Vikan


Vikan - 19.04.1972, Qupperneq 8

Vikan - 19.04.1972, Qupperneq 8
TUGTHÚS OG RÁÐHÚS UNDIR SAMA ÞAKI Frásögn eftir Oscar Clausen, rithöfund Fá hús eru oftar í fréttunum en litla hegning- arhúsið að Skólavörðustíg 9. Óþarft er að orð- lengja, að þar er aðbúnaði öllum mjög ábóta- vant. En þótt húsi þessu sé fundið margt til foráttu nú á dögum - þá hefur margt mark- vert gerzt innan veggja þess. Þetta er gamalt og sögufrægt hús, sem hefur þjónað jafnt há- um sem lágum. Oscar Clausen, rithöfundur segir okkur sögu þess hér á eftir. Það var aumlegt ástand í tugthús- og hegningarmálum landsins fyrir rúmum hundrað árum. Þá höfðu dönsku stift- amtmennirnir tekið gamla tugt- húsið á Arnarhóli, — Stjórnar- ráðshúsið, — sér til íbúðar, en fangar voru geymdir í Svart- holinu, sem svo var kallað, en það voru dimmir og kaldir klef- ar í þakhæðinni á húsi Lands- yfirréttarins, sem nú er í verzl- unarhús Haraldar Árnasonar í Austurstræti. -— Við þetta hafði verið notazt í nokkra áratugi, eða nálega hálfa öld. En vorið 1872, eftir að Danir höfðu af náð sinni „sett“ okkur stöðulögin illræmdu og sam- kvæmt þeim „skikkað" okkur landshöfðingja, rann upp ljós fyrir stjórnarherrunum í Kaup- mannahöfn. Þeir sáu þá að hér á íslandi þurfti að vera betra svarthol, m.a. til þess að geymsla íslenzkra glæpamanna væri örugg. Þá ákvað Kansellíið danska að byggja tugthúsið við Skólavörðustíg 9 í Reykjavík, sem enn er notað. í byrjun maímánaðar um vorið var byrj- að á undirstöðum þessa mikla húss, og var því valinn staður „í Arnarholtinu meðfram aðal- veginum eður Skólavörðuveg- inum fyrir ofan og norðaustan byggðina, sem er komin þar vestan í holtinu". — Það skal tekið fram, að á þeim tímum var Skólavörðustígurinn aðal- vegurinn eða öllu heldur eini vegurinn til höfuðstaðarins, en að sunnanverðu við stíginn voru þá aðeins komin nokkur elztu húsin, sem enn standa þar fyrir neðan Bergstaðastrætið. Þetta var því talið fyrir ofan bæinn eða utan han'n. Stjórnin í Höfn hafði látið gera teikningu af Hegningar- húsinu og gert samning við danskan timburmeistara í Höfn um að byggja það fyrir ákveðna upphæð, en lýsingin á húsinu er á þessa leið: „Þetta hið mikla hús á að vera 62 álnir (ca. 40 metrar) að lengd og I8V2 alin (ca. 12 m) á breidd, allt úr múruðum grásteini þvert og endilangt, — 24—26 eiga að verða herbergi alls og fanga- kompur, milligangur eða rang- aii eftir miðju húsinu endi- löngu. — Eru kompur þessar og herbergi ætluð til fangahalds- ins, öll nema 3, sem ætluð eru handa fangaverði og heimilis- fólki hans. Þetta er allt á gólfi og undir loftinu. En svo á að koma yfirbygging þar ofan á, yfir mitt húsið yfrum þvert, 28 álnir (19 m) á lengd, — þar er ætlað að séu 3 miklir salir auk uppgönguforsals, — skal einn vera dómsalur Landsyfrirrétt- arins og hliðarherbergi fyrir skjalasafnið o.fl., annar bæjar- þingsalur, og að líkindum þing- salur Seltjarnarnesshrepps, en Borgarfundarsalur og staðar- ráðsins hinn þriðji.“ — Húsið var fyrsta áratuginn notað eins og hér var gert ráð fyrir, nema hvað aldrei var vorþing Seltirn- inga háð í neinum hinna „miklu sala“, sem að vísu hver um sig eru minni en stofurnar í villun- um, sem nú eru byggðar, og geta því ekki talizt lengur „mikir salir“. Það þótti í meira máta kátleg ráðstöfun dönsku stjórnarinn- ar, en í fullkomnu samræmi við fyrra og venjulegt ráðslag hennar í fslandsmálum, að fela dönskum timburmeistara að byggja þetta steinhús, sem hann átti að koma upp samkvæmt teikningum fyrir 20 þús. ríkis- dali. ..Meistari" þessi hét Klein og var íslendingum áður kunn- ur. Honum hafði verið falið nokkrum árum áður að byggja bókasafnshúsið við Menntaskól- ann í Reykjavík, hina svoköll- uðu „íþöku“, sem ríkur Eng- lendingur gaf. Þá hafði þessi ..meistari" Klein þó ekki látið svo lítið að sýna á sér smettið hér á landi. Hann kom nefni- lega aldrei hingað til þess að líta eftir því, hvernig þau bygg- ingarverk væru af hendi leyst, en tók þó 1600 ríkisdali fyrir snúð sinn eða fullan % hluta þess, sem byggingin kostaði. Það var því í byrjun megn ó- ánægja yfir því, að innlendum byggingarmeisturum í Reykja- vík var ekki gefinn kostur á að taka byggingu tugthússins að sér, og voru þó til bæði vanir og velreyndir húsasmiðir í bæn- um t.d. trésmiðirnir Einar Jóns- son og Jóhannes Jónsson, sem voru alkunnir jafnt að hagsýni og áreiðanleik, en auk þess voru þeir vel efnaðir, eða jafnvel máttu teljast ríkir á þann mæli- kvarða, sem þá var mælt og því óhætt að gera samning við þá, og loks voru þeir þekktir að „ötulleik og trúmennsku". Það þótti engin afsökun fyrir stjórn- ina að hér var um múrhús að ræða, en ekki timburhús, því að „meistari“ Klein var aðeins trésmiður eins og þeir og engu síður múrarameistari en þeir snikkararnir Einar og . Jóhann- es. Þessir tveir menn voru um langt skeið aðaltrésmiðir bæj- arins. Einar var ættaður frá Brúarhrauni og byggði árið 1856 húsið Skólastræti 5, sem Erlendur snikkari Árnason bjó lengi í og byggði ofan á. Einar var listfengur maður og spilaði á fiðlu og var því kallaður „Spillemand", en Jóhannes Jónsson var aðaltrésmiður bæj- arins um áratugi, síðast ásamt Jakob Sveinssyni. En þó að mönnum þætti það afleitt hjá dönsku stjórninn að bjóða ekki þessum hæfu inn- lendu snikkurum forstöðu byggingar Hegningarhússins, þótti þó enn ófyrirgefanlegra að bjóða ekki eina lærða innlenda 8 VIKAN 16. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.