Vikan - 10.10.1974, Blaðsíða 44
„Hvað dettur ykkur I hug, þeg-
ar þið heyrið nafnið Romy
Schneider? Enga umhugsun,
svarið strax!” Þessa spurningu
lagði sálfræðingur i Munchen
fyrir þýzkar konur fyrir fjórum
árum, þar sem hann fýsti að vita
viöhorf þeirra til þessarar frægu
og umtöluðu þýzku leikkonu,
Romy Schneider. '
, Svörin voru öll á einn veg:
„Hneyksli, ástarbrall, skilnaður,
Alain Delon....” Niðurstaðan varð
sú, að jafnvel þær konur, sem
dáðu leiklistarhæfileika Romy
Schneider, minntust fyrst nei-
kvæðra þátta í lífi hennar. Og
þessi afstaða hefur ekkert
breytzt.
Hvers vegna er Romy Schneid-
er svona alræmd? Hún varð fyrst
fræg fyrir engilfagurt utlit og
leik sinn i hlutverkum bliðra, sak-
lausra og rómantiskra átúlkna.
Sjálf varð hún fljótt leið á slikum
hlutverkum, en henni gekk illa að
losna við þau. Hún byrjaði sinn
feril mjög ung, aðeins 14 ára kom
hún fyrst fram fyrir kvikmynda-
vélar. Og hún minnist þess, þegar
hún kom eitt sinn á hótel, þá orðin
tvitug, og henni var færður stór
bangsi að gjöf! Engin furða, þótt
hún flýði loks til Frakklands.
í Paris kynntist Romy Alain
Delon. 1 þá tið var Delon ekki orð-
inn sú súperstjarna og marg-
milljonamæringur sem hann er
nú. Romy Schneider fór ekki dult
með ást sina á Delon, og þau
höföu ekki minnstu áhyggjur af
þvi að búa saman I synd, eins og
það hét I þá daga, þegar umburð-
arlyndið var minna á þessu sviði.
Þjóðverjar áttu erfitt með að
fyrirgefa bliðlyndu, góðu stúlk-
unni þetta frumhlaup. Þeir
misstu áhuga á henni sem kvik-
myndastjörnu. En Romy þurfti
ekki á þeim að halda, hún var
orðin heimsþekkt. Eftir ævintýrið
með Alain Delon sneri hún aftur
Romy þykir ákaflega vænt um
son sinn og reynir að skapa hon-
um það öryggi, sem hún getur. En
hann vantar félaga að leika sér
við.
til Þýzkalands með stórt nafn i
pokahorninu.
En hún var ekki fyrr komin
þangað en henni tókst áð valda
stórkostlegu hneyksli. Hún varð
ástfangin af leikstjóranum Harry
Meyen, og hann skildi snarlega
við leikkonuna Anneliese Römer,
sem hann hafði verið hamingju-
samlega giftur i 14 ár, til þess að
giftast Romy. Þau eru reyndar
ennþá hjón að nafninu til, en siðan
1973 hafa þau farið hvort sínar
leiðir. Sjö ára sonur þeirra fylgir
móöur sinni, en hefur naumast átt
fast heimili um langt skeið. Og
Romy fær bágt fyrir það hjá lönd-
um slnum eins og fleira.
Romy býr ásamt syni sínum i
ibúð I Paris, og drengurinn geng-
ur i franskan skóla. Nýlega kunn-
gerði Romy, að hún hefði i hyggju
að kaupa sveitasetur til þess að
dveljast þar i ró og næði með syni
sfnum i öllum frfum. Gagnrýnir
landar hennar gáfu þessari frétt
litinn gaum. Þeir hafa aðeins á-
huea á hnevkslisfréttunum, sem
hún hefur svo ötullega séö þeim
fyrir.
Niðurstaða könnunarinnar,
sem getið var i upphafi, voru þær,
að þýzkar konur litu á Romy
Schneider sem hrokafulla, skap-
mikla, duttlungafulla og eig-
ingjarna kvenpersónu. Hún lætur
sér það I léttu rúmi liggja.
Arin sem Romy bjó með.Delon i
Paris var hún sjaldséður gestur i
heimalandi sinu. Þessi mynd sýn-
ir, er hún kom sem gestur á
pressubali áriö 1964 og vakti
mikla athygli. ,
Romy og David búa I fallegri Ibúð
I París. Romy kveðst ékki geta
hugsað sér heimili sitt né vinnu-
stað annars staöar en I Frakk-
landi.
44 VIKAN 41. TBL.