Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 17.06.1976, Qupperneq 12

Vikan - 17.06.1976, Qupperneq 12
Linguaphone Þú getur lært nýtt tungumál á 60 tímum LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt íungumál á sambærilegan háttog þú læróir íslenzku. Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hefur meófædd- an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. A ótrú- lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til gagns og ánægju. — Þetta er RET-T og ÞÚ getur sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra. I úuxirobus KL6imS/o5Q' s'cur LINGUAPHONE tungumálanámskeió á hljómplötum og kassettum Hljóófærahús Reykjavíkur • Laugav.96 -sími 13656 MEINATÆKNANÁM. Kæri Póstur! Ég þakka Vikunni fyrir skemmt- unina, sem ég hef af að lesa hana spjaldanna á milli. Nú langar mig að spyrja þig um svolítið og vona, að bréfið fari ekki í þessa margum- töluðu ruslakörfu. 1. Hvaða menntun þarf að hafa til þess að vera meinatæknir? 2. Hvernigeigasamanstelpa, sem er í vatnsberamerkinu og strákur, sem eríhrútsmerkinu? Hvaða merki á best við vatnsberann? 3. Hvað lestu úrskriftinni og hvað heldur þú, að ég sé gömul? Karlotta. Til að hefja meinatæknanám þarftu að hafa stúdentspróf. Frekari upplýsinga skaltu leita hjá Meina- tæknafélagiíslands, Hverfjsgötu 39■ Þar er opið á miðvikudögum frá klukkan 4 til 6 og síminn þar er 2-79-70. Sporðdreki, bogmaður, steingeit og vatnsberi (karlkyns) eru mann- gerðir, sem kvenkyns vatnsberi ætti að láta eiga sig. Önnur merki eiga ágætlega við vatnsberakonu. Þú ert orðin tvítug og skriftin bendir til vandvirkni, nákvæmni og heiðar- BRJÖSTALAUS. Kæri Póstur! Ég þakka þér fyrir allt það gamla. Ég hef skrifað þér áður, en bréfið hefur eflaust farið I þína frægu ruslakörfu. Þannig er mál með vexti, að ég hef engin brjóst. Getur þú sagt mér, hvort það er hægt að fá hormónalyf til að auka vöxt þeirra? Ég skammast mín svo hræðilega fyrir þetta, að ég held ég sé að drepast. Ég vona, að þú svarir þessu fyrir mig eins fljótt og hægt er. Eins óg vanalega: Hvað lestu úr skriftinni? Og hvað heldur þú, að ég sé gömul? Hvernig fara fiskastelpa og ljónsstrákur saman? Krissa. Ekki veit Pósturinn til þess, að hormónalyf séu gefin tilþess að auka brjðstavöxt kvenna, hins vegarheyrði hann fyrir nokkrum árum á það minnst, að einhverri kvoðu hefði verið dælt t brjóst kvenna, sem þðttu of barmlitlar. Satt að segja hefur Pðsturinn mestu ótrú á þeirri aðferð og ráðleggur engum að reyna hana. Efþú ertalveg að drepast út afþessu eins og þú segir, skaltu leita læknis, og spyrja hann ráða, en annars heldur Pósturinn, að þú sért álitlegasta stúlka, þótt þú sért ekkimeð brjóstin úti um allt. Úr skriftinni les ég svolitla fljótfæmi. Þú ert ekki nema fimmtán ára. (Brjðstin geta þvt stækkað heilmikið ennþá). Fiska- stelpa og Ijðnsstrákur geta haft það ágætt saman. HEIMSKULEG BRÉF 1 PÖSTINUM Komdu sæll! Ég vil byrja á því að þakka fyrir allt gamalt og gott I Vikunni. Mér finnst þetta ansi gott blað og Pósturinn oftast góður. Þó hefur mér stundum dottið I hug, að þið fleygið þeim bréfum, sem eitthvert vit er I, en birtið ástarvellurnar í staðinn. Dæmigerð bréf I Póstinum eru svona: Elsku Póstur! Ég er svo afskaplega hrifin af strák, en hann hefur engan áhuga á mér. Hvað á ég að gera? Eða svona: Elsku Póstur! Ég er ófrísk, en ég þori ekki að segja mömmu það. Það getur stundum verið gaman að lesa þessi bréf, þó að þau séu vitlaus, en mér finnst, að þessar stelpur, sem skrifa, að þær séu ófrískar, geti tæpast haft neitt sam- bandi við foreldra stna. Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Vona, að þetta lendi ekki í 12 VIKAN 25.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.