Vikan - 22.04.1970, Qupperneq 6
ATHUGIÐ
Ef þú ert að byggja eSa þarft aS bæta og
jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum viS þaS
hagkvæmt aS líta viS hjá okkur, því aS sjón
er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali.
Gott verS.
LITAVER
KS»taZ2-24
3OZ80-32262
AÐEINS
KURLASH
augnabrúnaplokkari
með fingragripi,
hefiralla þessa kosti:
Rennur ekki.
Gefur fullkomna
yfirsýn.
Þér náiS auðveldlega
öruggu taki
Grípur örugglega
örsmá hár.
Heildsölubirgðir:
H. A. TULINIUS
HEILDVERZLUN
AfbrýSisöm
Kæri Póstur!
Ég ætla að biðja þig að ráða
fram úr vandamáli fyrir mig.
Ég er hrifin af strák og við vor-
um einu sinni saman. En nú er
önnur stelpa komin tiL sögunn-
ar, og þau eru byrjuð að vera
saman. Ég er svo voðalega af-
brýðisöm, af því að ég er enn
hrifin af honum. Mig hefur
dreymt stelpuna tvisvar sinnum;
í fyrra skiptið illa, en í síðari
skiptið dreymdi mig, að við vær-
um orðnar góðar vinkonur.
Hvað á ég að gera til að ná
sambandi við hann aftur?
Stella.
P.S. Hvernig er skriftin og
stafsetningin?
Þú skalt ganga hreint til verks,
hafa samband viff hann og spyrja
hann hreinlega, hvort hann vilji
hafa eitthvaff meff þig aff gera
effa ekki. Þá er máliff útrætt og
þú þarft ekki að þjást í naganði
óvissu. Ef hann vill heldur hina
stelpuna, þá lætur þú eins og
ekkert hafi ískorizt og ferff að
svipazt um eftir nýjum — og
kannski miklu betri.
Hrútur og Vog
Kæri Póstur!
Ég hef ósköp lítið að segja,
en þó kvelst ég af forvitni og
langar að spyrja: Hvernig eiga
saman Hrúturinn og Vogin? Gæti
hjónaband blessazt?
Kveðja, Sigga.
Þeir sem fæddir eru í Hrúts-
merkinu og Vogarskálarmerkinu
eru andstæðrar náttúru, en bæta
oft á tíffum hvort annaff upp.
Hjónaband getur því vel bless-
azt, en nokkur hætta er á, aff
þaff verffi stormasamt á köflum.
Sjúkraliðar
og stjörnuspá
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja þig að
gefa mér einhverjar upplýsing-
ar um sjúkraliðanám: hversu
langt það er og hvaða menntun
þarf til að komast í það og hvort
það er eitthvert aldurstakmark
og eins í hverju starfið er fólgið
á sjúkrahúsunum.
Eins langar mig til að vita,
hvaða merki eiga bezt saman
við meyjarmerkið. Ég er mikið
með manni, sem fæddur er í
krabbamerkinu, en mér finnst
við ekki eiga mjög margt sam-
eiginlegt. Hann er mjög dulur og
innhverfur, og við eigum stund-
um erfitt með að tjá okkur hvort
gagnvart öðru. Einnig höfum við
töluvert ólík áhugamál.
Svaraðu mér fljótt.
Með kæru þakklæti.
Stella.
Þeir sem fæddir eru í meyjar-
merkingu og krabbamerkinu
eiga lieldur vel saman. Krabbinn
er yfirleitt miklu tilfinningarík-
ari og viffkvæmari, en meyjan
hins vegar skynsamari og raun-
særri og kemur þaff nokkuff
heim og saman viff þaff sem þú
lýsir. En ykkur ætti aff farnast
vel í sambúffinni þrátt fyrir þaff.
Sjúkraliðanám tekur átta mán-
uffi. Fyrst er bóklegt námskeið
í einn mánuff en síffan tekur viff
vinna á sjúkrahúsi. Námiff er
fólgiff í hjúkrunarstörfum, og
starf sjúkraliffa er taliff mjög
gagnlegt fyrir sjúkrahúsin.
Er tyggigúmmí
skaðlegt?
Kæri Póstur!
Þú leysir vanda svo margra,
sem skrifa þér, og þess vegna
datt mér í hug að senda þér
línu. Vandamál mitt er kannski
ekki sérlega stórvægilegt, en það
veldur þó áhyggjum og leiðind-
um og þætti mér vænt um, ef
þú vildir svara mér vel og skyn-
samlega, eins og þú gerir oft, en
ekki þó nærri alltaf.
Þannig er mál með vexti, að
dóttir mín tyggur tyggigúmmí í
tíma og ótíma. Þessi ávani henn-
ar fer óskaplega í taugarnar
bæði á mér og ekki síður pabba
hennar. Hún er eins og allir
krakkar, sem komnir eru yfir tíu
ára aldurinn, hræðilega þrjózk
og lætur sér alls ekki segjast.
Henni er sannkölluð fróun að því
að tyggja sitt tyggigúmmí beint
fyrir framan augun á okkur, —
auðvitað fyrst og fremst af því
að hún veit, að við getum ekki
þolað það.
Ég hef einhvern tíma heyrt
því fleygt, að tyggigúmmí hreinsi
tennurnar og hef alltaf staðið í
þeirri meiningu, að það sé ekki
skaðlegt, heldur aðeins hvimleitt
og óþolandi ósmekklegt að vera
jórtrandi sí og æ, að minnsta
kosti að dómi langflestra. Ég
veit, að í flestum skólum til
dæmis er bannað að tyggja
tyggigúmmí í tímum.
En nú kem ég að aðalefni
þessa bréfs. Vinkona mín sagð-
G VIKAN
17. tbl.