Vikan - 13.12.1973, Síða 10
jólunum, en Gilchrist hafði verið
andvigur þvi, að Lucy færi
þangað. Það var hégómi, hafði
hann sagt, og auk þess átti hún
engan kjól til að vera i .
Dyrunum var ekki lokið sam-
stundis upp, þegar hún hringdi
dyrabjöllunni á prestssetrinu, og
Luvy var að þvi komin aö gefast
upp á að biða, þegar Dorothy
opnaði loksins dyrnar. Hún var
ergileg á svipinn. Dorothy var
þjónustustúlka prestsins, hún var
i slæmu skapi og uppgefin á þvi að
þurfa að sækja vatnið i brunninn
siðan fraus i vatnsleiðslunum.
Þar að auki taldi hún sig hafna
yfir ibúa vagnabyggðarinnar.
— Presturinn er á kóræfingu,
sagöi hún önug, en sýndi Lucy þó
leiðina til kirkjunnar.
1 kirkjunni lifðu aðeins ljósin i
kórnum og kertaljós, sem blakti i
einu horni kirkjunnar, þar sem
útbúin haföi verið jólajata með
alvöru hálmi og kringum hana
fólk og dýr úr gipsi i næstum eðli-
legri stærð. Lucy læddist nær.
Aldrei á ævi sinni hafði hún séð
neitt eins fallegt. Kertið bar ljós
yfir jötuna, en i henni lá brúða,
sem var svo eðlileg, að við lá að
Lucy héldi að hún væri lifandi.
Hún stóð kyrr og virti fyrir sér
þessa furðusýn. Allt i einu
byrjuðu drengirnir að syngja.Með
háum, hreinum og skærum
röddum sungu þeir:
1 Betlehem er barn oss fætt,
þvi fagni gjörvöll Adamsætt.
Halleluja.
Það barn oss fæddi fátæk mær.
Hann er þó dýrðar drottins skær.
Halleluja.
Hann var i jötu lagður lágt,
en rikir þó á himnum hátt.
Halleluja.
Þetta var ekki réttlátt... Hann
ætti að fá almennilegt litið rúm,
en ekki jötu meö köldum hálmi,
Em ELDHUS
Fjölbreytilegt og vandaó
Eldavélai; -viftun eldhúsofnar,
rofaboró, helluboró,
kæliskápar; uppþvottavélar
BRÆÐURNIR ORMSSON
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
wBe&p - i
iaWHJi'< —í ifc
hugsaði Lucy og allt i einu lá
henni við gráti Þessi litla vera i
jötunni var næsta lik barninu i
hvita húsinu, en það hafði hlýtt
teppi eða mjúkt sjal til að halda
sér heitu. Hana langaði tl að lyfta
litla barninu að brjósti sér og
hlýja þvi.
. —Engillinn litli hvislaði hún,
elsku litli unginn minn...
Ef ég ætti svona fallega brúðu,
skyldi ég búa til rúm handa henni
úr' appelsinukassa frá kaup-
manninum.
Einhver hafði veitt henni
athygli. Hún flýtti sér að rétta
prestinum bréfið.
— Það er frá pabba. Ég átti að
segja, að hann hefði fengið aðra
vinnu.
Presturinn andvarpaði. A
vinnumiðlunarskrifstofunni hafði
honum verið sagt, að Gilchrist
væri atvinulaus blikksmiður, en
það leit út fyrir að Dorothy hefði
haft rétt fyrir sér. Hún hafði sogið
fyrirlitlega upp i nefið og sagt: —
HANN ...HU!
Aðfangadagskvöld var komið
og allir ætluðu út, nema Lucy og
Jonson lögregluþjónn. Hann gekk
um með vasaljósið sitt, þvi að
hann vissi vel að ýmislegt gat
gerzt, þegar fólk fór að heiman og
krækti gluggunum ekki vandlega
aftur. Hann hafði oft staðið i
ströngu, siðan vagnarnir voru
settir niður.
Lucy fór snemma i rúmið. Hún
var sársvöng, en þorði ekki að
minnastá þáð, þvi að eitthvað lá i
loftinu i vagninum. Hún smeygði
sér upp i efri kojuna og lét ekki á
sér kræla.
Gilchristhjónin voru að búast af
stað. — Er Lucy sofnuð? spurði
Gilchrist. — Ég treysti þessum
krakka ekki nema i meðallagi
vel.. Hún á það áreiðanlega til að
blaðra einhverja vitleysu...
Kona Gilchrist gægðist upp i
kojuna. — Já, hún er löngu
sofnuð.
Lucy reyndi hvað hún gat til
þess að sofna en án árangurs.
Hún gat ekki hætt að hugsa um
fallegu brúðuna i kaldri
kirkjunni, sem án efa skalf af
kulda alveg eins og hún sjálf. Hún
ætti að liggja i fanginu á ein-
hverjum i rúmi... 1 rúminu minu,
hugsaði Lucy og færði sig svolitið
frá veggnum, til þess að rýma til
fyir imyndaðri brúðu. Milli svefns
og vöku fannst henni hún heyra
barnið i kirkjunni gráta og kalla á
sig. Allt i einu var hún glað-
vöknuð. Hún klæddi sig i gisna
kápuna og fór i stigvelin, læddist
út úr vagninum og hljóp af stað
yfir freðið engið. Þegar hún fór
framhjá hvita húsinu, heyrði hún
ungu hjónin segja:
— Ertu tilbúin, elskan? — Já,
nú er ég aö koma, væni minn...
Þau ætluðu þá lika út aö
skemmta sér. Unga konan var i
yndislega hvitum kjól. Frú Tithe
ætlaði að gæta barnsins fyrir þau.
Það vissi Lucy áður. Frú Tithe
var nefnilega simalandi og hún
hafði sagt Gilchrist, hvar silfur-
borðbúnaðurinn var geymdur i
hvita húsinu. Hann gat reyndar
10 VIKAN 50. TBL.