Vikan - 13.05.1971, Side 9
Öryggisverðií í einu stærsta vöruhúsi Stokkhólms segja
frá reynslu sinni. Konan í hringnum er öryggi&vörður í
NK vöruhúsinu í Stokkhólmi. Það er starf hennar að hafa
gætur á viðskiptamönnum og tilkynna yfirmanni gæzl-
unnar ef hún sér fólk hnupla. Aðrir gæzlumenn hafa gát
á starfsfólkinu, meðal annars með því að kaupa eitthvað
án þess að biðja um kassakvittun. Gæzlumaður, sem er
hættur því starfi segist oft hafa fylgst með fólki í mát-
unarklefunum, þar sem það heldur sig vera eitt. Það
voru margir gripnir yfir daginn........
... í einum mátunarklefanum
í dömudeild NK er ung stúlka
að máta margar peysur, sem
hún hefir tekið með sér inn í
klefann. Hún setur sig í alls-
konar stellingar fyrir framan
spegilinn, beygir sig og sveig-
ir. Hún heldur að hún sé ein,
en það er hún ekki! í næsta
klefa liggur ein gæzlukonan á
gólfinu og fylgizt með öllum
hennar hreyfingum, gegnum
rifu á veggnum.
— Þannig gekk það oft til í
NK, þegar ég var gæzlumaður
þar, segir ungur maður, sem
nýlega er hættur störfum í
vöruhúsinu.
Við náðum í flesta at-
vinnuþjófana í mátunarklefun-
um. Þar létu þeir sig ekki muna
um það að fara í einar bux-
urnar utan yfir aðrar. Og þar
fór kvenfólkið oft í hverja
peysuna utan yfir aðra. Úra-
þjófarnir komu úrunum úr vös-
unum 1 skóna.
— Þessvegna höfðum við
mest gát á þessum klefum.
Þegar einhver grunsamlegur