Vikan - 19.04.1972, Blaðsíða 41
drottningannnar. Þau Albert
rifust oft heiftarlega milli at-
lotanna, hún öskraði og skellti
hurðum og sagði ýmislegt, sem
hún iðraðist eftir síðar. Lady
Longford segir i bók sinni um
Viktoríu að Albert hafi tekið
það sem skyldu sina að ráða bót
á þessum skapbresti eiginkon-
unnar. Á ýmsan hátt var Vikt-
oría sem móðir hins veiklynda
Alberts. En hann varð líka oft
að koma fram sem faðir gagn-
vart henni.
Viktoría var sannarlega of-
urseld ástríðu sinni, sem aldrei
yfirgaf hana. Eftir tuttugu ár
fannst henni Albert jafn glæsi-
legur og þegar hún leit hann í
fyrsta sinn og þegar hann fór
með henni í herkönnun á hvítu
kasmírbuxunum . . . Hann var
reyndar bersköllóttur og not-
aði hárkollu, til að skýla sér
fyrir dragsúgnum í Bucking-
hamhöll. Hann var lika heilsu-
veill. Hann fánn ailtaf ein-
hvers staðar til. En svo varð
hann alvarlega veikur af tauga-
veiki. Hann var ekki eins jarð-
bundinn og hún og kveið ekki
dauðanum. Hann varð meðvit-
undarlaus og vaknaði ekki aft-
ur. Viktoria vildi ekki trúa
þessu. Hvernig átti hún að af-
bera slíkan missi?
14. desember árið 1861 dó Al-
bert. Viktoría féll meðvitund-
arlaus á gólfið.
Óendanleg sorg.
..Hvernig á ég að lifa eftir
þetta? Ó, mig auma! Og ég
sem hef daglega beðið þess að
við fengjum að deyja saman,
að ég þyrfti ekki að lifa hann!
F.g sem var föðmuð af þessum
blessuðu örmum á heilögum
stundum næturinnar, þegar
heimurinn var aðeins við tvö
og ekkert virtist geta skilið
okkur að! . . . ég var svo
viss um það . . .“
Lifið án hans var útilokað.
En hvað var það sem Albert
var vanur að segja við hana?
Stærsta hlutverk þitt í
lífinu er að læra að hafa hemil
á tilfinningum þínum.
>að var ekki hægt. Hún gat
ekki leikið það hlutverk. Vikt-
oría hætti að vera drottning,
hún varð aðeins ekkja. Hún
gat ekki hugsað "sér að sýna sig
meðal fólksins.
Þjóðin gagnrýndi þetta. Það
varð æ verra. Hún var drottn-
ing og hún varð að sinna skyld-
um sínum! Árin liðu og fólkið
ragði:
— Það er heii eilífð síðan
Albert dó.
En Viktoria gat ekki gleymt.
Fjörutíu og tveggja ára gekk
hún inn i myrkur sorgarinnar
og þar var hún til æviloka.
☆
BER ER HVER
AÐ BAKl
Framhald af bls. 13.
sáu aðeins sortna hvor fyrir
öðrum í dimmunni. Hvað, sem
kynni fyrir að koma í slíku
myrkri, hugsaði Benja með sér,
það yrði að vera myrkrunum
liulið.
En þegar þeir nálguðust
brúna á fljótinu, hægðu þeir
gönguna. Og þeir fóru ekki yfir
hrúna. Þejr námu staðar við
liana. Og því næst fóru þeir
heim aftur.
En morgun nokkurn, þegar
Benja vaknaði, var Ramí kom-
inn á fætur og farinn út og var
hvergi sjáanlegur.
Benja iæsti húsinu og lagði
af stað. Skammt ofan við brúna
mætti hann Ramí á heimleið.
— Þú hefur verið í Dsjútu?
sagði hann.
— Já, í Dsjútu að fá okkur
kvenhjálp.
Benja ætlaði að halda áfram;
en bróðirinn stöðvaði hann.
— Hún kemur á morgun,
sagði hann. — Þú ættir að geta
beðið þangað til.
Benja lét að orðum bróður
sins: Það hafði hann gert frá
því að hann var barn. Og hann
íann það á sér, að ætti einhvern
iima að verða breyting á því.
þá yrði eitthvað að koma fyrir.
Og það hlaut að gerast fljótlega.
Hvorugum bræðranna varð
svefnsamt um nóttina. Benja
íór fyrr á fætur. Hann fór út
og beitti hestum fyrir vagninn.
Það verður að skeika sköpuðu,
hugsaði hann með sér. Hann
hafði ekki tekið neina ákvörð-
un. En enginn má sköpum
renna.
En liðlanga nóttina hafði
hann séð illileg og afskræmd
andlit og heyrt óskiljanleg orð.
Einhver gekk að rúminu hans
og stóð þar kyrr i sömu spor-
um. En honum hafði ekki verið
unnt að sjá, hver þetta var,
hvort hann var lífs eða liðinn;
það var aðeins hlóðleitur
dökkvi, sem andaði og bærðist.
— Benja! var sagt. — Benja!
Það var enn myrkt af nótt,
stórar, kyrrlátar stjörnur skinu;
en í skarðinu milli fjallanna í
austri brá á himininn heitum
roða — eins og af eldi í fjarska.
Nú kom Ramí út líka:
— Þú munt ætla að sækja
Natelu? Við getum farið báðir.
Pér lærió nýtt tungumál á 60 tímum!
Llnguaphone
lykillinn aó nýjum heimi
Tungumálanflimheið á hljámplðtum
tða segulböndum:
ENSKA, ÞÝZKA, FRANSKA, SPANSKA,
PORTUGALSKA, ITALSKA, DANSKA,
SÆNSKA. NORSKA, FINNSKA,
RÚSSNESKA, GRlSKA, JAPANSKA o. fl.
Verd aóeins hr. 4.500-
AFBORGUNARSKILM'ALAR
Hljóðfccrahús Reyhjauihur
Laugauegi 96 simi: I 36 56
HVERT
ÖÐRU
BETRA
16. TBL. VIKAN 4 1