — Hvers vegna skyldi ég kasta þeim, fyrst hægt er að gera við þá, svo að þeir verði næstum jafngóðir aftur, sagði hann eitt sinn við Coco. Hún var hamingjusöm með honum. Henni hafði aldrei geðj- ast að mönnum, sem gerðu í því að vera glæsilega klæddir. Hún kallaði þá „menn sem klæða sig eins og konur“. Þessi þöguli og hógværi Englendingur féll henni betur í geð en nokkur annar maður, sem hún hafði kynnzt í seinni tíð. Hún talaði við hann á blendingi af ensku og frönsku. Hann vildi ekki að hún lærði ensku. — Það er gott, að þú skulir ekki skilja mikið í ensku, sagði hann eitt sinn hlæjandi við hana. — Þér mundi blöskra, ef þú skildir allt það sem blaðrað er um okkur. Og fólk blaðraði meðal annars um það, að hann væri alveg bál- skotinn í henni og vildi kvæn- ast henni, en hún vildi það hins vegar ekki og útskýrði það á þennan hátt: — Það hafa verið til margir hertogar af Westminster, en bara ein Coco Chanel! En þessi saga er uppspuni frá rótum. — Svona smekkleysu gæti ég aldrei hafa sagt, segir hún. — Þetta er argasta slúður og hel- ber ósannindi. Hún elskaði hann, en tízku- drottningin vildi ekki gera her- togann að kóngi sínum. Hún gift- ist honum aldrei og leiðir þeirra skildu, því að hertoginn vildi eignast barn og konu, sem helg- aði sig því og heimili þeirra. — Hann skildi mig ekki, segir Coco. — Hann gat ómögulega skilið, hversu starf mitt er mér lífsnauðsynlegt. Hann var of rík- ur og vildi eignast barn með mér. En ég átti þegar mitt barn fyrir: tízkuhúsið Chanel. Tízkuhúsið hennar var orðið fremst í sinni röð í öllum heim- inum. Frá Bandaríkjunum barst henni boð um að koma og veita Oscarsverðlaununum viðtöku fyrir starf sitt. ■—■ Guð minn góður! Og ég sem á ekkert til að vera í, hrópaði Coco upp yfir sig, þegar henni barst boðið. Og í fyrsta skipti í langan tíma teiknaði hún nokkra kjóla handa sjálfri sér. Síðan flaug hún til Los Angeles til að taka við verðlaununum. Greta Garbo tók á móti henni og henni var mikill sómi sýndur hvar sem hún kom í Bandaríkjunum. Þegar síðari heimsstyrjöldin brauzt út, varð Coco að hætta starfsemi sinni. Hún bjó í mörg ár í Sviss. Og jafnvel, þegar stríðinu var lokið, fór hún ekki aftur til Parísar. Var ferill henn- ar þar með á enda? Það tók hana fimmtán ár að ákveða, hvort hún ætti að hefja starfsemi sína að nýju og taka aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið. Það var ekki fyrr en 1954, sem hún opnaði aftur gamla tízkuhúsið sitt í Rue de Cambon. En nú var hún ekki lengur ein í tízkuheiminum. Nú þurfti hún að hefja samkeppni við unga og dugmikla menn: Balenciaga, Schiaparelli, Givenchy, og síðast en ekki sízt Christian Dior, sem hafði komið fram með beinu lín- una sína. Coco hafði megnustu fyrirlitningu á allri framleiðslu Diors. — Hann klæðir konurnar, eins og þær séu hægindastólar, sagði hún eitt sinn við blaðamenn. Hún fordæmdi harðlega tízku Diors og allir biðu með óþreyju eftir að sjá henanr eigin nýju og endurvöktu tízku. Þegar hún leit loksins dagsins ljós, sætti hún harðri gagnrýni. Hún fékk hraklega útreið hjá sumum gagn- rýnendum. Þeir sögðu, að sýning Coco Chanel hefði ekki verið annað en „allir þessir kjólar, sem við höfum séð svo oft áður“. Hin slæma gagnrýni varð að- eins til þess, að Coco var ákveðn- 36 VIKAN 20- tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.