Vikan - 13.05.1971, Side 48
síðan
síðast
Hanoi undirbýr innrás
Það er ekki svo langt síðan
að „forseti“ Suður-Vietnam
lýsti þvi yfir að vel gæti kom-
ið til mála að hermenn hans
yrðu sendir inn í norðurhluta
landsins. Hérna megin á hnett-
inum þykir okkur það heldur
ólíklegt, en í Hanoi tóku ráða-
menn þessari hótun Thieus
bókstaflega og fóru þegar að
gera ráðstafanir enda líklegt
að þeir þekki betur efndir
loforða andstæðings síns en við
skrælingjarnir. Börn voru þeg-
ar send út af örkinni til að
grafa gryfjur til varnar loft-
árásum og er líklegt að það
hafi verið eins konar síldar-
hrota þar í landi, það er að
segja að allir barnaskólar hafi
gefið frí til að grafa skotgraf-
ir. Sinn er siðurinn í landi
hverju . . .
Enn virðist lítill kosningahiti
kominn í mannskapinn, enda slag-
urinn rétt að byrja. Okkur bárust
heldur færri botnar en áður við
fyrripartinum um kosningarnar.
Hins vegar er mjög góð þátttaka
í botnunum tveimur, sem sendir
voru út í páskablaðinu. Annar
fjallaði um geirfuglinn marg-
nefnda, en hinn var um sjó-
mennsku og hjónaband.
En snúum okkur þá að kosn-
ingafyrripartinum. Hann hljóðaði
svo:
Hvað skal gera og hvernig fer,
hverja kýstu á næsta vori?
Við ákváðum að veita Einari B.
Guðmundssyni, Suðurgötu 8,
Seyðisfirði viðurkenningu fyrir
þennan botn:
Sveimér ef ég segi þér,
sumir nasa úr hverju spori.
Eins og venjulega birtum við
nokkur sýnishorn af framleiðsl-
unni, þótt þau verði færri í þetta
sinn vegna lélegrar þátttöku:
málshátturinn
• Ijeiður kj'aftur heldur
sér aldrei aftur.
w_____________________/
En ef til þess kæmi að Suð-
ur-Víetnamar réðust inn í
Norður-Víetnam, má telja nær
öruggt að Kínverjar blönduðu
sér í málið og við það hugg-
um við okkur: Kaninn vill
áreiðanlega ekki að til þess
komi — sérlega ekki eftir vel-
heppnaða pingpong leiki í
Kína nýverið.
Að velja og hafna vandinn er,
vel því gættu í hverju spori.
Jón Sigfinnsson,
Norðurgötu 7, Seyðisfirði.
Þótt illa stjórnað oft sé hér,
um að skifta varla þori.
Stjórnin gömul orðin er,
um að skifta víst ég þori.
Gunnar frá Hofi.
Hækka launin, lækka smér,
í loforðunum allir mori.
B.Þ.S.
Fæstir sjá hvað fyrir ber
eða felst í næsta spori.
Fæstir sjá hvað fyrir ber
og felast kann í næsta spori.
Sig. Magnússon,
Hverfisgötu 14, Hf.
I athugun það er hjá mér
og óvíst hvort ég kjósa þori.
Til allra flokka ást ég ber,
en úrslitanna spá ei þori.
Magnús Hjartarson,
Skaftahlíð 29, Rvík.
Stærsta sprúttbúð
í heimi
Væntanlega myndi einhver
þiggja að fá að róta örlítið í
hillum þessarar búðar, sem er
á eynni St. Thomas (áður und-
ir dönskum yfirráðum sem
fleiri eylönd) rétt hjá Puerto
Rico. Þessi búð heitir A. H.
Riise Liquor Store og er, eins
og nafnið bendir til, brenni-
vínssjoppa. Eigandi búðarinnar
Víst úr mörgu að velja er,
svo varla spá ég nokkru þori.
Olafur Gunnarsson,
Skólavörðustíg 33, Rvík.
Hrynur stjórn, sem hauslaus er,
held ég engan kjósa þori.
Geirmundur Valtýsson,
Geirmundarstöðum,
Skagafirði.
Ég engan kýs, því enginn ber
af öðrum svo ég nefna þori.
Þingmannsefnin: þröngsýnn her
þau ég varla kjósa þori.
Einar Ólafsson,
Fellum, N-Múl.
Held ég bezt að „hanna" sér
Hermóðs líka, gædda þori.
Ingimundur ,
á Svanshóli.
Bitlingar ef bjóðast mér,
bregzt ég við og svara þér.
Einar B. Guðmundsson,
Suðurgötu 8,
Seyðisfirði.
er Michael nokkur Paiewonsky,
sem er hér fremst á myndinni
ásamt norskri konu sinni Anne-
mor. Mikki segir sig umfangs-
mesta vínsmásala í heimi og
nefnir máli sínu til sönnunar
að árlega selji hann 1,2 millj-
ónir flaska af sterku víni og
álíka mikinn líkjör og öll New
York-borg. Þá eru verðin í
þessari súpersjússasjoppu um
40% lægri en í Bandaríkjun-
um.
Kúnnarnir geta valið á milli
um 1000 ólikra tegunda og er
viskí hvað vinsælast, sérlega
þó White Label. Þó ku það
færast í vöxt að menn kaupi
líkjöra og fleira í þeim dúr en
ekki fara sögur af neinum
ofsasölum á íslenzku brenni-
víni — hvað þá ákavíti!
Dýrasta vínið þarna er
franskt konijakk, Clos Rainaud
Vintage árgerð 1906, enda ekki
til nema örfáar flöskur og
kostar hver um 11.000 krónur
islenzkar. Nýjung fyrirtækis-
ins eru litlir plastpokar, sem
taka um 4 centilítra og er
mönnum ráðlagt að rífa horn-
ið af pokunum þegar þeim
verður kalt — til dæmis í is-
knattleikskeppni. En hvenær
verður svo kalt í Vestur-Indí-
um?
☆
hvar
er hampur mest ræktaður í heim-
inum?
hver
var keisari ( Frakklandi á árun-
um 1852-1870?
hvenær
var Búastríðið háð?
geturðu botnað?
48 VIKAN 19. TBL.