Vikan

Tölublað

Vikan - 17.06.1976, Blaðsíða 11

Vikan - 17.06.1976, Blaðsíða 11
I NÆSTU VIKU Á SNYRTISTOFU FANNEYJAR Flestar konur dreymir um að veita sér einhvern tíma þann munað að fá allsherjar meðhöndlun á snyrtistofu, láta strjúka þreytuna og streituna úr stirðum andlits- og hálsvöðvum, og ganga síðan út hressar og endurnxrðar og farðaðar á réttan hátt. En flestar láta sér drauminn nægja. Hvað gerist eiginlega á snyrtistofu? Er snyrting bara munaður? í næstu Viku birtist viðtal við Fanneyju Halldórsdóttur snyrtisérfræðing, og jafnframt birtast myndir af tveim konum í snyrtingu. SVÍN EÐA EKKI SVÍN Þetta er bara eins og I svínastíu, er sagt um sérdeilis sóðalega staði, og er þá ekki að undra, þótt fólk haldi almennt, að svín séu miklir sóðar. Blaðamaður Vikunnar harðneitar þessari kenningu og þykist heldur betur hafa sannanir fyrir þvl gagnstæða eftir heimsókn á svínabú Þorvaldar í Síld og fisk, sem hann rekur að Minni-Vatnsleysu, Svín eru aldrei svln, nema svína- hirðirinn sé sjálfur svín, segir Þorvaldur, og það er Gunnar Andersen bústjóri greinilega ekki. Sjá næstu Viku. AFLAKÓNGARFAGNA Útgerðarfyrirtækið Andri h.f. I Njarðvík hélt Iokaball fyrir starfsfólk sitt að lokinni vetrarvertlð, og I næsta blaði birtast nokkrar myndir úr því hófi. Ballið var haldið I samkomuhúsinu þar syðra, og rlkti þar ósvikin gleði og glaumur, enda höfðu menn ástæðu til að fagna, því hér voru aflakóngar á ferð. Eigendur Andra h.f. eru þeir bræður Jónas, Þórarinn og Magnús Þórarinssynir. FRÆKNIR SVEINAR Á VELLINUM Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli stjórnar frækilegu liði þar suður frá og hefur séð árangur af þvl erfiði, þvl að slökkvilið hans hefur átta sinnu*n unnið verðlaun sem besta slökkvilið innan bandaríska flotans. Blaðamaður Vikunnar fylgdist með kynríingu á störfum slökkviliðsins þar suður frá og aðbúnaði öllum og lýsir I næsta blaði eftirminnilegum degi með Sveini og sveinum hans á Keflavlkurflugvelli. SMÁSJÁRSKURÐLÆKNINGAR 17. mars síðast liðinn voru 200 læknar vitni að þvl, þegar nýr kapltuli var skráður I sögu læknavlsindanna. Átta vikum áður hafði bakaralærlingur orðið fyrir því, að deigskömmtunarvél klippti af honum höndina, en nú veifaði hann þessari sömu hendi hreykinn til læknanna 200 og iðaði fingrunum sem mest hann mátti. Það tók tvo lækna tíu og hálfa klukkustund að sauma höndinasaman aftur. Sjá grein I næsta blaði um smásjárskurðlækningar. VIKAN Útgefandi Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Trausti ólafsson, Hrafnhildur Schram, Guðmundur Karlsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing I Slðumúla 12. Símar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð I lausasölu kr. 300. Áskriftarverð kr. 3.350 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 6320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 11.700 I ársáskrift. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst. 25. tbl. 38. árg. 17. júní 1976 GREINAR:__________ 16 Hillary og Himalaya. 24 Kona 1 skugga mikilmennis. Grein eftir Ásdlsi Haraldsdóttur um Ingibjörgu Einarsdóttur konu Jóns Sigurðssonar ,,for- seta. 36 Þau hafa öll eigin megrunar- aðferð. VIÐTÖL:_____________________ 2 Mér nægja nokkrar stjörnur á lambagrasi. Viðtal við Vigdlsi Kristjánsdóttur listvefara. SÖGUR:_____________ 14 Lltil saga um barnauppeldi. Smásaga eftir Einar Loga Einars- son. 15 Óheppileg gleymska. Smásaga eftir Einar Loga Einarsson. 20 Skilaboð frá Absalom. Sjöundi hluti framhaldssögu eftir Anne Armstrong Thompson. 28 Valið. Smásaga eftir Ásthildi Briem. 30 Marianne 30. hluti framhalds- sögu eftir Juliette Benzoni. FASTIR ÞÆTTIR: 9 Krossgáta. 10 Meðal annarra orða: Fjölskyldan orðín of smá. 38 Á fleygiferð I umsjá Árna Bjarnasonar. 40 Mig dreymdi. 42 Eldhús Vikunnar I umsjá Drafnar Farestveit: Léttir réttir. ÝMISLEGT:____________________ 5 Þægileg kvöldflík heima við. 6 Sá litli blái, sem gengur við allt. 8 Vinningshafi I aprílgetraun. 25. TBL. VIKAN 11 "7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.