Vikan - 19.04.1972, Qupperneq 20
að var mannmargt á göt-
unni og eftir stundar-
arkorn, tók hún undir
arm minn.
— Svona nú, þetta er
fkárra, nú getum við talað sam-
an. Og hún brosti til mín, eins
og við værum gamlir vinir. Ég
var svo ruglaður og vandræða-
legur, vegna nærveru hennar,
að ég kom ekki upp nokkru
orði.
— Þér hafið gizkað á að ég
beið eftir yður í ákveðnum til-
gangi á vagnstöðinni og elti yð-
ui svo, sagði hún blíðlega.
— Mér skilst að það sé vegna
lvkilsins, sagði ég þunglega.
-— Já, það er vegna lykilsins.
Ég var reiður sjálfum mér og
mér fannst ég hafa hegðað mér
bjánalega. Ég mátti vita að
stúlkur af hennar tagi væri
ckki að eltast við menn eins og
mig.
— Hvað er svona merkilegt
við þennan lykil? sagði ég í
r.öldurtón. — Það lítur út fyrir
að öll tiltæk ráð séu notuð, til
að ná í hann.
Hún nam staðar og horfði á
mig, sorgmæddum augum. —
Finnst yður í raun og veru að
ég hafi hagað mér kjánalega?
Það eina sem ég veit er að það
er ákaflega mikilvægt að ná í
þennan lykil, svo ég tók að mér
að hafa upp á yður. Er það svo
furðulegt?
Atti ég að segja henni frá
rkuggaJega manninum, sem líka
var á höttunum eftir lyklinum?
Og röddinni i símanum, sem
hafði í hótunum. Nei, hugsaði
ég, hversvegna ætti ég að gera
hana hrædda? Svo ég sagði: —
Hvernig komust þér að því hvað
ég heiti?
— Mjög einfalt, minn kæri
iVatson, svaraði hún hlæjandi.
— Ég spurði lyftuvörðinn.
Við gengum þegjandi um
stund. ’
— Þér eruð ekkert sérlega
skrafhreyfinn, sagði stúlkan.
— Ne-ei, sagði ég.
— Þú ert hrifinn af mér, er
það ekki, Johnny? spurði hún
og það var rétt svo að ég tók
eftir því að hún var farin að þúa
mig, svo djúpt var ég sokkinn
í hugsanir minar. — Þú ert hrif-
inn af mér, en þér finnst það
hæði barnalegt og heimskulegt.
Þér er Ijóst að við erum ekki
af sama sauðahúsi . . .
— Ég veit ekkert um þinn
heim, sagði ég.
— Þú veizt að við erum mjög
ólík. Ég veit að þú ert að velta
þvi fyrir þér hvort þú sért að
verða ástfanginn af mér . ..
— Ég hefi ekki ráð á að verða
ástfanginn, hvorki i þér eða
nokkurri annarri stúlku!
— Það er nú það ódýrasta
sem til er — og þú segist ekki
hafa ráð á því?
— Við skulum halda okkur
við efnið, sagði ég snöggt. —
Það er lykillinn sem við eigum
að tala um! Hvað er svona
rnerkilegt við þennan lykil?
— Það get ég ekki sagt að svo
stöddu svaraði hún. — Ég hefi
aðeins fengið það hlutverk að
bjóða þér til hádegisverðar. Þar
færðu eflaust að heyra allt hjá
rnanninum mínum. Ef við ná-
um í leigubíl, þá verðum við
komin þangað eftir nokkrar
minútur.
Það tók mig nokkrar sekúnd-
ur að melta upplýsingarnar um
að hún væri gift og það hefir
líklega sézt á mér, því að hún
fór að hlæja og sagði: — Ertu
undrandi yfir því að ég skuli
vera gift? Ég veit ekki hvort
á að taka það sem gullhamra
eða ekki.
— Að sjálfsögðu sem gull-
hamra. sagði ég hraðmæltur og
ég fann að ég hitnaði á eyrun-
um.
— Ég býzt við að bú sért lika
kvæntur, sagði hún svo. — Áttu
börn?
— Litla fjögra ára stúlku.
Ég stöðvaði leigubíl og við
stigum upp í hann. Hún sagði:
— Maðurinn minn er diplo-
mat, Hann er aðalræðismaður
fyrir land okkar hér i New
York og verður kannski eitt-
hvað meira síðar.
Hún lét bílinn stanza fyrir
utan glæsilegt einbýlishús milli
Madison breiðgötu og Fimmtu
breiðgötu. Útidyrnar voru
skrautlegar og látúnsslegnar og
til hægri sá ég nafnskilti aðal-
ræðismannsins. Hann var frá
einhverju lýðveldi í Suður-Am-
eríku, svo það skýrði erlenda
lireiminn.
Einkennisklæddur þjónn opn-
aði dyknar og ég gekk á eftir
Lenny inn í stóran og skraut-
búinn sal. — Jaeja, þá erum við
komin, sagði hún.
Maðurinn, sem hún talaði til,
reis á fætur og kom á móti
okkur.
— Velkominn, herra Camb-
er, sagði hann. — Það gleður
mig að þér gátuð komið.
Hann var hávaxinn, mjög
dökkur, með skarpa andlits-
drætti, þunnar varir og svört
augu. Hann brosti elskulega, en
brosið náði ekki til augnanna.
Hann virti mig fyrir sér með
kuldalegu augnaráði. Mér
fannst hann mjög hörkulegur
og hann hlaut að vera að
minnst.a kosti tuttugu árum
eldri en Lenny. Hann skaut til
Bros hans var
elskulegt, en þaö náöi
ekki til augnanna.
Hann virti mig
fyrir sér með köldu
augnaráði.
Þetta, sem hafði
byrjað sem ævintýri
með fallegri
stúlku, var nú orðið
allt annað. £g fann
hvernig óttinn
var að ná tökum á
mér...
ný
framhaldssaga
20 VIKAN 16. TBL.