Vikan - 13.05.1971, Síða 22
Hænsna-
rétdr
eldhús
vikunnar
Dröfn H.
Farestveit
Það eru ekki bara kjúkl-
ingar sem eru ætir, heldur
líka hænur, þó ekki of
gamlar. Lærið að þekkja
unga fugla frá gömlum
svo þér kaupið ekki hænu
fyrir kjúkling. Það er illt
að hafa boðið fjölda fólks
til kjúklingaveizlu, en
komast svo að raun um
að kjúklingurinn er 2*/2—
3 ára gömul hæna, seig
eins og svampur. Ungir
fuglar þekkjast á eftirfar-
andi: 1. brjóstbeinið á að
vera kúpt og neðsti hluti
þess mjúkur og sveigjan-
legur. 2. Húðin á lærum
og leggjum á að vera ljós
og slétt. Klær og nef eiga
að vera hvöss. Eldri fugl-
ar þekkjast á eftirfarandi:
1. Brjóstbein og liðir eru
harðir. 2. Húðin á lærum
og leggjum er gróf og
dökk. Klær og nef eru sljó.
Hænsnfugla er hægt að
steikja ef þeir eru yngri
en l/2 árs. Fuglar, sem
eru V/2 til 2 '/2 árs er að-
eins hægt að sjóða. Fuglar
eldri en 2*/2 árs eru ekki
til annars nýtir, en fá
súpukraft úr kjötinu.
GLÖÐARSTEIKTUR
KJOKLINGUR
1 kjúklingur
1/2 sítróna
V2 tsk. salt
Til penslunar:
2 msk. olía
IV2 tsk. salt
Va tsk. hvítur pipar
paprika
Kjúklingurinn nuddaður að ut-
an og innan með sltrónu og
salti. Hann er síðan bundinn upp
og þræddur á grillspjótið. Pensl-
ið með olíu og stráið kryddinu
á. Setjið í heitan ofninn. Glóð-
arsteikið í 50—60 mínútur. Tím-
inn fer þó eftir stærð fuglsins.
PIMENTO-
KJÚKLINGUR
2 kjúklingar
salt, pipar
50 gr. smjör
2 tsk. karry
1 bolli kjötsoð eða sjóðandi vatn
1 græn og 1 rauð paprika
1 epli
l'/2 dl. rjómi
e.t.v. jafningur .
brauð, grænt salat
Kjúklingarnir skornir í bita og
stráðir salti og pipar. Smjörið
brætt í potti, karry sett útí og
kjúklingabitarnir steiktir vel.
Soðinu hellt yfir og látið sjóða
í 15 mínútur. Því næst er gróf-
saxaðri paprikunni, rifnu eplinu
og rjómanum blandað saman
við. Soðið við vægan hita þar
til kjötið er orðið meyrt. Ef
vill má jafna sósuna. Berið fram
brauð og grænt salat með.
KJÚKLINGAR
RÍS0TT0
(FYRIR 6-8)
2 glóðarsteiktir kjúklingar
1 fíntsaxaður laukur
1 hvítlauksbátur
3—4 msk. olía
6 dl. hrísgrjón
1 fíntsaxað epli
V2—I msk. karry
4 msk. tómatkraftur
12 dl. teningasoð
salt, pipar
1 rauð og 1 græn paprika
(skorin í hringi)
100 gr. sveppir
Olian hituð í þykkbotna potti.
Laukur og hvítlaukur settur útí.
Látið sjóða í feitinni, án þess
að brúnast. Epli og karry sett
útí og látið steikjast með smá
stund. Hrísgrjónin sett útí. Hrær-
ið í. Tómatkrafti bætt í og soði.
Látið hrísgrjónin krauma undir
þéttu loki í 18 mínútur. . . A
meðan er kjúklingunum skipt í
bita og kjötið tekið frá bein-
unum og skorið í fína strimla.
Því næst eru sveppir og paprika
látið krauma í olíu eða smjöri
þar til blandan er meyr . . . Ten-
ingasoð má setja á ef þörfgerist.
Kjúklingakjötið sett útí og látið
verða heitt. Rétt áður en réttur-
inn er borinn fram er kjúklinga-
grænmetisblöndunni blandað
gætilega saman við hrísgrjónin.
Hrærið ekki of mikið í, þá verð-
ur þetta of grautarlegt. Skreytið
með nýjum paprikustrimlum.
Berið brauð fram með þessum
rétti. Einnig má setja kjúklinga-
grænmetisblönduna á mitt fatið
og láta svo hrísgrjónin ! rönd
utan um. Skreytið siðan með
fíntsaxaðri papriku.
OSTBAKAÐIR
KJÚKLINGAR
(FYRIR 6)
2—3 kjúklingar (glóðarsteiktir)
1 ds. aspas
50 gr. skinka
1 ds. eða 1 pk. aspassúpa
1 dl. rjómi
ca. 1 dl. rifinn ostur
Kjúklingunum skipt í fernt og
settir í eldfast fat. Skinkan skor-
in í strimla og stráð yfir. Soðið
látið renna vel af aspasinum
og setjið yfir. Hellið óþynntri
aspassúpu yfir, blandaðri með
stífþeyttum rjóma. Stráið rifn-
um osti yfir og bakið við 250°
í ca. 20 mínútur eða þar til allt
er gegn heitt.
HÆNA
MEÐ GRÆNMETI
(FYRIR 4)
1 hæna
200 gr. saltað flesk
75 gr. smjörlíki
1 lárviðarlauf
5 piparkorn
ca. 1 tsk. salt
vatn
4 gulrætur
4 meðalstórir laukar ■
250 gr. rósakál (fæst fryst)
15 sveskjur
Hænunni skipt í hæfilega bita
og brúnuð í smjörlíkinu. Krydd-
inu bætt í og það mikið af vatni
að næstum hylji kjötið. Sjóðið
þar til hænan er orðin meyr. í
ca. 2'/2 klst. Látið grænmetið
í, sem er skorið í bita og sjóðið
með síðustu mínúturnar ásamt
sveskjunum.
HÆNSNARAGÚ
(FYRIR 6)
1 hæna
75 gr. smjörlíki
1/2 ds. aspas
1/2 kg. kjötfars
salt
rækjur
Sósa:
50—60 gr. hveiti
50—60 gr. smjörllki
ca. 8 dl. kjötsoð
Skiptið hænunni ( 8—10 bita og
brúnið ! smjörKki. Sjóðið bitana
meyra í eins litlu vatni og unnt
er. Búið til stórar bollur úr kjöt-
farsinu og sjóðið í soðinu.
tþúið \til Ijósbrúna sósu úr
hveiti, smjörlíki og soði. Notið
líka aspassoðið. Bragðið til með
salti. Setjið hænsnabitana, kjöt-
bollurnar og aspasinn á fat með
köntum og hellið sósunni yfir.
Skreytið með rækjum og aspas-
toppum.
22 VIKAN 19. TBL.