Vikan - 22.04.1976, Blaðsíða 3
EINFMDUR
■x&mrnmia
EFNI:
1 sæti 70 x 175 sentimetrar, eða sú lengd, sem hæfir á
hverjum stað. Smíðað úr 16 millimetra þykkri
spónaplötu. 2 hliðar 23,4x 175 sentimetrar úr 16
millimetra þykkri spónaplötu. 2 gaflar 23,4 x 66,8 senti-
metrar úr 16 millimetra þykkri spónaplötu. 60 skrúfur,
40 millimetra langar, og trélím.
VINNULÝSING:
Sagið alla hlutana niður eins og segir hér að ofan.
Límið og skrúfið saman kassann, límið og skrúfið síðan
sætið á. Slípið og málið. Ef þið viljið, getið þið sett
lamir á sætið, svo að undir því myndast geymslurúm.
Sófi meðfram heilum vegg getur
farið Ijómandi fallega hvar sem
er, og þessi er sá einfaldasti og
ódýrasti, sem hugsast getur,
búinn til úr kassa smíðuðum úr
spónaplötum. Hann má hafa af
hvaða lengd sem er, og einnig
má smíða hann í tveimur til
þremur hlutum, ef vill. Hann
getur verið sófi og rúm í senn.
Inn á milli sessanna getur sófinn
verið borð, og einnig til beggja
enda eins og á myndinni. Á
myndinni er sófinn málaður hvít-
ur, en auðvitað má hafa hann í
hvaða lit sem er. Gætið þess
aðeins, að velja saman fallega liti
á kassanum og púðunum og
sessunum.