Vikan - 13.05.1971, Síða 3
19. tölublað - 13. maí 1971 - 33. árgangur
Vikan
Það er miklu
stolið úr
kjörbúðum
I»jófnaðir í kjörbúðum hafa
lengi verið erfitt vanda-
mál. Þeir beinlínis hækka
vöruverðið, því að
auðvitað borga kúnnarnir
skaðann en ekki kaup-
maðurinn. Við segjum frá
því, hvernig Svíar bregð-
ast við kjörbúðaþjófunum í
grein á blaðsíðu 8.
EFNISYFIRLIT
GREINAR Bls
Viðskiptamenn og starfsfólk undir eftirliti 8
Frægðarsaga Ivans Rebroffs 14
Þeir tákna samvizk u heimsins 20
Hann söng
í Fiðlaranum
Ivan Rebroff er nú talinn
einn fremsti bassa-
söngvari heims, þótt hann
sé enn lítt kunnur hér á
iandi. Hann varð fyrst
frægur fyrir fáum árum,
þegar hann söng í Fiðlar-
anum á þakinu. Sjá nánar
um Ivan Rebroff í grein
á blaðsíðu 14.
Þeireru tákn
samvizku
heimsins
Arkitekt, flugliðsforingi og
vísindamaður: Þrír menn
scm allir eiga það sam-
eiginlegt, að þeir hafa
fundið til ábyrgðar vegna
giæpaverka samtíðarinnar.
Einn þessara manna er
Albert Speer, sem nýlega
hefur skrifað endurminn-
ingar sinar. Sjá blaðsíðu 20.
KÆRI LESANDI!
Það fer vel á með vori og hækk-
andi súl að hleypa af stokkunum
spánnýrri getraun. / Sumarget-
raun Vikunnar eru óvenjulega
glæsilegir vinningar: 100 Agfa-
myndavélar. Samanlagt verðmæti
vinninganna er um 200 þúsund
krónur. Vikan hefur oft áður éfnt
til getrauna, en sjaldan lxafa jafn-
margir góðir vinningar verið
í boði í einu.
Mgndavélarnar eru allar af
sömu gerð, Agfamatic, og eru
mjög sterkar og einfaldar og
þægilegar í meðförum. Þær eru
þannig útbúnar, að hver sem er
getur tekið góðar myndir á þær,
bæði i litum og svarthvítu. Það
þarf semsagt enga sérstaka kunn-
áttu i Ijósmyndún til að táka
nvyndir á Agfamatic-myndavél-
arnar; engar vangaveltur í sam-
bandi við tjós, liraða og fjarlægð,
heldur aðeins að smella af. Börn
komast hæglega upp á lag með að
nota slíkar myndavélar og hafa
mikla áinægju af að taka sjálf
sínar eigin myndir.
Siðast þegar VIKAN efndi lil
getraunar varð þátttakan meiri
en nokkru sinni áður. Það var í
Jólagetrauninni okkar, en þá
voru vinningarnir 500 leikföng.
Það er von okkar, að þátttakan
verði ekki síður góð nú. Sumar-
getraunin verður í fimm næstu
blöðum.
SÖGUR
Þar til dauðinn aðskilur, ný og spennandi framhaldssaga, fyrsti hluti 16
Góðverk í stað hefndar, smásaga 12
Gullni pardusinn, framhaldssaga, 17. hluti 32
ÝMISLEGT
Sumargetraun Vikunnar, fyrsti hluti. Vinn- ingar eru 100 Agfa-myndavélar 24
Þegar handritin komu, myndasyrpa 26
Eldhús Vikunnar: Hænsnaréttir. Umsjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 22
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Mig dreymdi 6
1 fullri alvöru 7
Stjörnuspá 31
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 47
Síðan síðast 48
1 næstu viku 50
FORSÍÐAN
Forsíðan er að þessu sinni til að minna á Sumar-
getraunina, sem við hleypum af stokkunum í
þessu blaði. Hver vill ekki eignast nýja mynda-
vél til að festa á filmu ánægjustundir sumarsins?
Vinningarnir eru einmitt 100 Agfa-myndavélar.
vii\An Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteiknlng:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Slgriður
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjóm,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð i lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 28 blöð
misserisiega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst.
19. TBL. VIKAN 3