Vikan


Vikan - 10.12.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 10.12.1970, Blaðsíða 34
ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER iSVEGI 22-24 30280-32262 VERULEGA VONDUÐ VERÐIÐ VIÐRAÐANLEGT Garðar Ólafsson Lækjartorgi - sími 10081 STJÖ RNOSPfl*^ n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þessi vika mun verða sérstaklega viðburðarík og skemmtileg, en þú skalt gæta hófs í hvívetna og ekki baka þínum nánustu sorg með heimskulegu framferði. HeiUatala er sex. Nautsrr.erkið (21. aprll — 21. maQ: Hafir þú eitthvað mikilvægt á prjónunum, skaltu Ijúka því af í þessari viku, því að hún er hagstæð til allra stórræða. Það getur verið, að einhver geri þér óvæntan greiða, sem þú skalt reyna meta. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Ýmislegt óvænt mun henda þig í þessari viku. Láttu ekki hugfallast þótt þú mætir nokkrum mótbyr með fyrirætlanir þínar, þú sérð ef til vill seinna hversu þær eru heimskulegar. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Ýmsar áætlanir þínar þurfa breytinga við — þér hættir til að vera þröngsýnn og íhaldssamur um of. Peningamál og ástamál verða farsæl í þessari viku. Það er sannarlega mál til komið. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú skalt nota tómstundir þínar þessa viku til þess að hjálpa kunningja þínum, því að hann er í kröggum og þarf sannarlega á hjálp að halda. í einkalífinu ættirðu að fara þér hægt. & AAeyjarmerkið (.24. ágúst — 23. september): Undanfarið hefur þú unnið mjög að erfiðum við- fangsefnum og loks nú munt þú bera eltthvað úr býtum. Ástin mun sækja þig heim, þótt ekki verði hún langvinn, ef að líkum lætur. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú ert eirðarlaus og ættir að njóta meiri samvista við fjölskyldu þína og láttu ekki hið órólega skap- lyndi þitt verða ofan á í viðskiptum þínum við vini þína og ættingja. Bruðlaðu ekki með peninga. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú skalt ekki taka til greina hvatningar fólks, sem þú ert í vafa um, að vilji þér vel. Ungt fólk mim eignast nýja vini um helgina og sennilega fara í einh ver \ samkvæmi. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Fólki, sem fætt er undir þessu stjörnumerki, ber að varast að gefa skapofsa sínum lausan tauminn í þessari viku — það getur haft óheppileg áhrif á framtíðina og þá sér í lagi heimilisiífið. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Ekki mun þér og foreldrum þínum koma nógu vel saman þessa viku og átt þú nokkra sök á því. Allt mun þó að lokum falla í ljúfa löð fyrir tilstilli góðra manna. Happaafmælisdagur 10. janúar. AM Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Kunningi þinn mun leita til þín í öngum sínum og skalt þú gera þitt bezta til að hjálpa honum út úr klípunni, sem hann er í, og hann mun launa þér rikulega þótt seinna verði. Heillalitur blátt. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þetta er vika ástarinnar. Gift fólk mun öðlast meira samræmi í hjónabandinu og ógiftir finna ef til vill ævinfélagann, en eitt ber þó að varast umfram allt: að vera of leiðitamur i ástamálum. 34 VIKAN 50- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.